bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
LSD 3.73 fyrir E30 - selt https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=12&t=29004 |
Page 1 of 2 |
Author: | Einarsss [ Wed 23. Apr 2008 20:43 ] |
Post subject: | LSD 3.73 fyrir E30 - selt |
Var að kaupa annað 3.25 frá útlöndum. Vegna þess verður núverandi drifið mitt til sölu á 45 þúsund stgr, það læsir fínt og er í góðu standi eftir minni bestu vitund. Hægt er að tryggja sér drifið með að borga mér 5k inná það og svo rest við afhendingu ... býst við að það verði sirka 3-4 vikur í það. Þetta er möst að hafa í E30 sem eru ætlaðir sem leiktæki ![]() hægt að fá þetta til að passa í E28 held með því að skipta um driflok og flangsa fyrir öxlana. uppl í PM, 892-4504 eða msn einarsig_@hotmail.com |
Author: | sh4rk [ Wed 23. Apr 2008 21:38 ] |
Post subject: | |
er þetta ekki stóradrifið??? |
Author: | Einarsss [ Wed 23. Apr 2008 21:46 ] |
Post subject: | |
júbb en þetta er líka SELT ![]() |
Author: | gunnar [ Wed 23. Apr 2008 21:50 ] |
Post subject: | |
Sææælll, snögg sala, hver verslaði ? ![]() |
Author: | sh4rk [ Wed 23. Apr 2008 22:13 ] |
Post subject: | |
að því sem ég best veit þá passar stóra drifið í E23 líka |
Author: | srr [ Wed 23. Apr 2008 23:26 ] |
Post subject: | |
sh4rk wrote: að því sem ég best veit þá passar stóra drifið í E23 líka Ábyggilega E24 líka þá?
|
Author: | Alpina [ Thu 24. Apr 2008 08:03 ] |
Post subject: | |
sh4rk wrote: að því sem ég best veit þá passar stóra drifið í E23 líka
![]() ![]() ![]() ![]() ![]() Fyrir nokkrum árum las ég grein um OFUR E46 bíla þar voru 3 á blaði ,, og einn var BREYTON 328 TURBO 500+ ps (( 1999-2000 )) eini möguleikinn til að halda drifinu saman var drif úr 745 E23 allt hitt sem var á markaðinum þá .. SMALLAÐIST hvernig E23 vs E46 drif gengur saman veit ég ekki,, eflaust innvolsið sem var mixað einhvern veginn saman |
Author: | gstuning [ Thu 24. Apr 2008 09:26 ] |
Post subject: | |
ÞEtta er nú meira vitleysan, það er algjörlega 100% að það er ekki hægt að treysta neinu sem kemur í miðlum, ég þekki nokkra sem hafa fengið bílanna sína í greinar og skringilega virðist sannleikurinn alltaf beyglast eitthvað frá þeim niður á pappír. annars ef M20 drif tekur 500+ sem væri minna E23 drifið þá tekur E46 drif alveg það sama. Það eru alveg nógu margir turbo 330i E46 eða SC keyrandi um með original drif sem sýna það. líklegast hægt að finna nóg af infoi á næsta E46 spjalli |
Author: | Alpina [ Thu 24. Apr 2008 13:55 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: ÞEtta er nú meira vitleysan,
það er algjörlega 100% að það er ekki hægt að treysta neinu sem kemur í miðlum, ég þekki nokkra sem hafa fengið bílanna sína í greinar og skringilega virðist sannleikurinn alltaf beyglast eitthvað frá þeim niður á pappír. annars ef M20 drif tekur 500+ sem væri minna E23 drifið þá tekur E46 drif alveg það sama. Það eru alveg nógu margir turbo 330i E46 eða SC keyrandi um með original drif sem sýna það. líklegast hægt að finna nóg af infoi á næsta E46 spjalli Það er alltaf hægt að treysta á visku þína Gunnar,, hún er ofar flestu þessa dagana ,, Héðan í frá mun ég gera þig að minni daglegu fyrirmynd |
Author: | gstuning [ Thu 24. Apr 2008 16:08 ] |
Post subject: | |
Ok, gerðu sjálfum þér greiða og reyndu nú að efast um það sem þú lest og reyna komast að því sjálfur hver staðann er. Ef eitthvað stendur í einhverju blaði er það bara satt og sannað, checkað og kannað fyrir þér? Ég efast um ALLT sem fólk er að segja tengt bílum og fer og leita mér frekari upplýsinga, því meira sem maður gerir af því því auðveldar sér maður í gegnum ruglið sem fólk trúir á og er að áframhaldandi að reyna að fá aðra til að trúa líka. Þú eða enginn hérna á spjallinu ætti að taka orð neins sem algildann sannleika, frekar grenslast aðeins og komast að því sanna. |
Author: | xtract- [ Thu 24. Apr 2008 16:17 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: Ok, gerðu sjálfum þér greiða og reyndu nú að efast um það sem þú lest og reyna komast að því sjálfur hver staðann er.
