Jæja náði loksins að klára millikassann..
Prufuakstur fór fram seinasta föstudag og var mikill fögnuður
En ég þarf greinilega að skipta aftur um dempara ( sem betur fer fæ ég að skipta hinum alltaf ), en dempararnir eru of stífir..
Kom smá leiðindarmál samt upp, ég var stoppaður af lögreglunni við að færa bílinn á milli verkstæða, var með númeraplöturnar í honum, en ekki stuðara og brettakanta útaf því ég er að fara bræla beisli undir hann.
Haldiði að lögreglu druslurnar hafi ekki stoppað mig, dregið mig inn í bíl hjá sér og farið að yfirheyra alveg á fullu.. Það var eins og ég hefði riðið konunni hans í rassgatið..
Hann sagði að ég væri kolólöglegur og ég ætti ekki að vera svona vitlaus að hugsa svona og var bara almennt dónalegur. Og ég spurði hann bara hreinskilingslega "Veistu eitthvað um bíla eða hvernig þessi process gengur fyrir sig" eftir að ég var búinn að útskýra af hverju ég var ekki með brettakanta á bílnum og stuðara (get ekki haft þá á meðan ég set beislið á)
Og þegar ég var búinn að því þá sagði hann mér ekki að vera með derring.. Þannig hann skrifaði eitthvað niður og sagði mér að ég mætti mótmæla þessu og svo gekk ég bara út. Nennti þessari vitleysu ekki..
Hefndi mín aðeins á þeim samt, þeir voru að fela sig bakvið einn jeppa þarna og radarmæla götuna með þessari byssu þarna.. Þannig ég bjó til lítið skilti og fór og setti það töluvert frá þeim
"Hægja á sér, radarmælingar í götunni"
Þeir sáu þetta skilti sem betur fer ekki, en þeir hafa nú eflaust verið hissa á því að ná ekki að taka neinn.
Og svo til að kóróna daginn hjá mér, þurfti að labba á verkstæðið sem bíllinn var á og ná í bimmann hjá mér, keyra til baka og láta spotta í bílinn og "fake" dragann.... Var samt að keyra á eigin vélarafli.
ÞÁ BROTNAR EINN FLANGSINN SEM ÉG LÉT RENNA!
Handónýt suðan á þessu greinilega, þeir hafa notað vitlausann vír í þetta greinilega.. Hendi þessu í hausinn á þeim á mánudaginn.
Frekar svartur föstudagur
En það þýðir ekki að láta þetta fara í sig, verður bara ljúfara þegar maður klárar bílinn..
Kveðja, glæpamaðurinn.