Innlent | mbl.is | 2.12.2006 | 16:13 wrote:Maður sem fékk hjartaáfall eftir átök við lögreglu lést í morgun
Maður sem lögregla handtók aðfararnótt sunnudagsins síðastliðins, eftir að hann gekk berserksgang á hóteli í Reykjavík, lést á sjúkrahúsi í morgun. Lögreglumenn þurftu að beita manninn valdi við handtökuna og fékk hann hjartaáfall í vörslu þeirra. Honum var haldið sofandi á sjúkrahúsi eftir það. Lögregla telur manninn hafa verið undir áhrifum fíkniefna þegar á hann rann æðið, en það hefur ekki verið staðfest og málið er í rannsókn.
Enn halda þeir áfram að tala um óstaðfesta eiturlyfjanotkun.. Hvernig væri að halda kjafti um svoleiðis hluti þar til það er pottþétt... Þetta er nú argasti dónaskapur að hálfu lögreglu og óafsakanlegt..


