bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Viltu læst drif í E-39? Eitt komið í 540i, SELD! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=12&t=20106 |
Page 1 of 6 |
Author: | saemi [ Thu 08. Feb 2007 10:06 ] |
Post subject: | Viltu læst drif í E-39? Eitt komið í 540i, SELD! |
Er með til sölu læst drif í E39. Viltu setja læst drif í 540i bílinn þinn? Spólaðirðu gamla drifið út í geim og vantar nýtt? Þá er ekkert svalara en að "öppgreida" með því að setja læst drif í staðinn sem kostar miklu minna en að kaupa nýtt. Þetta er M5 E39 drif. Sem nýtt, EKKERT slag í því, leki né neitt svoleiðis. Öxlarnir fylgja með. Það þarf að stytta drifskaftið ef þetta á að fara undir 540i, ásamt því að setja millistykki fyrir festingu á því (lítið mál). Verðið er: 150.000.- Tek einnig upp í drif úr 540i ef menn vilja, á 50.000.- Þetta stendur inni í skúr hjá mér, bíður eftir að fara undir bíl. Sæmi smu@islandia.is |
Author: | gunnar [ Thu 08. Feb 2007 10:25 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() ![]() ![]() Týpískt samt að núna þegar þetta býðst að allir verði kellingar og hrökkvi fremur en að stökkva. |
Author: | Kull [ Thu 08. Feb 2007 10:40 ] |
Post subject: | |
Freistandi að fá sér eitt svona á díselinn en kannski ekki þess virði ![]() |
Author: | gstuning [ Thu 08. Feb 2007 10:43 ] |
Post subject: | |
Kull wrote: Freistandi að fá sér eitt svona á díselinn en kannski ekki þess virði
![]() hvað meinarru ![]() fyrsti "sport" dísilinn á landinu |
Author: | Djofullinn [ Thu 08. Feb 2007 10:48 ] |
Post subject: | |
Shit þetta er gott verð! Svipað verð og svona drif kosta úti notuð. Held að menn ættu að vera fljótir að stökkva því þetta býðst ekki oft. |
Author: | hauksi [ Thu 08. Feb 2007 11:22 ] |
Post subject: | |
Hvernig væri svona í 540iA bíl ![]() |
Author: | Einsii [ Thu 08. Feb 2007 11:26 ] |
Post subject: | |
Núna langar mig í 540i 6 gíra ![]() |
Author: | saemi [ Thu 08. Feb 2007 11:30 ] |
Post subject: | |
hauksi wrote: Hvernig væri svona í 540iA bíl
![]() ![]() Svona nema pústið öðruvísi ![]() ![]() ![]() |
Author: | Djofullinn [ Thu 08. Feb 2007 11:38 ] |
Post subject: | |
Einsii wrote: Núna langar mig í 540i 6 gíra Var einmitt að hugsa hvað mig langar í gamla minn aftur, bláa 6 gíra. Og kaupa þetta drif ![]() ![]() |
Author: | hauksi [ Thu 08. Feb 2007 11:44 ] |
Post subject: | |
Ég er að spá í hvernig akstureiginleikarnir væru og hvort það væri mikill munar á að hafa svona í sjálfskiptum bil? Vitið þið um einhvern með læst drif í sjálfskiptum? |
Author: | Djofullinn [ Thu 08. Feb 2007 11:47 ] |
Post subject: | |
hauksi wrote: Ég er að spá í hvernig akstureiginleikarnir væru og hvort það væri mikill munar á að hafa svona í sjálfskiptum bil? Vitið þið um einhvern með læst drif í sjálfskiptum? Ekkert öðruvísi en að vera með læst drif í beinksiptum
|
Author: | Svezel [ Thu 08. Feb 2007 11:47 ] |
Post subject: | |
læst drif er alltaf kostur, skiptir engu máli hvernig skiptingu þú ert með. svo eru þetta aðeins lægri hlutföll en orginal í 540 svo hann ætti að verða sprækari af stað líka => tómir kostir! |
Author: | saemi [ Thu 08. Feb 2007 12:20 ] |
Post subject: | |
hauksi wrote: Ég er að spá í hvernig akstureiginleikarnir væru og hvort það væri mikill munar á að hafa svona í sjálfskiptum bil? Vitið þið um einhvern með læst drif í sjálfskiptum?
Þú getur náttúrulega tekið meira á bílum sem eru beinskiptir. En það eru margir bílar sem eru sjálfskiptir og eru með læst drif. T.d. er 540 bíllinn með það mikið afl að það er samt sem áður hægt að taka vel á honum þó að hann sé sjálfskiptur. En það er bara ekkert gaman því hann er ekki með læst drif. Einnig eyðileggur það drifið að vera að spóla á bílnum ólæstum. Í snjó er líka alveg ómetanlegt að hafa læst drif. Spólvörnin segir mikið en læst drif er snilld. |
Author: | Jón Ragnar [ Thu 08. Feb 2007 12:31 ] |
Post subject: | |
DJÖFULL!!!! Núna væri ég til í pening ![]() |
Author: | JOGA [ Thu 08. Feb 2007 12:42 ] |
Post subject: | |
Nú vildi ég að ég ætti / væri: 1. Pening 2. 540i 6g. 3. Ekki á leiðinni í nám. 4. Pening Þetta er etthvað sem 540i öskrar á!! |
Page 1 of 6 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |