Sælir,
Ég var uppí sjoppu í kvöld að versla mér kók og nammi þegar að maður kemur uppað mér og fer að segja mér frá bmw sem hann er með inní skúr hjá sér hérna í Garðinum, og vildi hann að ég kæmi með sér að kíkja á bílinn. Þetta er 523 E39 árgerð 1997 sem sonur hans hafði klesst í rvk í vetur. Bíllinn er nokkuð heill að sjá nema þá þetta tjón aðsjálfsögðu. Bíllinn er með leðri og síma og er sjálfskiptur. Hann vill endilega að einhver kaupi þennan bíl og geri hann nothæfan aftur. Ég tók nokkrar myndir af bílnum og sagðist geta með glöðu mótu hent þeim hérna inná og ath hvort einhver hafi áhuga á þessum bíl, Hann var ekki með neina verðhugmynd þar sem hann vissi ekkert um gang mála með svona tjónaðann bmw.
Tjónið atvikaðist þannig að sonur hans var að taka af stað á ljósum og sá ekki að bill var að koma frá hægri og fór þarna í hægri hliðana á honum,, hann var í órétti semsagt. Dempara turninn virðist ekkert skakkur, nafið brotnaði frá festingum sínum á stöttanum(eða hvað þetta kallast) og brettið er ónýtt og hurðinn ásamt því að sílsinn er smá beyglaður, Það er forðabúr fyrir að ég held rúðupissið þarna neðarlega við sílsan og það er alveg heilt og fullt af vökva ennþá

Svo þetta getur varla hafa verið þungt högg,, ég veit það þó ekki. Tók nokkrar myndir og þær kannski lýsa þessu aðeins betur.





Hann fann ekki skránigarskirteinið en ég tók niður verksmiðjunr að ég held sem er
WBADD41040BT33461 ef einhver getur kannski flett því upp og póstað uppl um nr bílsins og annað sem þarf að koma framm eins og km stöðu og öðru;) En vélinn er OK og hann bauðst til að setja hana í gang fyrir mig en ég afþakkaði það þar sem hann þurfti þá að fara að færa til bíla og eitthvað vesen.