bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 14. Jun 2025 17:29

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 52 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4  Next
Author Message
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 20:36 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Posts: 1721
Location: 1 2 Selfoss
andrivalgeirs wrote:
já auðvitað tekur maður þessu með fyrirvara en myndin náði mér allavega mjög vel, sérstaklega trúarkaflinn en eins og kom fram í myndinni þá er forsetinn bara sendiboði, mjög valdamiklar fjölskyldur sem stjórna bara landinu t.d. rockafeller fjölskyldan, sú ætt var rekin alveg aftur í 1900 þegar að bankahrunið í bandaríkjunum gekk í gegn og j.d rockafeller held ég að hann heiti og fleiri ríkir karlar þeir tóku allt sitt fé út daginn áður enn hrunið varð og lifðu bara í vellystingum meðan að litli maðurinn fór á hausinn og hvað skeði núna fyrir áramót á íslandi, þeir gerðu það nákvæmlega sama þessir ríku karlar hér á landi.....

Auðvitað sjá þeir sem eru innvíraðir í fjármálabransanum það þegar það stefnir í stórar krísur. Það var farið að kvisast út fyrir bankakerfið nokkrum vikum fyrir hrun að það væri allt að fara í vaskinn...


andrivalgeirs wrote:
en svo var umræðan líka um stríð, af hverju fara bandaríkjamenn í stríð? jú vegna þess að þeir græða peninga á því að hirða olíu og bara almennt á stríði o.s.frv. og hvað ætli sé langt síðan að þessi mynd kom út, 1 ár kannski og það var sagt í myndinni að næst yrði íran fyrir barðinu á bandaríkjamönnum og hvað var obama að gera núna? jú hann sendi fullt af hermönnum þangað, þetta er allt bara helvítis KLÍKA, bara ríkir karlar sem ráða öllu og vilja græða meiri peninga.


:shock: Hefurðu heimildir fyrir þessu?

_________________
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 21:06 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sun 15. Feb 2009 17:26
Posts: 171
Location: rvk
ég heyrði þetta í útvarpinu en ég tek enga ábyrgð á því sem ég er að pósta hérna um þetta mál, bara svo vangaveltur

_________________
Óska eftir heillegum e30 frá 318 og uppúr

E3O 325I (VH328)
LÆST DRIF
nýupptekið hedd: seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 21:09 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
þetta hefur alla tíð snúist um uppsöfnun auðs og valds,

blóðsúthellingar eru nánast alltaf upprunar peningana vegna, þetta vita nú flestir,

rockefeller fjölskyldan er ein valdamesta fjölskylda í heiminum, og í raunini sú valdamesta síðan rothschild fjölskyldan bókstaflega átti evrópu, sú ætt tókst því sem flestar slíkar reyna, og það er að láta sig hverfa, margir kunnir menn vilja meina að hún sé ennþá og hafi alla tíð verið sú valdamesta,

saga hennar byrjar með þýskum gyðingi í frankfurt sem safnaði mynt, hann byrjaði svo útlán með vöxtum, og græddi á því gífurlegar upphæðir, hann átti svo 5 syni sem hann ól um sem fjármálasnillinga, og dreifðu þeir sér um evrópu og stofnuðu banka, færasti sonur hans fór til englands,og stofnaði bank of england, sem er ennþá major player,
þeir vory fyrstir manna til að sponsa stríðsbrölt, og uppgvötuðu hversu gífurlegar peningamaskínur þau eru, þeir lánuðu báðum aðilum í napoleon stríðunum kringum 100þúsund sterlingspund, en á þeim tíma var það svo há upphæð að það er erfitt að leggja hendur á það hversu mikil upphæð það er, vel stæður greifi á þeim tíma átti kannski 400 sterlingspund, (já fjögurhundruð)

eftir því sem ég kemst næst voru einhverjir rithschildar á bakvið mikið af wallstreet bönkunum í árdaga þess,

