bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Mig langar í M5! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=13&t=4252 |
Page 1 of 5 |
Author: | Qwer [ Thu 29. Jan 2004 16:22 ] |
Post subject: | Mig langar í M5! |
Jamm... semsagt, mig langar í BMW M5. Fæ að vísu ekki prófið fyrr en í sumar en ég get borgað út eins og einar 1.300.000 kr á borðið núna en það verður eitthvað meira í sumar ( fæ prófið 15. júlí og stefni að því að verða kominn á bíl þá ). Þannig að ef þú ert svo heppin að eiga M5 og ert eitthvað að spökulera í því að selja hann þá máttu endilega láta mig vita. |
Author: | bebecar [ Thu 29. Jan 2004 16:43 ] |
Post subject: | |
Þú átt þá auðvitað að kaupa þann M5 sem er til sölu hér - þú færð ekki betra eintak á þennan pening. Gætir dundað þér við að sjæna felgurnar upp þangað til þú færð prófið. En það er eins gott að þú sért agaður ungur maður því að þetta er ekkert lamb að leika sér við. |
Author: | Qwer [ Thu 29. Jan 2004 17:03 ] |
Post subject: | |
Ég hugsa að ég gæti ALDREI gert neitt sem gæti hugsanlega skaðað bílinn minn, sérstaklega ekki ef það væri M5 ![]() Ég var líka að lesa auglýsingarnar hérna með M5 og var að pæla... einhvern tíman var svartur M5 í keflavík á 18" OZ racing felgum, frétti að hann væri til sölu... veit einhver eitthvað um þann bíl? |
Author: | iar [ Thu 29. Jan 2004 17:11 ] |
Post subject: | |
Qwer wrote: Ég var líka að lesa auglýsingarnar hérna með M5 og var að pæla... einhvern tíman var svartur M5 í keflavík á 18" OZ racing felgum, frétti að hann væri til sölu... veit einhver eitthvað um þann bíl?
Ætli þetta sé ekki þessi: http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?t=3537 |
Author: | Qwer [ Thu 29. Jan 2004 18:26 ] |
Post subject: | |
Þetta er sá sem ég var með í huga. Þakka fyrir ![]() En hvernig er það eru ekki fleirri svona kvikindi á landinu eða hvað? |
Author: | Kull [ Thu 29. Jan 2004 19:05 ] |
Post subject: | |
Það eru all nokkrir bílar á landinu, í mismunandi ásigkomulagi sjálfsagt. Veit ekki um fleiri til sölu en þessa samt. |
Author: | Jss [ Thu 29. Jan 2004 19:47 ] |
Post subject: | |
Ég veit að bíllinn sem E34 M5 á er einn (ef ekki sá) besti M5 á landinu, þekki þann sem flutti hann inn, og síðan veit maður hversu vel bebecar og E34 M5 hafa farið með hann, magnaður bíll í alla staði og eins og ég hef sagt áður þá man ég varla eftir að hafa séð bílinn skítugann. |
Author: | Svezel [ Thu 29. Jan 2004 23:18 ] |
Post subject: | |
Samt spurning hvort það sé ekki betra að byrja á einhverju aðeins rólegra ef þú skilur hvað ég er að fara. Ekkert að reyna að móðga þig eða neitt en þegar maður er að byrja að keyra á eigin vegum þá er oft betra að byrja á einhverju aðeins minna en 300hö. Þekki marga sem höfðu keyrt alveg hreint helling fyrir bílprófið, fengu sér kraftmikinn bíl en höfðu þegar hólminn var komið ekki reynsluna né agann til að eiga þesa bíla. Maður getur náttúrlega alveg eins farið sér að voða á yaris tík en þetta eru bara þannig bílar að menn verða að vita upp á hár hvað á að gera við og aflið er mikið. Bara mín reynsla, ég keyrði eins og vitleysingur á 100hö VW Bora þegar ég var 17, og svona aftur á litið hefðu hestöflin alveg mátt vera færri þótt maður hafi aldrei klesst. Annars er Logi(E34 M5) að "selja" alveg stórgóðan M5 sem þarf að lenda í góðum höndum. Vildi að það væru mínar en maður fór aðra leið. |
Author: | Just [ Thu 29. Jan 2004 23:35 ] |
Post subject: | |
ein spurning: svezel, hvað ertu gamall núna?? bara forvitinn? |
Author: | Svezel [ Thu 29. Jan 2004 23:36 ] |
Post subject: | |
'82 módel |
Author: | Just [ Thu 29. Jan 2004 23:40 ] |
Post subject: | |
Hehe ´82 módel á Z3 ![]() ![]() |
Author: | Svezel [ Thu 29. Jan 2004 23:48 ] |
Post subject: | |
Á sjó síðan ég var 11ára og unnið síðan ég var 6ára. Hef átt og unnið fyrir hverri einustu skrúfu í öllum mínum bílum |
Author: | Kull [ Fri 30. Jan 2004 00:10 ] |
Post subject: | |
Við hvað vannstu 6 ára? ![]() |
Author: | Haffi [ Fri 30. Jan 2004 00:14 ] |
Post subject: | |
haha ég var með sælgætissölu 6 ára á hjólum ![]() |
Author: | Svezel [ Fri 30. Jan 2004 00:14 ] |
Post subject: | |
Afskurð, ekki neitt í miklu mæli þá en nóg fyrir nammi og matchbox bílum ![]() |
Page 1 of 5 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |