Ford S-Max heillaði mig dálítið fyrst, en mér fannst hann bara ekki nógu fjölhæfur, eiginlega of lítill.
Vandamálið við marga af þessum bílum er að... miðjubekkurinn er ekki nógu stór til að taka tvo barnastóla + einn farþega í viðbót (nema hann sé krakki) og fáir af þessum bílum taka 3 barnastóla yfir miðjubekkinn. Aukasætin í skottinu eru sjaldnast það stór að þau taki fullorðin nema í stuttar ferðir eða þá barnastóla sem þurfa ISOFIX ef þau rúma barnastóla á annað borð.
Tökum dæmi um fjölskyldu sem á tvö börn á stólaaldri og eitt á unglings. Þá þarf að setja unglinginn í skottið sem gæti vel gengið, en til þess að komast í skottsæti þarf yfirleitt að velta fram einu miðjusæti og þá kemur leiðindar vandamál sem er að það þarf alltaf að leysa barnastólinn úr miðjubekknum til að velta sætinu fram. Fyrir mig yrði þetta gersamlega óþolandi.
Í mörgum þessara bíla er ekki gert ráð fyrir að geta sett farþega inn um skottið nema þeir séu það litlir að það sé hægt að lyfta þeim yfir sætisbökin á aftasta bekknum, eða þá leggja niður annað sætið. Hvað gerir maður þá ef maður er með fullan bíl?
Það eru mörg svona praktísk atriði sem fólki yfirsést, þ.e. ef fjölskyldustærðin er t.d. 3 ung börn. Ef maður ætlar að nýta öryggisbúnaðinn, og hafa skott, eru mjög fáir bílar á markaðnum sem eru með 3x ISOFIX í miðjuröðinni, og þá þarf að setja einn grísinn í skottið sem tekur þá skottpláss, án þess að það sé hægt að taka sæti úr bílnum í miðjuröðinni til að koma dóti.
Í Espace er þetta ekki vandamál.
1. Miðjuröðin eru 3 full size sæti öll með Isofix
2. Viðbótarsætin (sem maður bætir í eftir þörfum) eru líka Isofix og nákvæmlega eins og sætin í miðjuröðinni. S.s. það eru 5 eins sæti í farþegarýminu og öll ISOFIX. Það þýðir að það komast í raun 5 barnastólar af stærstu gerð í farþegarýmið.
3. Ef það eru tveir barnastólar í miðjuröðinni þarf fullorðinn ekki að troða sér á milli heldur getur setið á öðrum hvorum endanum. Þetta er ekki hægt í mörgum bílum, jafnvel ekki Jeppum (t.d. X5). Auk þess, eins þá er hægt að strappa öll börnin í stólana í miðröðinni og svo getur skottfarþeginn farið inn um skottið mjög auðveldlega.
4. tökum mitt dæmi. Við erum 2 fullorðin, 3 krakkar (6mán, 2.5ára, 7ára) öll í stólum og svo 20ára aupair. Ef við förum í ferðalag á Espace er hægt að hafa 3 í miðjuröðinni og einn afturí og taka þá hitt aukasætið úr sem býr til verulegt skottpláss. Það er líka hægt að snúa sætunum á móti hvort öðru 2 á móti tveimur með eitt sætið sem borð ef fólk vill spila eða éta, nú eða ef það þarf að sinna krökkunum eitthvað þá getur barnapían gert það auðveldlega.
5. þegar ég keypti slátturvélina mína (traktorinn) tók ég öll sætin úr og þá er bíllinn algjör geymur. Einnig ef það á að flytja langa hluti getur maður tekið miðjusætið úr miðröðinni og sett það aftur í skott og flutt mjög langa hluti.
Þetta er alveg endalaus snilld. Það er vel hægt að fá ódýrari týpur af Espace en þann sem ég er með, og ég hugsa að ég myndi alltaf fara í ódýrari stuttan Espace en t.d. Touran, Safira, Scenic, því að þægindin varðandi umgengni eru svo miklu meiri í stærðinni sem Espace hefur án þess að vera eitthvað of stór fyrir borgarakstur og bílastæðahús. Þvert á móti er hann virkilega lipur.



Varðandi SendiBenzana þá er galli á gjöf njarðar þar að þeir eru ekki hannaðir sem fjölskyldubílar, heldur sendi/fólksflutningabifreiðar og eru því frekar bulky. Auk þess eru sæti ekki sérsæti heldur tveir "bekkir með sætum" sem þýðir að það er ekki einfalt að leggja niður aftasta bekkinn eða raða í bílinn eins og hjá mér. Örugglega/líklega bestu akstursbílarnir samt og endast vel.