bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

VK: Miðjustokk í E30!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=14&t=22772
Page 1 of 3

Author:  arnibjorn [ Thu 21. Jun 2007 23:55 ]
Post subject:  VK: Miðjustokk í E30!

Halló halló...

Mig vantar rúðuupphalarann farþegameginn í bílinn minn. Hlýtur einhver að eiga þetta.

Vantar plast dæmið undir stýrinu.

Vantar miðjustokk sem er ekki með kassettudraslinu.

Vantar einhvern ódýran geislaspilara líka.

Ef einhver á eitthvað af þessu látið mig þá vita.

Þetta er allt fyrir 335i nema geislaspilarinn :P

Senda EP, svara hér eða hringja 6162694 (eftir 5 á daginn)

Árni

Author:  gstuning [ Fri 22. Jun 2007 10:11 ]
Post subject: 

Ég á halarann, gleymdi bara að setja hann í :oops:
kem með hann í kvöld.

Author:  arnibjorn [ Sat 23. Jun 2007 19:30 ]
Post subject: 

Mig vantar geislaspilara nauðsynlega.

Kærastan mín þolir ekki að keyra um án þess að hafa tónlist! :lol:

Má sko þessvegna vera gamalt tæki úr E30... þarf ekki einu sinni að vera geislaspilari.. en útvarpið verður að virka!

Einhver??

Author:  gstuning [ Sat 23. Jun 2007 20:01 ]
Post subject: 

Varstu ekkert að hlusta þegar þú tókst bílinn? :)

loftnets endinn er dottinn af strengnum frá loftnetinu og það þarf að setja nýjann, þá virkar útvarpið aftur 100% fínt.
:D

Author:  arnibjorn [ Sat 23. Jun 2007 20:09 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Varstu ekkert að hlusta þegar þú tókst bílinn? :)

loftnets endinn er dottinn af strengnum frá loftnetinu og það þarf að setja nýjann, þá virkar útvarpið aftur 100% fínt.
:D


Lastu ekkert fyrsta póstinn? :D

Þetta er fyrir 316i sem kellingin mín er að keyra á... enginn spilari í honum :wink:

Ég læt bara þennan svaka góða disk sem ég fékk frá þér duga í 335 :lol:

Author:  Alpina [ Sat 23. Jun 2007 20:32 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
gstuning wrote:
Varstu ekkert að hlusta þegar þú tókst bílinn? :)

loftnets endinn er dottinn af strengnum frá loftnetinu og það þarf að setja nýjann, þá virkar útvarpið aftur 100% fínt.
:D


Lastu ekkert fyrsta póstinn? :D

Þetta er fyrir 316i sem kellingin mín er að keyra á... enginn spilari í honum :wink:

Ég læt bara þennan svaka góða disk sem ég fékk frá þér duga í 335 :lol:



:rollinglaugh: :rollinglaugh:

Author:  srr [ Sat 23. Jun 2007 21:11 ]
Post subject: 

Mig langar í eintak af þessum disk sem fylgdi :lol:

Author:  gunnar [ Sat 23. Jun 2007 21:27 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
Mig vantar geislaspilara nauðsynlega.

Kærastan mín þolir ekki að keyra um án þess að hafa tónlist! :lol:

Má sko þessvegna vera gamalt tæki úr E30... þarf ekki einu sinni að vera geislaspilari.. en útvarpið verður að virka!

Einhver??


Ég á nú einhvers staðar orginal kasettutæki í E30.

Spurning hvort þú hafir áhuga á því? Veit það fer aldrei í minn alla vega.

Author:  srr [ Sat 23. Jun 2007 21:38 ]
Post subject: 

Ég á þetta tæki til....Sanyo kasettutæki úr E28, með tónjafnara :lol:
Virkaði mjög vel, getur fengið það á eitthvað slikk þar sem ég er kominn með Sony Xplod cd í E28

Image

Author:  gunnar [ Sat 23. Jun 2007 21:45 ]
Post subject: 

Ég vissi að það væri vont að vera með kassettu-dót í E30 hjá mér þar sem miðjustokkurinn er en þetta er nú ljóta ruglið í E28 :shock: :lol:

Author:  srr [ Sat 23. Jun 2007 21:49 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Ég vissi að það væri vont að vera með kassettu-dót í E30 hjá mér þar sem miðjustokkurinn er en þetta er nú ljóta ruglið í E28 :shock: :lol:

Hehe, segðu :lol:
Það fékk að fjúka út á sama tíma og ég setti Sony spilarann í (sem var klukkutíma fyrir brottför á bíladaga :oops: )
Þegar ég tók kassettuhólfin úr, þá blasti við mér HEILL HELLINGUR af klinki sem hafði runnið undir þau í gegnum árin.
Þar var allt frá 10 aurum og upp í ryðgaða 100 kr peninga, eflaust 1000 kr í heild :lol:

Author:  Aron Andrew [ Sun 24. Jun 2007 04:02 ]
Post subject: 

Það var orginal tæki einhverstaðar aftur í rauða 318 sem ég seldi Gunna, hann veit pottþétt ekki einu sinni af því :lol:

Author:  Aron Andrew [ Sun 24. Jun 2007 04:03 ]
Post subject: 

og já hann vill kannski selja þér það..

Author:  arnibjorn [ Sat 30. Jun 2007 02:54 ]
Post subject: 

Jæja ég er kominn með rúðuupphalarann og Óskar ætlar að redda mér plast dæminu sem er undir stýrinu.

En mig vantar ennþá miðjustokk, geislaspilara og jafnvel heilt mælaborð ef einhver á!

Allavega innréttingin mín er nánast öll í fokki... fer öll á flug þegar ég er að leika mér uppá braut...

Mig vantar nánast allt bara! :?

Ef einhver er jafnvel að rífa E30 látið mig þá vita! :)

Author:  arnibjorn [ Tue 03. Jul 2007 13:02 ]
Post subject: 

Vantar ennþá geislaspilara ASAP!

Má þessvegna vera eitthvað gamalt original útvarp sem virkar!

Ekki væri verra ef að ísetning fylgi :lol:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/