bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 17. Jun 2025 18:20

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 16 posts ]  Go to page Previous  1, 2
Author Message
 Post subject:
PostPosted: Thu 08. Nov 2007 19:05 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Posts: 289
Location: Austurríki
Jónas wrote:
zneb wrote:
basten wrote:
Málið er bara að það er alltaf hópur manna sem er viljandi og meðvitað að aka of hratt. Þessi hópur er vel með á nótunum hvar hraðamyndavélar eru og hægja bara á sér rétt á meðan ekið er framhjá myndavélinni. Þeir eru einnig að fylgjast vel með hvar lögregla er að hraðamæla.

Eina leiðin fyrir lögreglu til að hafa hendur í hári þessa hóps er að "liggja í leyni" við ratsjármælingar og hafa myndavélar á óvæntum stöðum.

Annars myndi lögregla eingöngu ná til meðal-jónsins sem hugsanlega gleymir sér eitt augnablik og fer örfáa km yfir hámarkshraða.

Ég er ekki viss um að það þurfi að merkja það sérstaklega þar sem hraðamyndavélar eru, samanber að þegar ómerktir myndavélabílar eru úti í kanti þá eru engar merkingar.

Merkingar hafa visst forvarnargildi en einnig sú vitneskja að lögregla geti verið hvar og hvenær sem er við mælingar.

Bara mín pæling.


Góðar pælingar. En samt er ég ekki viss um lögmætið með að hafa þetta ómerkt útaf persónuvernd ef maður vitnar í dæmi eins og þegar það voru settar upp myndavélar í heimavist útá landi án viðvarana og í búningsklefa wc laugum. Þeim var gert að taka vélarnar niður, kanski ekki alveg sambærilegt. En ætli því sé ekki reddað með því að segja þetta vera í þágu almennings... Ég er bara svona að pæla hvernig yrði tekið á þessu ef maður færi með svona fyrir dómstóla.

Finnst líka soldið annað mál þegar lögreglan er að taka mann á staðnum, þá eru þeir greinilega að koma í veg fyrir að viðkomandi hugsi sinn gang strax, ekki eftir 2 vikur þegar hann fær sekt. Fólk þarf mismikið aðhald.

En hins vegar í þessu tilviki þá hefði "robertthorh" líklega ekki verið "stórhættulegur stórglæpamaður" þarna 2svar ef það hefði verið skilti víst að það er svona mikið mál að aka nákvæmlega á 60 þarna. Og víst það er svona mikið mál þarna þá ætti að vera skilti til að koma enn frekar í veg fyrir það. Núna mun hann passa sig betur þarna framvegis en þennan tíma áður en hann fékk sektirnar hefði hann hæglega getað valdið stórtjóni með gáleysislegu aksturslagi með því að keyra heilum 8 kílómetrum yfir uppgefnum hámarkshraða :wink: sem er btw líklega nálægt meðalhraða... en ekkert hægt að segja við því svosem


Hms. Þegar þú ferð inní verslun er alltaf merki um að það sé upptaka í gangi, miði frá Securitas eða álíka. Hinsvegar er ekki stórt skilti, hliðina á hverji myndavél í búðinni sem segir "HÉRNA ER MYNDAVÉLIN!!!!!!111" - Það myndi ekki gera gang, þá myndu þjófar einfaldlega stela hlutum þar sem vélin nær ekki að kovera. Oft er reynt að hafa vélarnar aðeins huldar, hvort sem að það er í svartri kúlu þannig að þú sjáir ekki í hvaða átt henni er beint o.þ.h.

Að því sögðu ætti að vera nóg fyrir lögregluna að hafa eitt skilti einhversstaðar á Íslandi(Hvaleyragöng?), því jú nánast allir vegir tengjast saman? Og þessar myndavélar virka mjög fínt, ég man þegar vélin var höfð á Hringbraut um sinn - það snarhægðist á umferðinni.


hehe já það má líka horfa á þetta þannig.

Og já, það er klárt mál að þessar vélar virka. Samt finst mér að það ætti líka að einbeita sér enn frekar að öðrum leiðum til að sporna við hraðakstri, ekki hrifinn af þessum leiðum að fara alltaf í "stríð" við almenning til að bæta hegðun, hvort sem það er þetta eða annað. Ég held að allir geti verið sammála um það að vilja ekki að Ísland verði eins og Bretland t.d. hvað þessar vélar varðar. En þetta er gott í hófi eins og margt annað og gerir gott gagn þar sem þess er virkilega þörf. En búðarhnupl er ekki alveg sambærilegt við smávægilegt hraðakstursbrot þannig að þetta er kanski ekki sambærilegt dæmi hjá mér. Maður stelur ekki óvart en maður getur auðveldlega gleymt hraðanum, sérstaklega þegar flestir bílar í kringum mann fylgja ekki heldur hámarkshraða.

Ef maður er tekinn er það að sjálfsögðu engum öðrum en manni sjálfum að kenna. Ég hef verið tekinn, ekki svo oft rendar en samt of oft. E-ð skiptið fannst mér nánast ágætt að vera bara tekinn og fá smá ámynningu og líka skipti þar sem mér fannst það tóm vitleysa og ekkert annað en smámunasemi.

_________________
Stebbi
Mongoose SX 6.5

Mercedes Benz 190e sportline ´92 "sec wannabe" seldur
Kawasaki 650sx stand up jet-ski selt
BMW e-34 ///M5 3,6 seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 16 posts ]  Go to page Previous  1, 2

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 62 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group