Vantar BMW mótorblokk - má vera ónýt, helst M30/M10

Posted:
Thu 15. Mar 2012 10:22
by saemi
Eins og segir í fyrirsögninni, þá vantar mig BMW mótorblokk. Hún má vera ónýt, ég þarf að skera úr henni til að sjóða á aðra. Best væri ef þetta væri M30, en ég skoða allt.
Ég er að leita að einhverju fyirr klink sem má fórna í þetta, á til sjálfur blokkir sem eru í lagi, tími bara ekki að fórna blokk sem er óskemmd í svona æfingar.
pm eða 699-2268
Re: Vantar BMW mótorblokk - má vera ónýt, helst M30/M10

Posted:
Thu 15. Mar 2012 12:26
by sh4rk
Hummm nú ætla ég að vera pínu leiðinlegur en ertu ekki að pósta þessu á vitlausan stað??? Á þetta ekki heima í "vil kaupa" ekki "til sölu"

Re: Vantar BMW mótorblokk - má vera ónýt, helst M30/M10

Posted:
Thu 15. Mar 2012 13:01
by Jón Ragnar
Lagaði þetta fyrir þig Sæmi

Re: Vantar BMW mótorblokk - má vera ónýt, helst M30/M10

Posted:
Thu 15. Mar 2012 15:48
by saemi
Jón Ragnar wrote:Lagaði þetta fyrir þig Sæmi

Takk. Ég kíkti sérstaklega hvort þetta væri ekki réttur dálkur... skellti þessu svo beint í rangan greinilega

Re: Vantar BMW mótorblokk - má vera ónýt, helst M30/M10

Posted:
Thu 15. Mar 2012 17:43
by Aron
það eitthvað m30 grams í portinu í vöku
Re: Vantar BMW mótorblokk - má vera ónýt, helst M30/M10

Posted:
Thu 15. Mar 2012 18:37
by srr
Ég er með sama sem strípaða M10 blokk út í skúr.
Var í E28 518 1982.
Getur fengið hana frítt gegn því að sækja hana í Kef city.
Re: Vantar BMW mótorblokk - má vera ónýt, helst M30/M10

Posted:
Thu 15. Mar 2012 19:34
by ömmudriver
Það er pjúra synd að þú hafir ekki verið aðeins fyrr á ferðinni með þessa fyrirspurn!
Mjög stutt síðan ég henti original blokkinni úr sjöunni

Re: Vantar BMW mótorblokk - má vera ónýt, helst M30/M10

Posted:
Thu 15. Mar 2012 20:35
by saemi
ömmudriver wrote:Það er pjúra synd að þú hafir ekki verið aðeins fyrr á ferðinni með þessa fyrirspurn!
Mjög stutt síðan ég henti original blokkinni úr sjöunni

Damn

En... ætli þetta endi ekki í M50 blokk, prufa það ef M30 dúkkar ekki upp.
Re: Vantar BMW mótorblokk - má vera ónýt, helst M30/M10

Posted:
Thu 15. Mar 2012 22:38
by maxel
Síðast þegar ég vissi var e32 með opna m30 niðrí vöku

Re: Vantar BMW mótorblokk - má vera ónýt, helst M30/M10

Posted:
Thu 15. Mar 2012 22:39
by Aron
ásamt heddi og nýjum knastás í skottinu.