bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 02. May 2025 14:11

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 12 posts ] 
Author Message
PostPosted: Fri 19. Dec 2003 22:17 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Ég var að keyra í suður á glerárgötu (vinstri akgrein) akureyri rétt áðan þegar bíll kemur hjá sjallanum og keyrir útá götuna beint á móti mér, annar bíll var við hliðina á mér en hann tók greinilega eftir því hvað var að fara gerast svo hann gefur í og gefur mér þar að leiðandi rúm til að færa mig yfir á hægri akgrein rétt áður en draugabíllinn keyrir næstum því á framan á mig.

Og vitið hvað, gamall kall með hatt var undir stýri.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 19. Dec 2003 22:37 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Úffffff.

Það var gott að það var vakandi ökumaðurinn við hliðina. Maður hefur séð svona gerast.

Man alltaf eftir gömlu konunni sem kom öfug niður afreinina af Hafnarfjarðarveginum frá Hamraborginni :roll:

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 19. Dec 2003 22:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
alltaf leiðinlegt að heyra svona hluti, en ég ætla að setjast niður í sófann minn núna og fá hjartaáfall.....

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 20. Dec 2003 00:18 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Fri 20. Jun 2003 19:12
Posts: 113
Location: 104 Reykjavík
saemi wrote:
Úffffff.

Það var gott að það var vakandi ökumaðurinn við hliðina. Maður hefur séð svona gerast.

Man alltaf eftir gömlu konunni sem kom öfug niður afreinina af Hafnarfjarðarveginum frá Hamraborginni :roll:


já, lenti einmitt í því sama einu sinni þarna!?!?! Gamall kall og konan hans ekkert að pæla í neinu!!! Hefði verið til í að ná mynd af svipnum á mér þá, kjálkinn var í gólfinu!!! :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 20. Dec 2003 08:19 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 06. Nov 2003 15:38
Posts: 5953
Location: Akranes
Ég get sagt að það tekur á að lenda í svona shit.
Hef þurfa að mæta bíl á mínum vegarhelming á Kjalarnesinu og þurft að víkja yfir á öfugann vegarhelming til að sleppa, það var ekki honum að þakka að við sluppum. :evil:

_________________
Image
E30 - 325iC - 323iA - 320i - 318iS
E21 - 320
Honda CBR600 F2 Streetfighter


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 20. Dec 2003 11:19 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Og líka frekar óþægilegt að mæta bílum í hringtorgi. Mæli ekki með því :roll:

Gott mál að engin slys urðu, þú bara leyfir pumpunni að slaka á og jafnar þig á þessu Kristján. :-)

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 20. Dec 2003 16:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Mig langaði svo að elta hann og rífa af honum teinið... fara bara með það uppá svínabú, ég var með vitni og alles.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 20. Dec 2003 17:46 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Ég mætti einu sinni bíl á öfugum vegahelmingi á Sæbrautinni þarna rétt áður en maður kemur að Íslandsbanka. Það var fljúgandi hálka og bílinn þrusaði framan á bílinn sem var á hinni akreininni við hliðana á mér og hann kastaðist á bílinn fyrir aftan mig. Sem betur fer var ég nýbúinn að skipta um akrein.

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sat 20. Dec 2003 23:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
úff, Kull... slasaðist einhver?

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 21. Dec 2003 15:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Posts: 1505
Location: Seltjarnarnes
Eftir því sem ég best veit slasaðist enginn alvarlega en fólkið hefur samt lemstrast eitthvað. Sem betur fer vorum við nýlögð af stað frá ljósum þannig að hraðinn var ekki mikill, samt rosalegt að sjá bílana kastast til við áreksturinn.

_________________
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Sun 21. Dec 2003 16:52 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Ég sé að þið hafið lent í ýmsu, vona að maður lendi ekki í svona, sumt fólk á einfaldlega ekki að hafa ökuskírteini :!:

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 23. Dec 2003 00:51 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Fri 20. Jun 2003 19:12
Posts: 113
Location: 104 Reykjavík
Jebbs, sérstaklega leiðinlegt að heyra af þessu slysi og hvaðþá þessu fólki í kópavogi, var að vona að þetta hefði verið svona 1-off dæmi sem ég lenti í en greinilega ekki :x

_________________
Nissan Almera SLX, 1996 - heimilisbíllinn.
BMW 320i, 1993 - seldur.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 12 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 36 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group