bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Feedback þráður. https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=12&t=39857 |
Page 1 of 3 |
Author: | arnibjorn [ Tue 15. Sep 2009 18:36 ] |
Post subject: | Feedback þráður. |
Varstu að gera góð kaup? Póstaðu því hingað og láttu okkur vita. Var einhver að svíkja þig? Segðu okkur frá því. Allt í kringum kaup og sölu skal fara hingað. Hvort sem að það eru góðar eða vondar sögur. Reynum að halda þessum þræði on topic líka. mbk Árni Björn |
Author: | IceDev [ Tue 15. Sep 2009 19:03 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Þeir sem ég hef stundað viðskipti við: Alpina: ,,,,,BARA Í LAGI,,,,, viðskipti Bjornvil: Seldi honum 523i, eðalmenni og blómstraði yndisleg vinátta úr þeim viðskiptum *Brokeback mountain theme* Dabbiso: Seldi honum 530D, góðvinur minn úr Hive, sé mikið eftir þeim bíl í dag og öfunda hann í hvert skipti sem að ég sé hann rúlla eins og dólgur um götur bæjarins Sezar: Seldi honum Z4, tók frekar langan tíma að minni hálfu að afhenda bifreiðina enda þurfti að laga háspennukefli fyrir afhendingu, vona að hann erfi það ekki við mig. Sé einnig mikið eftir þeim bíl ![]() BMWmania: Efast um að hún stundi kraftinn eitthvað í dag en ég keypti E36 318 af henni, fyrsti bíllinn sem ég kaupi og gekk allt snuðrulaust fyrir sig Svo er bara vonandi að maður fái feedback frá einhverjum öðrum Hannes |
Author: | arnibjorn [ Tue 15. Sep 2009 19:06 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Flott byrjun Óskar! Einmitt eitthvað svona sem við viljum heyra. Annars hef ég verslað við ýmsa aðila á kraftinum og ég man ekki eftir neinu veseni hingað til. Hef nokkrum sinnum verslað af Uvis og hann stóð sig alltaf, hann keypti síðan bíl af mér og borgaði í tveimur greiðslum og ekkert vesen. |
Author: | Alpina [ Tue 15. Sep 2009 20:14 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Öll viðskipti við aðila hérna inni á kraftinum eru til fyrirmyndar ,, sem hafa snúið að mér ,, NEMA ein,, en þeim verður gerð MJÖG ítarleg skil á næstunni ![]() |
Author: | Aron Fridrik [ Tue 15. Sep 2009 21:51 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Hef stundað viðskipti við 4 held ég bara.. Moog: Hef tvisvar verslað við hann. Keypti af honum afturljós á E36, gott verð og góð vara. Keypti líka hátalara af honum og einn var ónýtur þannig að hann endurgreiddi mér ![]() Róbert BMW: Keypti af honum innréttingu í E36. Ég fór og náði í hana og fékk að setja hana í heima hjá honum. Gott verð og stóðst allt.. 2002tii: Keypti af honum ///M5. Vorum vinir fyrir og erum enn í dag. Hann er mjög heiðarlegur og leynir alls ekki neinu.. Ég vissi af hverji einustu rispu á bílnum þegar ég fékk hann. Fékk fulla þjónustubók og alla reikninga frá upphafi.. Fékk líka alla aukalykla og allt verkfærasettið var aftur í bílnum. Virkilega solid náungi ![]() ![]() ![]() Sæmi: Keypti af honum afturljós. Gott verð og hann setti þau í fyrir mig.. það var vel séð ![]() get mælt með fjórum.. |
Author: | Schulii [ Tue 15. Sep 2009 22:39 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Hér kemur eitt ELDGAMALT feedback but hey, it counts: Ég keypti E34 525i af Sæma flugkappa árið 2005. Innifalið í kaupunum var að einhver smá rafmagnsböggar yrðu í lagi. Það kom á daginn að þetta reyndist meira en útlit var fyrir í fyrstu. Sæmi tók bílinn í nokkra daga, og eins og sönnu séntilmenni sæmir skaffaði hann mér einu stykki E34 M5 til afnota á meðan á viðgerð stóð. Ég ákvað að vera sanngjarn á móti og sagði honum að vera ekkert að stressa sig of mikið á að laga þetta. Einn af þeim (fáu) sem þarf bara að segja hvernig hlutirnir ganga fyrir sig og þá treysti ég honum fullkomlega. Orð eru næg trygging. |
Author: | Alpina [ Tue 15. Sep 2009 23:00 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Schulii wrote: Hér kemur eitt ELDGAMALT feedback but hey, it counts: Ég keypti E34 525i af Sæma flugkappa árið 2005. Innifalið í kaupunum var að einhver smá rafmagnsböggar yrðu í lagi. Það kom á daginn að þetta reyndist meira en útlit var fyrir í fyrstu. Sæmi tók bílinn í nokkra daga, og eins og sönnu séntilmenni sæmir skaffaði hann mér einu stykki E34 M5 til afnota á meðan á viðgerð stóð. Ég ákvað að vera sanngjarn á móti og sagði honum að vera ekkert að stressa sig of mikið á að laga þetta. Einn af þeim (fáu) sem þarf bara að segja hvernig hlutirnir ganga fyrir sig og þá treysti ég honum fullkomlega. Orð eru næg trygging. Það fylgir ekki sögunni að Skúli mætti í skjóli myrkurs og sleit alla víra úr sambandi...... svo að hann gæti verið lengur með M5 ![]() ![]() |