rockefeller auðgaðist á olíubransanum, hann var spilltur og grimmur og átti fyrirtæki sem hét standart oil, það varð svo stór að 1906 var hann skikaður til að skipta því upp í 6hluta, úr því komu meðal annars exxon, esso,mobil og flr
rockefeller er ennþá sá maður sem hefur auðgast mest allra manna á viðskiptum, það er ekki hægt að koma hendi á það hversu rík fjölskyldan er, enda eiga þeir bandaríska seðlabankann, einn af rockefeller "sonunum" hefur misst útúr sér að iraq stríðið sé þeirra hugmynd,

rockefeller keypti sig inn í banka á manhattan rétt fyrir aldarmótinn 1800-1900, og gifti dætur bróður síns bankastjóranum, þar byrjaði fyrst svo vitað sé til áætlaðar viðskiptatengdar giftingar til að stuða af völdum, og uppsöfnun auðs,

ég gæti skrifað mun lengri pistil um þetta, enda hobbý hjá mér.

eitt sem ég hef samt stundum velt fyrir mér, rockefeller fjölskyldan er upprunalega þýsk, rotschildarnir voru þýskir, einir af mönnunum sem náðu að koma á seðlabanka í bandaríkjunum voru þýskir bræður, bróðir þeirra var svo þýski seðlabankastjórinn,
ég ætla ekki að segja alla söguna, eða mína kenningu á þessu, en kannið þýskan auðhring/corpuration frá því um þar síðustu aldarmót sem heitir IBforbes, þeir voru í miklu samstarfi við bæði Ford og standartoil( chase manhattan bank) og sáu um 95% þróunarvinnu á stríðstólum fyrir nazistaflokkin, einnig sponsuðu þeir upprunalega framboð hitlers og flokksins, þeir fjármögnuðu einnig byltingu bolsevíkinga í rússlandi,

þetta er grimmur og spilltur heimur, þetta er bara spurning um hversu mikið þú villt vita, en það er ansi fjarlægt raunveruleikanum að nokkur sé sinn eigin herra, við erum öll bara meðvirkur partur samfélags sem þjónar tilgangi áhveðinna manna, og við erum öll svo meðvirk að við föttum það ekki, við lærum það sem að okkur er sett fyrir, við myndum okkur skoðanir út frá því sem að okkur er leyft að vita, og so on og so on ;)

p.s skrifað í flýti, er að þykjast vera læra stærðfræði *flaut*

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 21:17 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sun 15. Feb 2009 17:26
Posts: 171
Location: rvk
NÁKVÆMLEGA, gott svar en ekki gleyma stærðfræðinni heheheh

_________________
Óska eftir heillegum e30 frá 318 og uppúr

E3O 325I (VH328)
LÆST DRIF
nýupptekið hedd: seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 21:24 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
AntiTrust wrote:
Mæli með því að horfa á þessa mynd, og lesa The Zeitgeist Movement. Hvort sem fólk tekur þessu með fyrirvara eða ekki til að byrja með, þá er meira til í þessu flestu en fólki grunar. Ég var farinn að kynna mér þetta löngu áður þessi mynd kom út, sérstaklega trúarbragðafræðina, þar sem ég er algjör öfga-trúleysingi. Fyrir mér er trúaður maður sama og vitlaus maður, óröksýnn út í gegn.



Þetta get ég nú ekki annað en kallað fávisku og fordóma. Hver ert þú, að setja þig á háan hest og halda fram einhverju sem er engin leið að sanna? Það má vel vera að þú sért trúleysingi en það gerir þinn málsstað ekkert réttari en þeirra sem trúa. Það er einmitt vitleysa að mínu mati að dæma eitthvað sem engin leið er að komast til botns í. Sannaðu fyrir mér að það sé ekki líf eftir dauðan, sannaðu að það séu ekki til yfirnáttúruleg öfl osfrvs. Ég veit vel að það er ekki hægt að sanna heldur að slíkt sé til, en á meðan þú getur ekki sannað þitt mál, þá er það heimska að mínu mati að dæma aðra fyrir að halda sínu fram.

