Lindemann wrote:
vélvirkjun og vélstjórn er ALLS EKKI það sama.
vélvirkjun er einhver 3 ár á meðan vélstjórn er a.m.k. 5 ár í skóla plús fullt af smiðjutíma og sjó.
það er alveg hægt að bera saman vélvirkjun og bifvélavirkjun, vélvirkjun er meira útí vinnuvélar og stærri vélar ásam töluvert meiri smíði en bifvélavirkjun. Vélstjórn er allt annar pakki, en tekur fyrir flest sem er í vélvirkjun.
ég er bifvélavirki, en finnst persónulega vanta ýmislegt í það nám.......það eru nokkrar greinar sem mætti gjarnan bæta við, lengja námið um a.m.k. ár og gera meiri kröfur til nemenda(fylgir því að auka/bæta kennsluna).
ég er byrjaður að bæta við mig menntun og sé fram á að ég verði allavega í nokkur ár í viðbót að bæta við mig því sem mig langar að læra aukalega, aðallega til að geta stundað mitt hobbí með meiri metnaði.....betri árangur í vinnunni fæst aðallega með reynslunni og símenntun
Þú þarft heldur ekki að taka allt vélstjórnarnámið, margir vélstjórar eru aðeins með 3. stigið, það er mikið búið að vera pressa menn að fara alla leið (4. stigið) meðan ég er búinn að vera taka vélstjórann ( 1. stig + slatta í 2. stigi)
Ég er búinn að vera í smá pásu núna en ætla að halda áfram.
Ég veit um menn sem eru vélstjórar sem vita ekkert um bílvélar, en ég veit líka um fullt af vélstjórum sem eru klárari en margir klárir bifvélavirkjar.
Taktu það sem nýtist þér best.