þráðlaus handfrjáls búnaður fyrir GSM

Hér getur þú auglýst til sölu aukahluti og varahluti í BMW, ásamt bílgræjum.

þráðlaus handfrjáls búnaður fyrir GSM

Postby Schulii » Sun 21. Sep 2003 20:02

jæja drengir.. ég á nokkur stykki af svona þráðlausum handfrjálsum búnaði fyrir GSM síma.

Þessi búnaður virkar þannig að lítill sendir er settur á gemsann og síðan heyrir þú í viðmælanda þínum í hljómkerfi bílsins.

Þetta er mjög einfalt í uppsetningu og þetta er algjörlega þráðlaust. Sendirinn gengur fyrir rafhlöðu og ein aukarafhlaða fylgir. Síðan er vandalaust að fá þessa gerð af rafhlöðu á bensínstöðvum eða eitthvað.

Þessi búnaður lækkar ekki sjálfkrafa í græjunum eða neitt slíkt. Þú verður sjálfur að svara í símann og velja þá stöð sem sendirinn er stilltur á, enda er verðmismunurinn gríðarlegur.

Verðið er 5.500kr fyrir utan staðgreiðsluafslátt :wink: :lol:
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby arnib » Mon 22. Sep 2003 09:24

Í hvað talar maður? :)
BMW E46 328i
arnib
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3217
Joined: Fri 15. Nov 2002 17:12
Location: Vesturbærinn

Postby Schulii » Mon 22. Sep 2003 20:01

Míkrófónninn í gemsanum er notaður til að nema röddina þína. Málið er að það fylgir lítið stykki sem þú límir einhversstaðar fyrir framan þig á mælaborðinu og gemsinn fer á það.

Míkrófónar á gemsum eru mjög næmir og fæstir eru í raun að tala í þá þegar þeir tala í símann. Það að hafa hann aðeins fyrir framan sig virðist ekki skipta miklu máli.
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby E36HADDI » Tue 23. Sep 2003 08:53

Fyrir hvernig síma er þetta ?
Haddi
User avatar
E36HADDI
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 58
Joined: Wed 30. Apr 2003 14:03

Postby Schulii » Tue 23. Sep 2003 17:19

ALLA!! ..sendirinn er svona klemma sem maður setur utanum þar sem maður setur venjulega eyrað.. þarf að vera verulega brenglaður í útliti síminn til að þetta passi ekki!
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby Bjarki » Tue 23. Sep 2003 17:23

Er þessi búnaður samþykktur af Fjarskiptastofnun Íslands eða hvað það heitir???
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby Schulii » Wed 24. Sep 2003 20:24

WHAT!!!!

..fáðu þér bara núðlusúpu!!

Annars held ég að það sé alveg öruggt að þetta apparat var ekki sent til samþykktar hjá fjarskiptastofnun.

En þá vitum við það að ef Sæmi crashar einhverri vélinni hérna yfir höfuðborginni þá var vegna truflunar í búnaði vélarinnar sem má rekja til þráðlauss GSM búnaðar í bíl 10.000 fetum neðar :)

ATHUGIÐ VERÐLÆKKUN VEGNA ÓSAMÞYKKTAR: 4500.kr :D
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík

Postby BMW3 » Wed 24. Sep 2003 21:10

djöfull var þessi góður hahahahaha :D :D :D
Hell was full so i came back!
BMW3
Bannaður
 
Posts: 526
Joined: Mon 15. Sep 2003 16:31
Location: Reykjavík

Postby Bjarki » Wed 24. Sep 2003 22:38

Það var nefnilega hringt í félagi minn og honum boðið að kaupa svona græju. Þetta hljómaði mjög vel og hann ákvað að slá til og gaf upp kreditkortanúmer og átti svo bara að fá þetta sent um hæl.
Svo leið og beið og ekkert heyrðist frá sölumanninum góða. Það var svo ekki fyrr en félagi minn ætlaði að kæra sölumanninn fyrir þjófnað að hann fékk sendan búnað til sín. En það var ekki búnaður sem fór inn á FM-tíðni og þ.a.l. inn í útvarpið.
Þá datt mér í hug að þetta væri eitthvað ólöglegt......
Bjarki
E39: 540iA '98
User avatar
Bjarki
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2492
Joined: Sat 31. Aug 2002 15:11
Location: Reykjavík

Postby BMW 318I » Thu 25. Sep 2003 17:38

það er allavega hægt að fá svona í bílanaust svo þetta er ekki ólöglegt
'98 Image 316i
User avatar
BMW 318I
Getawaybílstjóri
 
Posts: 537
Joined: Mon 28. Apr 2003 11:05
Location: Kópavogur

Postby Schulii » Thu 25. Sep 2003 18:10

þetta sem ég er með fer á FM tíðni!!!

..ef það er enginn áhugi þá fer ég að skila þessu aftur. Ég var beðinn að redda einu svona fyrir eina konu en heildsalinn lét mig hafa böns og bað mig að reyna að selja eitthvað af þessu.. en eins og ég segi að ef það er enginn áhugi fer ég að henda þessu í hann aftur bara!!
BMW 520d E61
Schulii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2028
Joined: Mon 26. May 2003 21:06
Location: Reykjavík


Return to Til sölu - aukahlutir / varahlutir / hljómtæki

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 11 guests