Ég get útvegað nýuppgerðar OEM BMW læsingar fyrir 168/188/210 drif úr e23/e24/e28/e30/e32/e34/e36, mögulega passa þær í fleiri.
Eldri e23 og e24 bílarnir sem eru byggðir á e12 bílunum eru með öðruvísi drifköggla, þessar læsingar passa því ekki beint í þá.
Ég hef séð þræði um að hægt sé að setja 168mm læsingar úr e28/e30 í e21 drif. Sem á þá líklega við um 2002 drifin og mögulega er hægt að setja einhverjar af þessum læsingum í e39, e46, e12 eða eldri e23/e24 drifin með einhverjum breytingum. Menn verða að kanna það sjálfir.
Læsingarnar kosta um 85 þúsund heimkomnar með öllum gjöldum
Sendið mér skilaboð ef þið hafið áhuga

