http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1199416
Quote:
Stöðvaður átta sinnum á einu ári fyrir hraðakstur
Lögreglan á Blönduósi stöðvaði í gær ökumann á sextugsaldri vegna of hraðs aksturs. Lögreglan segir að það sé í sjálfu sér ekki fréttnæmt á þessum slóðum, en það sé athyglisvert að ökumaðurinn, sem ók á 139 km hraða um Norðurlandsveg við Hnausa í Vatnsdal, var þar með stöðvaður af lögreglunni á Blönduósi í áttunda sinn á einu ári. Þá séu ekki með talin þau umferðarlagabrot, sem að maðurinn hafi gerst sekur um hjá öðrum embættum.
Lögreglan segir, að ef brot þessi séu tekin saman, þá komi í ljós, að sektarboð vegna þessara hraðamála á Blönduósi hljóði upp á 170.000 krónur og maðurinn hafi fengið 9 ökuferilspunkta vegna sömu mála þaðan.
„Það er með ólíkindum að maðurinn skuli ekki læra af brotum sínum, og þá sérstaklega af því að fara hér um vegi lögreglunnar á Blönduósi," segir í tilkynningu frá lögreglunni.
_________________
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur

--