Ég er engan vegin trúaður maður eða guðrækinn, trúi ekki á yfirnáttúrulega hluti, miðla og allt þetta dót. Það má alveg koma fram. EN ég veit fyrir víst að það er MJÖG mikið af bráðgáfuðu (mun gáfaðra fólki en ég) til sem er mjög trúað. Mér dettur ekki í hug að segja að það séu vitleysingar.

Það að vera trúaður þýðir ekki endilega að maður trúi á guð eins og við þekkjum hann. En trú er svo stórt mál að það er engan veginn hægt að gera því skil hér, hvað þá í bók eða bókaflokk. Þetta er svo stórt mál að það er ekki hægt að komast yfir þetta.

Trú hjálpar mjög mörgum og bætir líf fólks. Hins vegar er trú líka notuð til að stjórna fólki og leiða fólk út í hluti sem eiga ekkert skylt við trú, það setur svartan blett á trúna. En ekki stimpla trúað fólk sem vitlaust, það er vitleysa :wink:

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 21:26 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
saemi : :shock: :shock:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 21:40 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
allir öfgar eru af hinu vonda.. alveg sama hvaða átt það er í..


en fyrir mjög mikið af fólki er það hughreystandi að hafa eitthvað til að leita í þegar lífsróðurinn þyngist..


t.d. bróðir föður míns eignaðist tvíbura sem dóu stuttu eftir fæðingu.. þá var haldin bara bænastund í kirkju og það var það sem hann þarfnaðist og fjölskylda á þeim tíma..

burt séð frá hvort guð er til eða ekki..

þetta skiptist á endanum bara í gott eða illt.. :wink:

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 21:53 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Ég verð að taka þarna undir með Sæma, en vil þó taka fram að ég er trúaður og hef mínar ástæður fyrir því. Ekki er ég að dæma trúleysingja sem vitlausa og/eða óröksýna. Þá er ég heldur ekki að troða minni trú á aðra og virði trú eða trúleysi annarra.



saemi wrote:
AntiTrust wrote:
Mæli með því að horfa á þessa mynd, og lesa The Zeitgeist Movement. Hvort sem fólk tekur þessu með fyrirvara eða ekki til að byrja með, þá er meira til í þessu flestu en fólki grunar. Ég var farinn að kynna mér þetta löngu áður þessi mynd kom út, sérstaklega trúarbragðafræðina, þar sem ég er algjör öfga-trúleysingi. Fyrir mér er trúaður maður sama og vitlaus maður, óröksýnn út í gegn.



Þetta get ég nú ekki annað en kallað fávisku og fordóma. Hver ert þú, að setja þig á háan hest og halda fram einhverju sem er engin leið að sanna? Það má vel vera að þú sért trúleysingi en það gerir þinn málsstað ekkert réttari en þeirra sem trúa. Það er einmitt vitleysa að mínu mati að dæma eitthvað sem engin leið er að komast til botns í. Sannaðu fyrir mér að það sé ekki líf eftir dauðan, sannaðu að það séu ekki til yfirnáttúruleg öfl osfrvs. Ég veit vel að það er ekki hægt að sanna heldur að slíkt sé til, en á meðan þú getur ekki sannað þitt mál, þá er það heimska að mínu mati að dæma aðra fyrir að halda sínu fram.

Ég er engan vegin trúaður maður eða guðrækinn, trúi ekki á yfirnáttúrulega hluti, miðla og allt þetta dót. Það má alveg koma fram. EN ég veit fyrir víst að það er MJÖG mikið af bráðgáfuðu (mun gáfaðra fólki en ég) til sem er mjög trúað. Mér dettur ekki í hug að segja að það séu vitleysingar.

Það að vera trúaður þýðir ekki endilega að maður trúi á guð eins og við þekkjum hann. En trú er svo stórt mál að það er engan veginn hægt að gera því skil hér, hvað þá í bók eða bókaflokk. Þetta er svo stórt mál að það er ekki hægt að komast yfir þetta.

Trú hjálpar mjög mörgum og bætir líf fólks. Hins vegar er trú líka notuð til að stjórna fólki og leiða fólk út í hluti sem eiga ekkert skylt við trú, það setur svartan blett á trúna. En ekki stimpla trúað fólk sem vitlaust, það er vitleysa :wink:

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 21:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
Ég dæmi ekki fólk fyrir að trúa á eitthvað sem virðist ekki vera til. En Trú er einhvað sem gefur fólki von og er ekkert slæmt við voninna. Ef sumir þurfa að trúa á einhvern guð til að halda í voninna þá um að gera, færi seint þó að kalla trúað fólk vitleysinga þótt ég sé ekki trúaður. Þarf bara að hafa trú á mér sjálfum. :)

En þetta með stríðin þá held ég að allir vita að þau ganga öll útá græðgi.

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 22:04 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 27. May 2003 07:47
Posts: 12484
já við höfum mismunandi skoðanir á þessu, ég tel að menn sem trúi staðfastlega því sem "biblían" segi hljóti að þurfa afskrifa ansi mikla rökhugsun til að geta trúað þessu,

það er að sjálfsögðu til fullt af gáfuðu trúuðu fólki, en ég myndi nú halda að það hefði ansi mikið með það að gera að við erum alin upp í trú, og því miður er til eitthvað sem er talin official trú þjóðarinnar, sem er i.m.o með öllu óafsakanlegt,

minn draumur er sá að mannkynið hætti nú að trúa á eitthvað ýmindað æðra máttarvald, og mér finnst nú jú víst bara hægt að rökræða þetta ansi mikið, það eru nú yfirleitt þeir trúuðu sem eru hinsvegar alls ekki til í það, og grípa til frasa eins og að vegir guðs séu óransakanlegir, og svo framvegis

þetta var mikið hitamál hjá mér einu sinni, en ég er nú orðin rólegri í dag, en engu síður jafn hrottalega mikið á móti þessu. en nenni ekki að rífast meira útaf þessu, enda er þá trúin líka að hafa meiri áhrif á mitt líf en ég vill,

mér er meinilla við að fara í kirkjur, og þegar ég trúlofaði mig var það alveg klárt atriði að í kirkju færi ég ekki á stóra deginum,

_________________
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 22:15 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sun 15. Feb 2009 17:26
Posts: 171
Location: rvk
Jæja strákar... er að fara að horfa á zeitgeist II. Þið bíðið vonandi spenntir eftir næstu pælingum heheh

_________________
Óska eftir heillegum e30 frá 318 og uppúr

E3O 325I (VH328)
LÆST DRIF
nýupptekið hedd: seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 22:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11978
Location: ::1
ef þið fílið samsæriskenningar og shit

lesið þá "Hvað gerðist 11 September" :lol:

_________________

Tesla Model Y


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 22:55 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Tue 29. May 2007 02:53
Posts: 108
íbbi_ wrote:
já við höfum mismunandi skoðanir á þessu, ég tel að menn sem trúi staðfastlega því sem "biblían" segi hljóti að þurfa afskrifa ansi mikla rökhugsun til að geta trúað þessu,

það er að sjálfsögðu til fullt af gáfuðu trúuðu fólki, en ég myndi nú halda að það hefði ansi mikið með það að gera að við erum alin upp í trú, og því miður er til eitthvað sem er talin official trú þjóðarinnar, sem er i.m.o með öllu óafsakanlegt,

minn draumur er sá að mannkynið hætti nú að trúa á eitthvað ýmindað æðra máttarvald, og mér finnst nú jú víst bara hægt að rökræða þetta ansi mikið, það eru nú yfirleitt þeir trúuðu sem eru hinsvegar alls ekki til í það, og grípa til frasa eins og að vegir guðs séu óransakanlegir, og svo framvegis

