Jæja, ég ákvað að setja þetta hérna inn á Kraftinn þar sem ég veit að það eru margir hér sem hafa staðið í innflutningi frá Þýskalandi.
Það sem mig langaði að vita er hvort einhver hefur reynslu af því að kaupa bíl í DE og hafa hann þar á export plötum í töluverðan tíma áður en viðkomandi bíll er fluttur úr landi? Bíllinn yrði ekki skráður á einstakling með heimili í DE. Mér skilst að gildistími þessara númera sé að hámarki 6 mánuðir og það myndi henta mér alveg prýðilega
Það sem ég er aðallega að horfa til er að geta sparað mér tilfallandi bílaleigukostnað fram á sumarið, nota bílinn við og við í DE og rúnta síðan á honum í sumarfrí til Íslands þar sem hann yrði tollaður og skráður.
Hvað segiði... er þetta gó?