bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

vantar sjálfskiptingu í 735 '88
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=14&t=3083
Page 1 of 1

Author:  mazdan [ Sat 18. Oct 2003 10:38 ]
Post subject:  vantar sjálfskiptingu í 735 '88

skiptingin fór hjá félaga mínum í gærkveldi, og núna vantar honum nýja.
og svona á meðan maður er að svipast um einhverju í bílinn er um að gera að nota tækifærið og ath. hvort einhver gæti átt 8 cyl. mótor í bílinn á góðu verði (og tölvuna)

við skoðum alla möguleika, og ágætt ef einhver á kanski 8 cyl mótor, skiptingu og tölvu í sama pakka á góðu verði.

Author:  saemi [ Sat 18. Oct 2003 11:43 ]
Post subject: 

það væri ekki slæmt að fá nánari lýsingu á hvernig skipting þetta er.

Er þetta 4hp22EH skipting??? þ.e. 4ra gíra elektrónísk með "sport og economy" vali?

Sæmi

Author:  Alpina [ Sun 19. Oct 2003 10:35 ]
Post subject: 

saemi wrote:
það væri ekki slæmt að fá nánari lýsingu á hvernig skipting þetta er.

Er þetta 4hp22EH skipting??? þ.e. 4ra gíra elektrónísk með "sport og economy" vali?

Sæmi


Ég held .....saemi.... að eftir 87 séu allar skiptingarnar með BUS þannig að ef eitthvað ,,,,vont,,,,gerist fer skiptingin í neyðarprógrammið
þ.e.a.s. 3.gír((((er föst í 3.gír))

Sv.H

Author:  saemi [ Sun 19. Oct 2003 22:04 ]
Post subject: 

Það gæti alveg verið rétt hjá þér Sveinbjörn. Ég hef ekki vit á því skohh, en grunar að það sé rétt!

Það er samt allra hagur að gefa meiri upplýsingar um hvers er óskað.

Ég á svona "non EH" skiptingu nýupptekna!

Sæmi

Author:  mazdan [ Mon 20. Oct 2003 18:17 ]
Post subject: 

hann var ekki "fastur" í þriðja þrepi, hann komst ekki í annað né þriðja, hann var "fastur" í 1sta, en við höfum ekki haft tíma til að kíkja á hann, en við skoðum það í kvöld...gæti verið grilluð olía og ónýt sía... ég vona það allavega.

en hann var ekki fastur í þriðja.

ég á þennan bimma ekki og þekki ekki svona rosalega vel inná þá, þ.e.a.s. nákvæmlega hvaða skipting þetta er.

seami, hvað mundir þú láta skiptinguna þína á mikið?

Author:  saemi [ Mon 20. Oct 2003 19:49 ]
Post subject: 

Hún færi á 50.000.-

Sæmi

Author:  Bjarki [ Tue 21. Oct 2003 01:11 ]
Post subject: 

Ég á svona síu og pakkningu í E32 '90 M30. Gengur fyrir margar aðrar skiptingar bara tékka EPC.
Selst á 60% af B&L verði.
Orginal BMW nýtt og ónotað.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/