Daginn
Er með MMC Pajero 2.8 diesel 7 manna 33" breyttur,skráður 04/1999 sem mig langar að skipta á BMW eða Benz.
Bíllinn er hvítur að lit, samlitaður, leður, lúga, sjálfskiptur, rafmagn í öllu, cruize control, hiti í sætum, hátt og lágt drif. Nýskoðaður 2011 athugasemdarlaust, þjónustu og viðhaldsbók frá upphafi, 3 eigendur frá upphafi með mér. Nýir demparar að framan og aftan, nýr gírkassapúði, ný spyrnugúmmí, nýlegt púst alla leið, góð 33" dekk, álfelgur, litaðar rúður, allt virkar 100%. (kem með myndir bráðlega) Eyðsla á þessum bíl hjá mér er um 13 lítrar á hundraðið miðað við að vera með hann í afturhjóladrifinu. Bíllinn er ekinn 260 þús km og er með tímakeðjum ef einhver skyldi vilja forvitnast um það.
Ásett verð á bílinn er 990 þús og áhvílandi er lán frá SP að upphæð 350 þús (7 gjalddagar eftir/ erlent lán sem verður þá lækkað þegar aðgerðir stjórnvalda koma í gegn og fær kaupandi að njóta þess) Er að leita að einhverjum sem yfirtekur lánið og lætur mig fá BMW eða Benz sem milligjöf.
Ef einhver hefur áhuga á að skoða málið endilega sendið skilaboð hérna.
Kveðja
_________________ Björgvin
BMW 540i E39
BMW 330D E46
Merceded Benz S320
Mercedes Benz 190E 2.6
Mercedes Benz C36 AMG
Mercedes Benz C320 Brabus
Mercedes Benz E320
Mercedes Benz 230 CE
|