Ég held að þú ættir almennt ekki að hafa áhyggjur af neinu nema eyðslu þú færð svona bíl í góðu lagi. Hann getur farið í 25-30 lítra á hundraðið ef þú stendur hann flatann alltaf... Sennilega er hann að eyða 17-18 innanbæjar normal akstri. Ég hef komið Imprezu túrbó langleiðina í sömu eyðslu.
Álið er ekki skemmtilegt í réttingum og dældast mjög auðveldlega... en þú sleppur við ryðbólur í staðinn
Trixið við að halda þessum bílum góðum er að virða vélina, leyfa henni að hitna, passa túrbínurnar og smyrja MJÖG ört.

