Raggi M5 wrote:
til dæmis þá lennti ég einu sinni í spyrnu við 560 M-B á Reykjanesbrautinni, og við vorum komnir slatta í 3.hundraðið og hann komst ekki framm úr. Þó að þetta sé nú ekki sama og 600 Benz þá er þetta nú samt ekki mikill munur á vélarstærð. Ég væri samt alveg til í að fara í spyrnu við 600 Benz uppí svona 220-250 og sjá muninn!
Bara svona til að varpa aðeins ljósi á tölurnar þá er s600 tæpl. 2,2 tonn en 560 er um 1800 kg => 400 kg munur
600 bíllinn er 400 hp á móti 280 í 560 bílnum => 120 hp munur
600 gefur 580 Nm á móti 430 í 560 => 150 Nm munur
V12 vs V8
Nú veit ég ekki nákvæmlega hvað M5 er þungur (1500-1600 kg ???) en ef ég man rétt er þetta 315 hp bíll og þessvegna finns mér ekkert skrítið að 560 Benz hafi ekki verið að fara framúr honum - málið horfir samt talsvert öðru vísi við þegar þú bætir við nokkrum aukakílóum en um leið 1 hestafli fyrir hver 3,3 kg
Áður en ég verslaði bílinn sem ég er á núna hafði ég prófað 560 SEC sem er ágætlega sprækur bíll en ég get alveg fullyrt að hann hefur ekki roð við 600 bílnum þegar þessir bílar eru komnir á svolitla ferð.
En eins og ég sagði áðan, þetta eru alls ekki sambærilegir bílar. Mér finnst samt ekkert athugavert við að bera þá saman eins og hverja aðra bíla og held að Sveinbjörn hafi aðallega verið hissa á powerinu í Benzanum.