Já ok, glæsilegur morgun.
Vaknaði svona heldur seint, mamma sagði að við þyrftum að moka út bílana, ég bara já hey ég er ekkert að fara að gera það. Vissi bara ekkert hversu mikill snjór var.
Jæja kíki út og bölva því náttúrlega að það sé 10cm+ snjór á bílnum og skafa þetta allt rækilega burt.
Og þar sem ég er lækkaður 60/40 þá var shitmix dauðans að komast niður í miðbæ, tók sæbrautina þar sem mér tókst að skafa veginn á kafla en komst loksins fyrir utan skólann.
Stæðin fyrir utan skólann voru svo þétt pökkuð af snjó að ég var dáldinn tíma að hringsóla til að finna gott stæði. Enda svo á því að prófa stæði sem leit frekar vel út. Festi mig á mallakútnum og ákvað að nú væri ég að fara heim
Góður rúmur klukkutími í morgunrúnt. Tek pottþétt strætó ef þetta ætlar að halda svona áfram.