bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Electronic Parts Catalog SELDUR https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=12&t=2734 |
Page 1 of 1 |
Author: | Davidthor [ Sun 21. Sep 2003 16:23 ] |
Post subject: | Electronic Parts Catalog SELDUR |
Er með BMW varahluta (Electronic Parts Catalog ) geisladisk til sölu, diskurinn sýnir varahlutateikningar, númer varahluta og fl. Hægt að leita eftir hlutum með því að stimpla inn VIN númer. Samskonar diskur og BMW umboð eru með til að leita að varahlutum. Frábær diskur þegar maður er að spá í varahlutum og aukahlutum. Fjallar um BMW bíla frá 1974-2001 og mótorhjól frá 1969-2001. Áhugasamir sendi póst á bmwdiskur@hotmail.com Verð 5000 kall Vel þess virði!! Sorry strákar Seldur!!! |
Author: | arnib [ Sun 21. Sep 2003 16:24 ] |
Post subject: | |
Hversu mikið kostar svona diskur? Er þetta nýjasta útgáfa? |
Author: | Djofullinn [ Sun 21. Sep 2003 16:24 ] |
Post subject: | |
Án þess að vera að dissa þig eitthvað þá held ég að það séu margir hérna sem eiga þetta og eru til í að skrifa þetta fyrir þá sem vilja, + það að menn geta náð í þetta á netinu ![]() |
Author: | arnib [ Sun 21. Sep 2003 16:26 ] |
Post subject: | |
Djöfullinn: Það fer nú eftir ýmsu, ég geri ráð fyrir því að þetta sé original diskar, ég væri gjarnan til í að eiga þannig. Fólk færi varla að auglýsa til sölu diska sem það hafði hugsað sér bara að skrifa copy af? Það er býsna ólöglegt ![]() |
Author: | Djofullinn [ Sun 21. Sep 2003 16:35 ] |
Post subject: | |
arnib wrote: Djöfullinn:
Það fer nú eftir ýmsu, ég geri ráð fyrir því að þetta sé original diskar, ég væri gjarnan til í að eiga þannig. Fólk færi varla að auglýsa til sölu diska sem það hafði hugsað sér bara að skrifa copy af? Það er býsna ólöglegt ![]() Já mikið til í því Árni, en reyndar hef ég nú nokkrum sinnum séð á erlendum spjallvefjum svona skrifaða diska til sölu. En ef við erum að tala um orginal diska þá er þetta allt annað mál ![]() En fyrir mína parta skiptir það mig engu hvort diskur sem ég á er orginal eða skrifaður svo lengi sem ég er með draslið ![]() |
Author: | Djofullinn [ Sun 21. Sep 2003 16:36 ] |
Post subject: | |
En bara svona til að hafa þetta á hreinu, eru þetta orginal diskar eða skrifaðir? |
Author: | Bjarki [ Sun 21. Sep 2003 17:12 ] |
Post subject: | |
Ég á svona diska líka ef einhver vill þá má hann fá þá gefins hjá mér. Það er viðtekin venja að menn skrifi svona fyrir hvorn annan án endurgjalds á svona spjallborðum. Ég er náttúrlega bara með afrit sem ég fékk sent frá útlöndum af spjallborði. Held það myndu fáir kaupa þessa diska! En veit hins vegar að BMW hefur grætt slatta á mér því ég er oft að panta eitthvað sem mér dytti aldrei í hug að væri til eða myndi aldrei fara að spyrja um hjá B&L. Einnig mjög hjálplegt þegar maður er erlendis að vera bara með lista með partanúmerum. Minn diskur er reyndar ekki nýjasta útgáfa og ef menn eru með mjög nýlega útgáfu þá mega þeir gjarnan láta mig vita. Ég er með útgáfu 06/2000 ekki alveg það nýjasta. Ég á hinsvegar innan við ársgömu verð frá þýskalandi. Mjög þægilegt get reiknað út verð í B&L með oft ótrúlegri nákvæmni með því að tvöfalda þýsku verðin! |
Author: | saemi [ Sun 21. Sep 2003 17:18 ] |
Post subject: | |
Ég á til Original partadisk "I/99" ásamt original "Reparaturanleitung BMW 628csi- M635csi, Baujahr 75-89". Call me crazy en ég keypti þetta nú bara nýtt hjá BMW umboði. Verst við partadiskinn að það eru ekki nýrri bílar en c.a. 80-85 módel. Mig vantar soldið disk yfir E28, E34 og nýrri. Sæmi |
Author: | gstuning [ Sun 21. Sep 2003 23:47 ] |
Post subject: | |
Ég gat ekki keypt þessa diska í B&L sagði að það væri óhugsandi að BMW myndi fara að gefa út svona diska, |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |