Sammála síðasta ræðumanni!
Dempara par á 80.000 kr er nú meiri vitleysan!
GSTuning selur KW kerfi sem mig minnir að kosti um
60 þúsund, fyrir 4 dempara + 4 gorma.
Síðan er ebaymotors.de er gommu af þessu leiti maður
undir réttum skilyrðum - og margir til í að shippa í evrópu!
Hérna er eitt dæmi um kerfi á ebay á 219 EUR.
Shipping virðist vera 30 EUR.
Ég er ekki viss hver tollurinn á svona er, en það er öruggt mál að þú þarft
að borga virðisauka skatt.
Ef við segjum að tollur sé 13% getum við notfært okkur bmwkrafts
innflutningsreiknivélina
góðu með því að þykjast vera að flytja inn Pallbíl (13% tollur)
og fáum þá út
48.489 ISK með tolli og vaski og öllu saman.
Þetta er auðvitað ekki nákvæmlega rétt tala, því að maður þarf stundum
að borga einhver auka gjöld á pósthúsinu, og 13% tollur er líklega ekki rétt.
Aftur á móti er þetta örugglega ekki langt frá réttri tölu!