Mér finnst nú óþarfa viðkvæmni að bregðast svona við skoðunum eins meðlims.
Benz 600 er sleggja og engar vöflur með það, reyndar fullkomnasti og eitt mesta verkfræðiundur síns tíma - það skal því engan undra það þó að þetta tæki hreyfist.
M5 E34 kom fyrst á markað 1988 og er með vél úr bíl sem kom fyrst á markað 1977 í BMW M1.
Ég held að mun nær sé að bera S600 saman við E39 M5 ef það á að vera einhver samanburður. Benzinn er með næstum tvisvar sinnum stærri vél en E34 M5, er einhver hissa þó hann sé snöggur? Hann er ekki tvisvar sinnum þyngri! Mig minnir að M5 sé 1690 kíló og það munar nú 500 kílóum.
Hinsvegar langar mig aðeins að kommenta á millihröðun og svo hröðun yfir 150 sirka. Benzinn ætti að hafa M5 nokkuð auðveldlega við aðstæður eins og t.d framúrakstur þar sem sjálfskiptur Benzinn skiptir niður á réttann snúning og setur allt í sölurnar, en þessir hlutir gerast hægar í beinskiptum bílum og var einmitt mikið um það rætt á sínum tíma þegar E500 var settur til höfuðs M5 (ekki neinn 600 Benz settur til höfuðs M5

) að E500 bíllinn var talin henta mun betur til frammúraksturs einmitt vegna þessarar stóru vélar og sjálfskiptingarinnar.
Hinsvegar er það staðreynd að E34 M5 er þekktur sérstaklega fyrir geysilega hröðun í efri gírum, og það var þekkt á sínum tíma að þegar M5 komst í þriðja og fjórða gír (sem er einn á móti einum ef ég man rétt) að þá höfðu sárafáir bílar við M5 í hröðun, það voru helst Porsche bílar að viðbættri túrbínu sem áttu séns.
Ég held að menn ættu aðeins að líta staðreyndir og gefa báðum bílum kredit og vera svo ekki að ergja sig þegar verið er að bera saman epli og appelsínur.
BMW E34 M5 er gefinn upp með hröðunina 6.5 í 100 kmh, en hefur oftast verið mældur á 5.9 í 100 kmh að jafnaði en alveg niður í 5.6. Hann er 25.2 sek að fara kílómeter og 14.4 sekúndur í 160 kmh og kvartmílu allt frá 15.6 sek niður í háar 13 sekúndur. 14. sléttar er algengur tími.
Benz S 600 er 6.1 sek í 100 kmh, 25.4 sek að fara kílómeterinn, eini kvartmílutíminn er fyrir tjúnaðan Koenig S 600 og er sá tími 14.8 sek.
Það er því ljóst að þetta 2.2 tonna flykki hreyfist all verulega en flengir ekki E34 M5 - enda ekki smíðaður til þess.
Líklegt er að þetta byggist á hraðatilfinningu þegar 2.2 er hent af stað með geysilega togmikill vél 580 NM við 3800 snúningar - og það gerist tiltölulega hljóðlaust og án dramatíkur ólíkt M5.