by saemi » Fri 06. Jun 2008 22:08
Það sem Sveinki meinar.. og ég er fyllilega sammála, Hvað ertu að spá í að gera við þennan bíl?
Þú gerir miklu betri hluti með að fá þér nýjan bíl ef þú ert að spá í að fara að skipta um vél ásamt öllu þessu sem þú telur upp.
Þú endar með kostnað sem fer laaaaangt fram úr verði bílsins eins og hann er.
Það er gott að hafa drauma, en best að geyma þá sem drauma í þessu tilviki.
M3 mótor (euro) er ekki undir hálfri milljón. Þú verður kominn upp í milljón með kassa, drifi, bremsum oflr. ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ SETJA HANN Í!!!
Hitt sem þú telur upp er vel raunhæft, en þú færð ekki stuðara, kastara og angel eyes fyrir kúk og kanill. Það kemur til með að kosta langleiðina eða yfir hundraðkallinn (ekki oem).
Sæmi
E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,