Ég er búinn að vera að hlusta á útvarp í dag, fréttir, lesa einhver moggablogg og ég get ekki lýst því hvað ég var ánægður að sjá að hérna heima (bmwkraftur.is) fannst mér ég loksins sjá menn með sömu sjónarmið og ég. Ég bara get ekki skilið hversu mikinn stuðning þessir menn hafa! Þetta er bara algjört rugl!
ÉG STYÐ LÖGREGLUNA 100% Í AÐGERÐUM ÞEIRRA GEGN VÖRUBÍLSTJÓRUM OG ÖÐRUM MÓTMÆLENDUM Í DAG!!
Að hlusta á Sturlu í kastljósi í kvöld var ótrúlegt, ég meina, það eru BARA kveikt ljós en EKKERT annað í gangi. Svo heyrði ég í honum í viðtali einn morguninn á Bylgjunni þar sem hann sagði:
"Ja, nú er það svart.. löggan bara farin að hlera símana hjá okkur"
..og eftir að hafa verið beðinn um skýringu:
"já, ég fékk ábendingu um það að það væri verið að hlera símann hjá mér og við strákarnir ákváðum að athuga málið og sátum á N1 stöðinni í Ártúnsbrekku og hringdum í hvorn annan og töluðum um að fara að gera eitthvað í Ártúnsbrekkunni, og viti menn, kemur ekki bara lögreglubíll nokkrum mínútum seinna upp Ártúnsbrekkuna!"
..allavega, ég gæti sagt helling í viðbót og í staðinn fyrir að eyða þessu innleggi eins og ég ætlaði að gera þá nenni ég bara ekki að tjá mig meira um þetta og læt þetta bara flakka.
Bara að lokum, ég er stoltur af lögreglunni og því hvernig hún tók á málum í dag! Ég hef aldrei skammast mín eins mikið fyrir að vera íslendingur eins og þegar ég sé það að það virðist sem meirihluti þjóðarinnar standi með vörubílstjórunum!!