Ef eitthvað stendur í einhverju blaði er það bara satt og sannað, checkað og kannað fyrir þér? Ég efast um ALLT sem fólk er að segja tengt bílum og fer og leita mér frekari upplýsinga, því meira sem maður gerir af því því auðveldar sér maður í gegnum ruglið sem fólk trúir á og er að áframhaldandi að reyna að fá aðra til að trúa líka. Þú eða enginn hérna á spjallinu ætti að taka orð neins sem algildann sannleika, frekar grenslast aðeins og komast að því sanna. hvernig veistu hverju þú átt að trúa? og hvar leitaru þessara frekari upplýsinga? Mundu að þú sagðist efast allt.. |
Author: | Steinieini [ Thu 24. Apr 2008 16:27 ] |
Post subject: | |
Svona ef einhverjir fleirri eru að spá í drif þá verður mitt 4.10 eflaust up for grabs eftir að m20 byrjar að snúast ![]() |
Author: | gstuning [ Thu 24. Apr 2008 16:48 ] |
Post subject: | |
Árangri. Hvernig getur verið að einhver sé að runna meir enn 500hö á E30 með 325i drifi, enn svo er veikara drif í E46? Þar sem að það drif er stærra og er notað í bíl með 265hö(330i M54) og bílinn sjálfur er líka þyngri enn E30, og drifið var hannað til að endast bílinn? Ég nota internetið og les margt um það sama og tek svo meðaltalið af því sem fólk segir, sumir hafa hærri gildi í meðaltalinu því að ég hef lesið þá skrifa rétta hluti áður og eða þeir hafa verið að ná árangri sjálfir í því sem þeir eru að pósta um. Svo er gott að lesa bækur eftir verkfræðinga þar sem að hlutirnir eru útskýrðir í málum og myndum. Held ég taki orð einhverns Phd Vélaverkfræðings heldur enn einhverja sögusagna og eða internets orðróms(urban legend). Bækur eftir áhugamenn sem eru bara að skrifa bók til að skrifa bók og fá einhverja aura er ekki mikið vit í, byrja oft "I´m not an engineer of any kind but this book is about ....." Sérstaklega fínt að lesa SAE greinar þar sem að verkfræðingar innan framleiðandanna eru að senda inn greinar eftir sínar rannsóknir og miðla þeim með öðrum í Society of Automotive Engineers. Og það eru aðrir verkfræðingar/eðlisfræðingar/efnafræðingar/málmtæknifræðingar sem lesa þetta og geta gagnrýnt þá með öðrum innsendum greinum, ef allir eru sammála þá klárlega er ekki verið að fara með rangt mál. Það er ekki nóg að lesa bara og trúa, heldur lesa og skilja. Það hefur alltaf verið jafn gagnlegt að lesa. Hvort sem það er til gamans eða fróðleiks. internet spjöll eru oftast ekki góður staður fyrir nákvæmar upplýsingar þar sem að það er oft ekki verið að tala um staðreyndir heldur er fólk bara að viðra álit sitt án þess að geta bakkað það upp með staðreyndum. |
Author: | BirkirB [ Thu 24. Apr 2008 17:25 ] |
Post subject: | |
Það getur samt verið svo erfitt að finna góðar, nákvæmar og áræðanlegar upplýsingar á netinu. En eins og þú sagðir þá les maður oft um hlut á mörgum stöðum og tekur einskonar "meðaltal". en ot... |
Author: | IvanAnders [ Thu 24. Apr 2008 19:11 ] |
Post subject: | |
M54B30 í E46 er 231hö, ekki 265... |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |