bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Óskast: 320i '83-89 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=13&t=958 |
Page 1 of 1 |
Author: | Kepler [ Mon 03. Mar 2003 22:03 ] |
Post subject: | Óskast: 320i '83-89 |
Er svona að svipast um eftir 320i bimma sem er kannski í ekkert rosalega góðu útlitslegu ásigkomulagi en gangfær samt. Mætti alveg skoða aðrar vélastærðir ef það kemur gott tilboð ![]() |
Author: | arnib [ Tue 04. Mar 2003 00:37 ] |
Post subject: | |
DJÖFULL er ég áááánægður með þig kallinn minn! Fá sér ekta bíl! ![]() |
Author: | saevar [ Tue 04. Mar 2003 09:13 ] |
Post subject: | |
hmm.... Kepler keypti ég ekki bílinn minn af þér ? |
Author: | hlynurst [ Tue 04. Mar 2003 12:29 ] |
Post subject: | |
Nohh... er Palli bara kominn í BMW-inn aftur. ![]() |
Author: | arnib [ Tue 04. Mar 2003 13:21 ] |
Post subject: | |
saevar wrote: hmm....
Kepler keypti ég ekki bílinn minn af þér ? Átt þú gamla bílinn hans Kepler?? ![]() Það er MJÖG fallegur bíll og vel með farinn! |
Author: | Kepler [ Tue 04. Mar 2003 13:41 ] |
Post subject: | |
jújú, þetta er gamli bíllinn minn. Andskoti sætur bíll það, hef verið soldið að velta því fyrir mér hvernig hann hefði reynst þér og svona... |
Author: | saevar [ Tue 04. Mar 2003 16:16 ] |
Post subject: | |
Já þetta er besti bíll sem ég hef átt. ![]() En það hefur verið svoldið viðhald á honum (bjóst nú samt alveg við því). Það sem þurfti að gera stuttu eftir að ég keypti hann : Þurfti að skipta um alla bremsuklossa og diskana að aftan. Síðan lak bensín tankurinn og það var líka olíuleki. Einnig þurfti að skipta um reley til að ljósin lýstu almennilega. Síðan það síðasta til að fara var : Að loftræstingin blæs bara heitu (skilst að það sé lítið mál að laga það) Læsingar á skotti og bílstjóra hurð eru bilaðar (reyndar var alltaf eitthvað af skott læsinguni, var ekki hægt að læsa en síðan þegar ég loksins náði að læsa þá gat ég ekki opnað það aftur ![]() Þetta finnst mér nú ekki mikið á 16 ára gömlum bíl. En margt smátt gerir eina stóra peninga hrúgu ![]() Fer með hann á verkstæði á morgun til að laga skottið. Ég er nefnilega að vinna upp á velli og tollurinn er búinn að hóta mér því að ef ég læt ekki gera við skottið. Þá taka þeir af mér bílinn næst og fara með hann á verkstæði til að opna skottið og ég þurfi að borga laun löggunar sem fer með bílinn + viðgerðin ![]() |
Author: | Gunni [ Tue 04. Mar 2003 17:09 ] |
Post subject: | |
hehe djöfulsins nasistar eru þetta !!!! |
Author: | gstuning [ Tue 04. Mar 2003 18:03 ] |
Post subject: | |
Hvað ertu að flytja þarna niður maður ![]() |
Author: | ofmo [ Tue 04. Mar 2003 19:07 ] |
Post subject: | |
verðhugmynd? |
Author: | Kepler [ Tue 04. Mar 2003 19:08 ] |
Post subject: | |
Já, þessi eyðsla á honum hlaut að stafa af einhverju öðru en vanstillingu :p Þessi skottloksvandræði voru útaf einhverjum sérstökum fídus frá verksmiðjum bmw um valet protection something... hræðilega pirrandi og enginn vissi hvernig átti að fá þetta til að virka eðlilega. Ótrúlega skemmtilegur bíll samt ![]() |
Author: | Kepler [ Tue 04. Mar 2003 19:44 ] |
Post subject: | |
Veit ekki ... fer alveg rosalega eftir bíl, en kannski ekki meira en 100þúsund. Helst minna, þar sem bíllinn þarf ekki að vera í neinu rosa standi... |
Author: | Guest [ Mon 31. Mar 2003 22:21 ] |
Post subject: | Re: Óskast: 320i '83-89 |
Kepler wrote: Er svona að svipast um eftir 320i bimma sem er kannski í ekkert rosalega góðu útlitslegu ásigkomulagi en gangfær samt. Mætti alveg skoða aðrar vélastærðir ef það kemur gott tilboð
![]() Á bmw 320I í góðum gír. hann er til sölu, sjá www.bilalind.is ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |