srr wrote:Já alveg rétt,,,það er nefnilega ekki spillt borgarstjórn í Reykjavík og alls ENGAR offjárfestingar í lóðum
Hvað eru Reykvíkingar að borga mörgum borgarstjórum laun núna ?

No hard feelings, það fólst ekki í orðum mínum að Reykjavík eða sveitafélögin þar í kring væru fullkomin þau eru samt talsvert betri.
Það hefur t.d. verið stöðug fólksfjölgun hér í gegnum árin, áratugina....annað en á öllum öðrum stöðum landsins.
Nokkrir staðir í borgarlandinu eru mjög vel staðsettir m.t.t. veðurfars vil ég þar nefna Fossvogsdalinn og hverfin í kringum Laugadalinn.
Persónulega vil ég sem íbúi á höfuðborgarsvæðinu að allt höfuðborgarsvæðið verði eitt sveitafélag með einum borgarstjóra og fækka starfsmönnum niður allan stigann, lækka þannig kostnað (útsvarið) og bæta þjónustuna (um leið myndi spillingin minnka).
Fréttablaðið 14. okt: „Ég held að þetta svæði sé svolítið sýkt af veru varnarliðsins. Þeir hugsa öðruvísi en við." (átt er við Reykjanesbæ)