þetta var mikið hitamál hjá mér einu sinni, en ég er nú orðin rólegri í dag, en engu síður jafn hrottalega mikið á móti þessu. en nenni ekki að rífast meira útaf þessu, enda er þá trúin líka að hafa meiri áhrif á mitt líf en ég vill,

mér er meinilla við að fara í kirkjur, og þegar ég trúlofaði mig var það alveg klárt atriði að í kirkju færi ég ekki á stóra deginum,


Ég ætlaði að fara að svara saema, gott að ég las þetta svar fyrst því þetta hefði bara verið copy/paste, takk fyrir shortcuttið Íbbi ;)

En svo ég bæti við, ég hugsa að á endanum, svo fremi sem hann komi ekki á næstu áratugum, verður tala fólks skráð í kirkjur vs óskráð öfug m.v. daginn í dag.

Ég ræðst yfirleitt ekki á fólk að fyrra bragði þegar kemur að trúarbrögðum, og ég neyði ekki ótrú upp á fólk - en fólk tekur misvel í það þegar ég svara "Lít ég út fyrir að vera heimskur?" þegar fólk spyr hvort ég trúi á guð (með litlu G-i, ekki sérnafn).

Ég hef gengið í gegnum ýmislegt eins og flestir, misst ástvini og vini, aldrei hef ég þurft að leita í eitthvað eins kjánalegt og innihaldslaust eins og trú á æðri mátt. Fólk deyr, búið spil. Það er ekkert eftirlíf, það er enginn betri eða verri staður sem bíður þín hvernig sem þú hagar þér. Lífið er einfalt, þú fæðist, lifir, býrð til afkvæmi, deyrð.

Fólk þarf að læra að vera sinn eigin klettur. Fólk á ekki að venja sig á að grípa í skáldsögu eða að biðja til karaktera þar í, það er ekkert nema heigulskapur - leið til þess að blekkja sjálfann sig svo lífið sé auðveldara. Andlegt eiturlyf, ef svo má að orði komast.

Ég tek hinsvegar 100% undir það að þetta er ekki eitthvað sem verður staðfest hér og nú, ef eitthverntímann, og hvað þá á íslensku bílaspjalli. Mér er líka nokk sama hvort mönnum finnist ég vera að setja mig háan hest með slíkum dómum, þegar allt kemur til alls verða það menn sem deila mínum viðhorfum sem eiga eftir að stöðva flest stríð og deilur í heiminum. Mannkynið mun aldrei sameinast fyrr en það gerir sér grein fyrir því að rétta trúin er engin trú, nema á sína eigin getu.

Ég veit það vel að margt vel gefið, vel menntað og þekkt fólk er trúað. Skrýtið samt hvað það virðist vera meira um vel gefna fólkið í trúleysingja hópnum en trúaða nú til dags. Það skyldi þó ekki tengjast hækkandi greindarvísitölu og aukinni rökhugsun með hverri kynslóð?

Trú, af hvaða tagi sem er, snýst um að stjórna almúganum, pólitík. Hver sem sér það ekki, er í mínum bókum - vitlaus.

_________________
Audi A6 2.0T S-line MY07
Audi TT 1.8T MY99


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 23:09 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sun 15. Feb 2009 17:26
Posts: 171
Location: rvk
það er allt um 11 september í myndinni.

_________________
Óska eftir heillegum e30 frá 318 og uppúr

E3O 325I (VH328)
LÆST DRIF
nýupptekið hedd: seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Mon 02. Mar 2009 23:13 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Posts: 9113
Location: Hafnarfjörður
Menn verða stundum svo heit-ótrúaðir að þeir gætu nánast stofnað kirkju. :lol: Annars er það mitt mál að ég kýs að trúa ekki og ég vil ekki þvinga því upp á aðra - en þar á móti ætlast ég til að þeir geri það sama. Margir 'trúaðir' eru fullir efasemdar um það sem þeir trúa á, en fá frið og ánægju um að vera í kirkju og það er gott mál. Virðum náungann. ;)

_________________
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 52 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group