Author: | SteiniDJ [ Wed 16. Sep 2009 00:24 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Snilld. ![]() En ein vísa sem menn ættu að hafa bakvið eyrun: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. |
Author: | Danni [ Wed 16. Sep 2009 01:13 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Mín viðskipti við menn hér á Kraftinum: JónP. Ég keypti af honum minn fyrsta BMW, E34 525iA '94, árið 2005. Ég keyrði alla leið til Laugarvatns að sækja bílinn og allt gekk eins vel og allt stóðst. Hannsi. Seldi honum fyrsta BMW-inn minn og allt fór vel þar. Jss (eða vinur hans). Minnir að það var Jss sem að setti inn auglýsinguna á PO-700, E36 320i '95, fyrir vin sinn. Ég keypti bílinn á góða verðinu því að hann var bilaður og ég ætlaði að swappa B25 í hann, sem ég gerði en kom honum aldrei í gang. Angelic0-. Seldi honum PO-700. Það gekk alls ekki vel, ég afhendi bílinn of snemma og fékk greitt allt allt of seint. Tók marga mánuði og varð mjög heitt í hamsi okkar á milli á því tímabili. Síðan gerði hann upp við mig og gott betur en umsamið og nú ríkir sátt á milli okkar. Djöfullinn. Ég keypti af honum læst drif í E34 bílinn minn, allt gekk upp þar á milli en drifið brotnaði fljótlega vegna þess að það fór rangur vökvi á það eftir að ég fékk það, svo ég keypti annað læst drif en ég get með engu móti munað hvar ég keypti það. Það var allavega af einhverjum hér á Kraftinum. Ég keypti líka af honum núverandi bimman minn, E39 540iA '99 nr2 og allt fór vel þar á milli. Arnar 540. Keypti TZ-278, E39 540 '99 nr1, af honum, tók yfir láni. Það var vesen með lánið vegna eins gjaldaga sem hvorugur okkur vildi meina að við áttum að greiða, endaði með að ég greiddi hann og var síðan rukkaður aftur vegna þess að hann var á hans nafni og VÍS tók bara peninginn en hélt áfram að rukka Arnar, sem að síðan rukkaði mig. Á lokum komumst við að því að mistökin voru algjörlega af hálfu VÍS og þeir gerðu úr þeim og það mál endaði vel. Björgvin. Skipti við hann á TZ-278 og NU-180, E46 330d Touring '01. Ein þægilegustu bílaviðskipti sem ég hef átt. Hann græjaði allt og allt stóðst, það var skemmdur framstuðari sem að hann átti að fá bætt og ég fór með hann í B&L þar sem það var lagað. VÍS, sem að átti að bæta tjónið, var enn og aftur með vesen og það fór allt út í þvílíka vitleysu og þeir ætluðu að rukka mig fyrir viðgerðina. Eitt símtal til Björgvins og málinu var reddað deginum eftir! kd. Nenni ekki að skrifa alla söguna. En ég skipti við hann á Breyton Vision felgunum sem ég keypti undir PO-700 og 16" Hartge felgum á ónýtum dekkjum og sprautun á húddinu á E39 bílnum mínum. Hann náði ekki að sprauta húddið vel og á endanum fór ég með það á verkstæði lét sprauta það þar. Þvílíkt vesen sem var í kringum þetta húdd en þegar hann loksins sá að hann gat ekki sprautað þetta vel þá lét hann mig fá pening í staðinn sem ég notaði til að borga verkstæðinu. Síðan er eflaust eitthvað sem ég er að gleyma en svona að mestu leiti hef ég átt góð viðskipti við fólkið hér af Kraftinum. |
Author: | Steini B [ Wed 16. Sep 2009 02:15 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Öll mín viðskipti á kraftinum hafa verið nokkuð solid, meira að segja við Uvis. Fyrir utan á milli okkar maxel, hefði samt verið ekkert mál hefði hann ekki misst sig smá í staðinn fyrir að ræða málin almennilega. Það endaði með rifrildi á milli okkar sem ég vildi að hefðu ekki gerst, vegna þess að maxel er annars mjög fínn strákur held ég... En mér fannst sérstaklega gott að eiga viðskipti við Jss, Einarsss, Sæma og Danna Djöful, topp náungar... |
