bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Mótorfesting E39 523i
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=14&t=22447
Page 1 of 1

Author:  bjornvil [ Fri 01. Jun 2007 21:29 ]
Post subject:  Mótorfesting E39 523i

Jæja, eftir heimsókn í TB í dag kom í ljós að grunsamlega hljóðið sem ég hef heyrt þegar ég ræsi bílinn undanfarið er brotin mótorfesting. :(

Hún hefur brotnað í svaðilför minni um malarvegi Reykjaness um daginn.

Mjög spennandi :roll:

Anyways, mig vantar semsagt hægri mótorfestingu í E39 523, hlutur númer 2 á þessari mynd. Ég er ekki viss, en miðað við RealOem er víst einhver munur á þessum hlut á bílum framleiddum fyrir 09/1998 og eftir 09/1998. Minn er 04/1999.
http://www.realoem.com/bmw/showparts.do ... g=22&fg=05
Image

Þetta kostar slikk í B&L en er ekki til eins og er og þarf að panta að utan, tekur nokkra daga. En ef einhver á þetta til mundi ég vera mjög þakklátur þar sem mér finnst ekkert sérlega spennandi að keyra bílinn með brotna mótorfestingu og væri til í að laga þetta ASAP.

Endilega hafa samband hér á þræðinum, EP, eða í síma 869-0812

Takk fyrir :)

Author:  Angelic0- [ Fri 01. Jun 2007 21:33 ]
Post subject: 

Plönin hjá mér eru að breytast.. þú ættir að geta fengið þetta á 3000kr hjá mér á næstu dögum ;)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/