Page 1 of 2

M52B25 mótor með öllu utaná úr E39 - Verð 150k

PostPosted: Mon 28. Oct 2013 15:11
by Djofullinn
Til sölu M52B25 mótor með öllu utaná sem kemur úr sjalfskiptum E39 523i


Mótor er ekinn 218 þúsund km




Plug n play í 520 e39



Verð 150 þúsund kr

Re: M52B25 mótor með öllu utaná E39/E36 - 160 þúsund

PostPosted: Mon 28. Oct 2013 15:46
by Zed III
ég setti 6cyl mótor úr e39 í z3 (e36 frame) án þess að breyta pönnu, var direct fit.

það vantar sennilega bara mótorarma til að láta þetta passa í e36.

Re: M52B25 mótor með öllu utaná E39/E36 - 160 þúsund

PostPosted: Mon 28. Oct 2013 15:48
by Djofullinn
Zed III wrote:ég setti 6cyl mótor úr e39 í z3 (e36 frame) án þess að breyta pönnu, var direct fit.

það vantar sennilega bara mótorarma til að láta þetta passa í e36.

Já ok takk fyrir ábendinguna :thup:
Maður þarf að kanna þetta betur :)

Re: M52B25 mótor með öllu utaná E39/E36/E46 - 160 þúsund

PostPosted: Mon 28. Oct 2013 18:18
by Angelic0-
E39 530d mótor passar allavega beint í E46 330d án þess að skipta um pönnu, svo að það er ekki ólíklegt að any 6cyl E39 mótor passi beint í E36 eða E46

Re: M52B25 mótor með öllu utaná E39/E36/E46 - 160 þúsund

PostPosted: Mon 28. Oct 2013 19:18
by Tóti93
í hvernig standi er motorin og hvað er búið að gera við hann ?

Re: M52B25 mótor með öllu utaná E39/E36/E46 - 160 þúsund

PostPosted: Mon 28. Oct 2013 19:23
by srr
Þú segir passar í E46 með öðrum mótorörmum.

Er það alveg rétt þar sem þessi mótor er M52B25, en E46 fékkst aðeins með M52B25TUB ?
Eða er ekkert mál að setja eldri mótor í nýrri bíl ?

Re: M52B25 mótor með öllu utaná E39/E36/E46 - 160 þúsund

PostPosted: Tue 29. Oct 2013 11:37
by Djofullinn
srr wrote:Þú segir passar í E46 með öðrum mótorörmum.

Er það alveg rétt þar sem þessi mótor er M52B25, en E46 fékkst aðeins með M52B25TUB ?
Eða er ekkert mál að setja eldri mótor í nýrri bíl ?

Það á ekki að vera neitt vandamál miðað við það sem eg hef lesið, hef þó ekki gert það sjálfur :)

Re: M52B25 mótor með öllu utaná E39/E36/E46 - 160 þúsund

PostPosted: Tue 29. Oct 2013 18:21
by Djofullinn
Tóti93 wrote:í hvernig standi er motorin og hvað er búið að gera við hann ?

Ég setti mótorinn í gang og hann gengur 100%, enginn blár reykur, hrein og fín olían, ekkert vatn í olíunni.

Það er smurbók í bílnum frá því að hann var nýr í þýskalandi og einnig búið að fylla hana út hér heima

Re: M52B25 mótor með öllu utaná E39/E36/E46 - 160 þúsund

PostPosted: Thu 31. Oct 2013 15:22
by Djofullinn
Ennþá hægt að heyra i honum í gangi, næstu daga liklega

Re: M52B25 mótor með öllu utaná úr E39 - Verð 150k

PostPosted: Tue 19. Nov 2013 21:31
by Djofullinn
Mótorinn er kominn úr bílnum og tilbúinn til afhendingar

ATH það eru ekki göt á blokkinni til þess að setja mótorinn í e36 með e36 mótorörmum, en mögulega hægt að lata hann passa i e36 með sersmiðuðum örmum

Re: M52B25 mótor með öllu utaná úr E39 - Verð 150k

PostPosted: Wed 20. Nov 2013 02:17
by srr
Eru bara engin göt eða bara ekki snittuð ?
Hvernig var þetta gert hjá ZedIII þegar M52B28 var tekinn úr E39 og settur í Zetuna hans sem er auðvitað byggt á E36 ?

Re: M52B25 mótor með öllu utaná úr E39 - Verð 150k

PostPosted: Wed 20. Nov 2013 02:51
by Djofullinn
srr wrote:Eru bara engin göt eða bara ekki snittuð ?
Hvernig var þetta gert hjá ZedIII þegar M52B28 var tekinn úr E39 og settur í Zetuna hans sem er auðvitað byggt á E36 ?

Ég er ekki búinn að skoða þetta sjálfur, en skildi þetta þannig að götin væru bara ekki til staðar.
Axel Jóhann er með mótorinn, hann kannski svarar þessu ef hann sér þetta :)

En maður hefur heyrt um marga sem hafa sett M52 mótor úr E39 í E36 þannig að þetta kom frekar mikið á óvart, spurning hvort þetta sé eitthvað misjafnt eftir árgerðum?

Re: M52B25 mótor með öllu utaná úr E39 - Verð 150k

PostPosted: Wed 20. Nov 2013 08:41
by Zed III
Djofullinn wrote:
srr wrote:Eru bara engin göt eða bara ekki snittuð ?
Hvernig var þetta gert hjá ZedIII þegar M52B28 var tekinn úr E39 og settur í Zetuna hans sem er auðvitað byggt á E36 ?

Ég er ekki búinn að skoða þetta sjálfur, en skildi þetta þannig að götin væru bara ekki til staðar.
Axel Jóhann er með mótorinn, hann kannski svarar þessu ef hann sér þetta :)

En maður hefur heyrt um marga sem hafa sett M52 mótor úr E39 í E36 þannig að þetta kom frekar mikið á óvart, spurning hvort þetta sé eitthvað misjafnt eftir árgerðum?


Það voru göt fyrir e36 armana á m52 blokkinni, ef ég man rétt þá gat ég reyndar bara sett í 3 göt af fjórum. Þyrfti að skoða það til að vera viss.

Re: M52B25 mótor með öllu utaná úr E39 - Verð 150k

PostPosted: Wed 20. Nov 2013 18:05
by thorsteinarg
Það var allavega stimplað á heddið "2002" Gæti verið nýlegra hedd en vélin er,,, eða hreinlega önnur vél.

Re: M52B25 mótor með öllu utaná úr E39 - Verð 150k

PostPosted: Wed 20. Nov 2013 22:31
by íbbi_
2002 var komin m54