Author: | sh4rk [ Wed 16. Sep 2009 02:50 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Öll mín viðskipti við fólk hérna á kraftinum hafa bara gengið flest öll vel Öll viðskipti við Sæma hafa verið solid og mjög gott að versla við hann Skúra Bjarki sama saga þar allveg solid Verslaði við Svezel eða það var bara vöru skipti má segja ég keypti af honum dekk og hann af mér drif sem gékk bara solid nema að ég klikkaði á smá atriði en það reddaðist Seldi Uvels eitthvað af fóðringum og drasli í E38 og það stóðst allt Keypti bmw af Stebba GST og það gekk bara solid Seldi svo Gunna GST sama bílinn og það var borgað í tvemur greiðslum Seldi stelpu sem kallar sig Force hérna á kraftinum BMW og það voru viðskipti sem fóru í súginn ekkert nema vesen og væl þannig að ég mæli ekki með viðskiptum við hana Hef á í smá viðskiptum við Danna djöful og gekk bara fínt |
Author: | Djofullinn [ Wed 16. Sep 2009 09:33 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
Slæmu viðskiptin: Einu slæmu viðskiptin sem ég man eftir á kraftinum eru við Viktor Angelico. Í stuttu þá skuldar hann mér ennþá fyrir E32 750 sem ég "seldi" honum. 200 þús kall eða svo. Hann hefur alltaf lofað hinu og þessu og ekkert gerst. Löngu eftir að hann fékk bílinn ætlaði hann að fara að taka út númerin og fara að nota bílinn en bíllinn var ennþá skráður á mig. Þá vildi hann fá að taka út númerin og skrá tryggingarnar á sig þrátt fyrir að ég væri enn skráður fyrir bílnum. Ég tók það ekki í mál en þar sem ég á það til að treysta fólki og halda að allir vilji vel þá lét ég hann plata mig í að skrá bílinn á sig, þá borgaði hann reyndar aðeins inn á skuldina. Ég hef að sjálfsögðu ekki fengið neitt eftir þetta. Ég hef margsinnis reynt að fá þennan pening, bílinn til baka eða einhverja aðra bíla eða hluti sem hann hefur verið að selja en ekkert hefur gengið. Góðu viðskiptin: Öll hin bara ![]() En í fljótu bragði man ég eftir þessum: Mázi - Hann fékk að borga bíl í nokkrum greiðslum, stóðst allt 100%. Grétar G - Algjör snillingur og allt hefur staðist 100%. Birgir Sig - Gekk allt snuðrulaust. Kom sá og keypti. Einarsss - Easy peasy. Ég millifærði og hann kom með stöffið. Astro - 100% gaur og allt gekk eins og smurt. Geirinn - Gekk vel bara, engin vandamál. Sh4rk - Drifið sem ég fékk passaði ekki en það var leyst og allir sáttir. Danni - Mjög gott að eiga viðskipti við hann. GSTuning - Virkilega hjálpsamur gaur sem reynir alltaf að þjónustu mann eins vel og hann getur. Steini B - Mega þægilegt að eiga viðskipti við hann. Engin vandamál. Sæmi - Skutlaði til hans lippi, góð viðskipti. Alpina - Skipti við hann á einhverju drasli, gekk bara 100%. Uvels - Hef átt nokkur góð viðskipti við hann. Slóraði við að skila inn eigandaskiptum en ég reddaði því. Jónas M3 - Keypti bíl af honum óséðann og hann var alveg eins og honum var lýst. Axel Jóhann - Hef keypt nokkra hluti af honum. Allt staðist og hlutirnir eins og hann lýsti þeim. GunnT - Virkilega gott að eiga viðskipti við hann og allt hefur staðist 100%. Nóg í bili, ég bæti við þegar ég man eftir öðrum ![]() |
Author: | doddi1 [ Wed 16. Sep 2009 13:23 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
mér sýnist flestir vera bara alger eðalmenni sem stunda kraftinn af einhverju viti ![]() ég keypti bílinn minn af DiddiTa og það er mikið eðalmenni, mjög þægileg viðskipti þar. svo skipti ég á felgum við bmwgæi, það var mjög þægilegur maður að díla við ![]() ![]() |
Author: | Birgir Sig [ Wed 16. Sep 2009 17:47 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
já danni, það eru nokkrir kaggarnir farnir í gegnum þína eygu hehe:D en já annars hef eg aldrei lent í neinum leiðindum hérna á kraftinum svo ég muni:D |
Author: | birkire [ Wed 16. Sep 2009 19:06 ] |
Post subject: | Re: Feedback þráður. |
HK Racing: Ég gaf honum 98 Civic og ég fékk beinskiptingu í bílinn minn, allt smooth þar á bæ og fint að eiga viðskipti við hann Svezel: Hetja sem bjargaði mér drifi í bílinn minn á engan pening ![]() Uvels: alveg treystandi að kaupa einhverja smáhluti af honum, allavega gegnum póstkröfu Pokoloko: Sendi mér 2 stífur í bílinn þéttpakkaðar, á góða verðinu og mjög fljótlega ![]() Ekki stundað nein stór viðskipti hérna en alltaf gengið flott fyrir sig |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |