Nokkuð nettur porshce Cayenne

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Postby iar » Thu 18. Dec 2003 13:29

bebecar wrote:Ég vissi ekki að það væri hægt að gera þennan bíl enn ljótari en hann er nú þegar :wink:


:clap:

Greinilega hægt með því að setja tvo framstuðara/svuntur á hann! :lol:
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)
User avatar
iar
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 5727
Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Location: Mosfellsbær

Postby Moni » Fri 19. Dec 2003 18:20

bebecar wrote:Range Rover er stórglæsilegur og með fallegustu innréttingu sem ég hef séð.

Ef ég mætti velja myndi ég samt taka Cayenne þó mér finnist hann ljótur - en sú ákvörðun yrði þá byggð á "performance" ef það skipti hinsvegar ekki máli þá tæki maður að sjálfsögðu RR - X5 er hinsvegar bara jepplingur á meðan hinir eru jeppar.


Cayenne er ekki jeppi, allavega ekki fjallajeppi... Þetta er ekki með hásingar eða neitt... það væri hryllingur að keyra þetta á 38" Enda færi enginn að setja Cayenne á svo stór dekk = Ekki fjallajeppi

Cayenne er Sport jeppi sem er fínn fyrir ríku kalla til að komast í bústaðinn og í veiðina og líka til að festa sig ekki í smá snjó til að bleyta ekki jakkafötin

Range Rover er finnst mér meiri jeppi, en fer að detta útúr þeirri flokkun, gamli Range-inn er hinsvegar úrvals Jeppi, sem er að meika það á fjöllum...
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby arnib » Fri 19. Dec 2003 18:40

Hvað hefuru fyrir þér í þessu?

Nú er til dæmis nýjasti Pajero ekki með hásingar,
en hann hefur samt verið hækkar og "tjúnaður" fyrir fjöll með fínum árangri?

Auk þess skilst mér að Cayenne sé með klikkuðu fjöðrunar- og drifkerfi.
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Svezel » Fri 19. Dec 2003 19:14

Er þetta ekki allt spurning um peninga, hver færi að klippa úr Cayenne, X5 eða Range Rover til að koma stærri dekkjum fyrir. Þetta er reyndar gert við LC 100 en þeir eru hvort eð er svo ljótir fyrir að það er öllum sama :wink:

Svo er jeppi ekki almennilegur jeppi nema að vera læstur að framan og aftan auk þess að vera byggður á grind(þ.e. ef það á að breyta honum). LC100 er ekki hálft á við eins mikill jeppi og LC80 því framhásingin á 100 bílnum er töluvert veikari en á gamla.

Pajero er nú ekki gott dæmi um jeppa til breytinga því hann er ekki byggður á grind og það gerir hækkun erfiðari. Ekki mikið af öflugum Pajero jeppum á landinu ber þess vott.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Postby Kristjan » Fri 19. Dec 2003 22:54

Touareg V10 fyrir mig, já takk
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Postby bebecar » Mon 22. Dec 2003 09:57

Menn hafa nú yfirleitt ekki sett það sem skilgreiningaratriði fyrir jeppa að þeir séu á grind, t.d. eru Cherokee ekki á grind.

Hátt og lágt drif er hinsvegar nauðsynlegt til að bílar geti talist jeppar, driflæsingar eru ekki nauðsynlegar þar sem sumir bílar þurfa þær ekki eins og t.d. RR.

Cayenne hefur ótrúlega getu utanvega og að lokum eru upphækkaðir jeppar til fjallaferða nokkuð sem tíðkast nánast bara á Íslandi - og hafa þeir jeppar verið kallaðir super jeeps eða super truck til samræmis við supercars væntanlega :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

ALVÖRU CAYENNE

Postby Alpina » Mon 22. Dec 2003 13:08

Þetta er ALVÖRU SUV http://www.gemballa.com/
farið i Cayenne 700/1000+ :shock: :shock: :shock: :shock:

Sv.H
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Postby Jss » Mon 22. Dec 2003 13:11

:shock: :shock: Þetta eru rosalegar tölur og grafið ekki af verri endanum :shock:

Væri alveg til í svona Cayenne :D
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Moni » Mon 22. Dec 2003 19:16

arnib wrote:Hvað hefuru fyrir þér í þessu?


