Þið talið um truflanir á routerum og eitthvað og mér datt í hug svolítið í sambandi við mína tölvu. Ég á heima í íbúð á neðri hæð sem er eiginlega innfeld úr annari íbúð

Þetta var semsagt hluti af stóru húsi en var svo breytt í séríbúð og ég er að nota sama net og fólkið hérna hinum megin, semsagt einn router(með þeirra leyfi og allt þannig) og routerinn er í svona 3-4 metra fjarlægt en á milli er frekar þykkur veggur. Ef ég er með tölvuna mína tengda við rafmagn get ég ekki verið tengdur netinu(það tengist og dettur út til skiptis) en svo ef ég fer yfir í hina íbúðina þá er ekkert mál að vera með hana í sambandi og vera tengdur netinu.. hvað dettur ykkur í hug að málið gæti verið? Þetta er mjög böggandi og tengingin ætti ekki að vera svona léleg, þetta er eins og ég sé bara í næsta herbergi við routerinn en samt er netið svona lélegt!