Þetta kemur allt úr ráðuneytinu.
Þetta er að mínu mati ekki rétta aðferðin, vikmörk eru nauðsynleg því eins og menn hafa bent á þá eru margir þættir sem geta orsakað meiri skekkju á hraðamæli bifreiðar og raunhraða. Löglega skoðuð ökutæki geta því verið með meiri skekkju á hraðamælum sínum en sem nemur vikmörkum lögreglu.
Í upphafi skyldi endinn skoða
Er það vilji ráðamanna að fá meginþorra ökumanna á móti lögreglunni, er það lögreglunni til framdráttar.
Einnig hefur mér borist til eyrna að lögreglan framfylgi ekki vinnureglu um hámarkshraða við efturför ökumanna er framið hafa umferðarlagabrot. Að bíll fari útaf á 200+ með lögregluna á eftir sér og ökumaðurinn liggi í valnum er umhugsunarefni. Stóri bróðir á að vera skynsamari.....sá hefur vitið sem vægir.
Þær breytingar sem orðið hafa á starfsháttum lögreglunar nýverið hafa rýrt álit mitt á lögreglunni.

