Alpina wrote:
Bjarkih wrote:
HAMAR wrote:
Eða bara Noregs ?
Nákvæmlega það sem ég hugsaði, ekki mitt af uppáhalds löndum. Eins og að fara til tannlæknis, bæði vont og dýrt.
Varðandi ræktun á eldsneyti þá mun hún varla halda mikið áfram ef skortur verður á ræktaðri matvöru eins og korni.
Bingo...
mergur málsins,,
((sérlega íhugað og gott inlegg að mínu mati hjá þér Bjarki))
Ekki margir sem velta þessari tilvitnun fyrir sér
Ójú, hellingur sem er að pæla nákvæmlega í þessu.
1. Olía er að hækka og því pressa á "alternative fuels" og menn því farnir að vinna Ethanol úr korni og sykurplöntu.
2. það þýðir að færri vinna matvöru úr því sama
3. matvara hækkar og fátækari þjóðir geta ekki lengur keypt nauðsynjar (á meðan jeppamenn á íslandi kvarta yfir bensínverði..

)
Allavega er málið líka dálítið súrt því að margar þjóðir (þmt USA) hafa sett í löggjöf að þeir verði að auka notkun á Ethanoli, og skiptir þar engu hvort það ethanol er unnið á umhverfisvænan hátt eða ekki.
Það vita nefnilega greinilega ekki allir stjórnmálamenn að stærsti hluti ethanols sem er framleitt utan Braslíu er framleitt úr korni og annarri ræktanlegri vöru sem eyðir litlu af CO2 úr loftinu og jafnvel býr til CO2 við framleiðsluna, sem sykur gerir ekki því hann er "nautral" varðandi CO2. S.s. stóru þjóðirnar eru að setja í löggjöf að þú verðir að nota vöru sem er hugsanlega ekkert umhverfisvæn og er að svelta stóran hluta jarðarbúa.
Svo voru menn að finna shitloads af olíu fyrir utan strendur Brasilíu, reyndar alveg 5 ár í hana og hún kostar 40-50 dollara á tunnu upp úr sjó..
Vandamálið er því ansi flókið.
Á að vinna dýra olíu og halda áfram að nota olíu eða á að hækka matvöruverð í heiminum með því að framleiða vöru sem minnkar útblástur en er samt sem áður ekki CO2 nautral í framleiðlsu (og hugsanlega Eykur CO2 í andrúmsloftinu) þar sem að skóglendi er gjarnan rutt í burtu til að framleiða Ethanolkorn.
skemmtilegt dílema.
Svo er annað. Ein helsta ástæða þess að Olía er að hækka er ekki aukin notkun, langt frá því að vera rétt að Kínverjar eigi sökina á því að olía og matvara hækkar. Það eru nefnilega nákvæmlega sömu öfl að baki þessum hækkunum á olíu og matvöru og eru að lækka krónuna.
Allar þessar vörur er verslað með í Optionum. Menn eru t.d. að kaupa olíu framvirkt til að verjast hækkandi verðbólgu í EU og USA. Sama á við um matvöru, menn kaupa optionir (framvirk kaup) á allskonar matvöru. Það þrýstir upp verðinu, eftirspurn hækkar verð.