Ef bíll á að vera á 44" dekkjum, þá er ekki um annað að ræða en að hafa hásingar að framan og aftan!!!
Annars er ekki mögulegt að halda bílnum inná einni akrein...

Það hlýtur að vera einhver ástæða fyrir því að allir helstu og bestu jeppar eru á hásingum að framan og aftan!!!
T.d. Land Cruiser 60 er talinn besti jeppi sem framleiddur hefur verið!!
Land Cruiser 80 er mjög góður jeppi, hann er á hásingum
Nissan Patrol er góður fjallajeppi, hásingar framan og aftan...
Allir eldri amerískir pickuppar og jeppar, allt á Hásingum framan og aftan (auðvitað bara þeir sem eru 4WD)

Það hlýtur líka að vera ástæða hvers vegna menn eru að setja hásingar undir bíla þegar þeir eru að breyta þeim...

Svo ég tali nú ekki um Hummerinn... Hann er á flexitorum allan hringinn (sjálfstæð fjöðrun) og hann er ekki að geta neitt hér á íslandi. Þetta er flottur bíll og ég hef ekkert á móti honum, en hann er ekki góður fjallajeppi...
Margar hjálparsveitir og ferðaþjónustur hér á íslandi fengu sér hummera þegar þeir komu fyrst, og létu jafnvel breyta þeim meira... Þeir eru allir til sölu núna og það vill enginn hafa þessa bíla lengur, þeir virka ekkert hér á landi upp á fjöllum. Og það er HÖRMUNG að keyra þá á 44", af því að þeir eru ekki á hásingum...

Bebecar talaði um að driflæsingar væru ekkert nauðsynlegar í jeppa, en það er ekki rétt, þeir sem hafa farið á jeppa í einhvern almennilegan snjó og ófærð sjá strax að það munar rosalega um læsingar...
'Eg fór til dæmis í jeppaferð um daginn, á Nissan Patrol, læstum framan og aftan, og vorum við alltaf að draga Land Cruiser 90 sem var með bilaðar driflæsingar, HANN F'OR EKKERT, spólaði alltaf bara á 2 hjólum...
Gunnar Hans - Alltaf á löglegum hraða :twisted:
-BMW 318i E36 ´93 - Seldur...
-Honda Prelude 2,0 4th-Generation - Seldur...
-Honda Accord 2,0 EXE
User avatar
Moni
Getawaybílstjóri
 
Posts: 559
Joined: Wed 23. Oct 2002 11:33
Location: Garðabær

Postby íbbi_ » Mon 22. Dec 2003 19:54

Bebecar þetta er akkurat öfugt hja þer, munurinn a jeppa og jepling er grindin, cherokee er ekki og ehfur aldrei verið talin jeppi þ.e.a.s siðan litli kom, hann er duglegur i snjo en það er annað mal,
pajero er/var forystusauðurinn i slyddujeppafloknum sem er ætlaður konum i pilsum en ekki snjoskafli uppa heiði. þannig að það er ekki alveg marktækt að setja hann inni þetta,

x5 cyanne(blabla) tourage(hvað er þetta með þessi nöfn) volvo jeppin og alika bilar tilheyra að minu mati nyrri gerð luxus/jepplinga, dyrir bilar með öflugar drifrasir en smiðaðir eins og folskbill, ætlaður til hraðbrauta/innanbæjarkasturs en engu siður hægt að fara ut að leika.
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Postby Hlynzi » Sun 28. Dec 2003 16:44

Þetta er nett.
En vélin í þessu er nokkuð það alljótasta sem ég hef séð í frágang á vél.

En í heildina er hann flottur.
Hlynur
Mercedes Benz - E420 Sportline V8 - - - ///AMG kit, eilífðarverkefni
Mercedes Benz E220
www.amigo.is
X: 6x W124, Justy, Volvo, Rolla
Hlynzi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 586
Joined: Mon 16. Jun 2003 18:57
Location: Grafarvogur

Previous

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 38 guests