Ekki Suzuki XL7 hann er með asnalega stóran beygjuradíus. Santa Fe er bara mjög fínn, 5.0 hérna á Akureyri er á einum slíkum og hann er góður í Hondu Civic Böst segja þeir.
Ég er ekki hrifinn af Honda CRV og myndi aldrei detta í huga að kaupa slíkan.
Amma mín á slíkan bíl og fyrir utan hið augljósa ljóta ytra útlit er innréttingin í flokki með innréttingum í 15ára gömlum kóreskum bílum( ), vélin grútmáttlaus, eyða alltof miklu (15l/100km í innanbæjarakstri á Akureyri!), fjórhjóladrifið í þeim virkar ekki skít og þeir höndla eins og dauð rotta á borðstofuborði.
Santa Fe ætti að vera mjög góður í endursölu - tengdapabbi ætlaði að skoða svoleiðis þegar hann seldi LC90 og það ótrúlega gerðist - ÞAÐ VAR EKKI EINN bíll til sölu notaður!!!
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
Ég er búinn að eiga ojotu RAV-4 og mæli alls EKKI með því ógeðslega ódýra drasli sem einhverra hluta vegna er á fáránlegu verði miðað við engin gæði og ótrúlegt hvað selst að þessu toyotu drasli,Átti Hondu CRV einhver tíman og það var mun betri bíll og töluvert betri að innan og vandaðari bíll í alla staði en ég mundi skoða hyundai það eru miskyldir bílar og mun betri en margir aðrir á markaðinum hef átt nokkra svoleiðis og á eftir að eiga fleiri,hef átt t.d 2 stk starex 4x4 disel turbó og það eru snilldar bílar og ætla ég að ná í svoleiðis aftur og santa fe getur verið ansi flottur þegar það er búið að raða aðeins á hann.