bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

BMW E30 325i Cabriolet '89 - seldur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=8486
Page 1 of 6

Author:  arnib [ Wed 08. Dec 2004 02:42 ]
Post subject:  BMW E30 325i Cabriolet '89 - seldur

Bíllinn minn er til sölu.

Stutta útgáfan
BMW E30 325iC '89 (170 hestöfl), kom til landsins 2001.
3 eigendur (2 á íslandi)
Kraftpúst, K&N sía, LSD, Powertech fjöðrun (60/40 lækkun)
Svart leður, 4ra sæta total (tvískipt aftursæti).
14" stálfelgur/koppar á sumardekkjum
15" Ronal á lélegum/ónýtum dekkjum.


Langa útgáfan
Þetta er BMW E30, '89 árgerð, af 320i Cabriolet (blæju).
Ég er síðan sjálfur búinn að setja í hann 325i vél, 170 hestöfl
og blæjubílarnir koma allir með diskabremsum að aftan, og þykkari
swaybars, svo í raun mætti kalla þennan bíl 325iC.

Vélin sem er í honum kemur úr 325iS bílnum hans Gunna (GSTuning)
og hún á að vera í mjög góðu standi, enda alltaf þjónustuð af
vel þekktu verkstæði úti í bandaríkjunum, og þeir vita þar að það
þarf að ventlastilla svona vélar á ákveðnum fresti.

Við hana er síðan hengt "kraftpúst" smíðað af Einari (áttavillta),
og K&N Loftsía er í orginal loftsíuboxinu.

Ég skipti um drif í bílnum, setti í hann læst drif með hlutfallið
3,91:1 í stað 3,73:1 sem er orginal í 325i.
Það er engin spurning að svona læsing bætir bílinn óendanlega mikið
í snjó og hálku, bíllinn kemst gjörsamlega hvert sem er, en síðast
en ekki síst bætir hún við "100 hestöflum af skemmtun" eins og
vinur minn orðaði það.

Ég skipti líka um fjöðrunarkerfi í bílnum, gorma og dempara saman
í setti frá Powertech sem lækka bílinn um 60mm/40mm og er mun
stífara heldur en orginal.

Bíllinn er ekinn rétt um 150 þúsund, vélin sennilega nær 200 þúsund.
Í ljósi þess að hún hefur góða þjónustusögu og gott hljóð myndi
ég telja að hún væri í mjög góðu ástandi.

Eigendaferill bílsins er stuttur og laggóður.
Upprunalegur eigandi bílsins bjó á Ítalíu og er bíllinn keyptur þar.
Hann átti hann í 7 ár eða svo.
Því næst kaupir Íslendingur bílinn af honum, og á hann úti í einhvern
tíma og flytur hann svo heim til Íslands 2001.
Ég keypti hann síðan af honum 2003, og er þar með þriðji eigandi bílsins,
annar á íslandi.

Innréttingin sem er í bílnum er að mínu mati sú allra flottasta sem hægt
er að fá í E30, þ.e. svartir leðraðir körfustólar, og tvískipt aftursæti.
Í bílnum er að sjálfsögðu CHECK tölva, sem lætur mann vita af helstu
vandamálum - sprungnum perum, lágu olíumagni, lágu kælivatnsmagni.

Hvað varðar blæjuna sjálfa þá hefur hún ekki verið til neinna vandræða
á þeim tíma sem ég hef átt bílinn. Blæjan sjálf er nýleg, þar sem að
brotist var inn í bílinn áður en hann kom til landsins og blæjan skorin.
Blæjan sjálf lekur aldrei, en í mestu rigningarDEMBUNUM eiga listar yfir
rúðum frammí það til að dropa.

Eflaust er hægt að kaupa nýja lista eða álíka, en þetta hefur aldrei
verið neitt vandamál svo ég hef lítið velt því fyrir mér.

Bíllinn selst frekar illa skóaður, þ.e. á stálfelgum/sumardekkjum með koppum,
og fylgja með honum 15" RONAL felgur með ónýtum dekkjum á. Þær eru ekki í
sérstaklega góðu ástand, en alveg nothæfar.

Image
Mynd tekin 06.12 2004

Fleiri myndir koma fljótlega, t.d. af innréttingu og slíku.

Bíllinn er skoðaður (25.10.2004).

Ásett verð er 699.990 kr.

Nánari upplýsingar fyrir áhugasama
- Hérna á þræðinum
- í PM
- email arnib@bmwkraftur.is
- sími 862-6862

Author:  bebecar [ Wed 08. Dec 2004 07:21 ]
Post subject: 

Jæja... nú hlýtur eitthvað að vera í bígerð! Fallegur bíll og verðið sýnist mér vera mjög sanngjarnt. Það ætti allavega ekki að vera mögulegt að koma blæju í þetta góðu standi heim fyrir minni pening.

Author:  Kristjan [ Wed 08. Dec 2004 09:14 ]
Post subject: 

Cabrio og M3 eru einu E30 sem ég fíla.

Ótrúlega fallegur hjá þér og góður prís.

Author:  Einsii [ Wed 08. Dec 2004 11:47 ]
Post subject: 

Eðal hagkaupsverð ;).. Og ég sem hélt að ég væri buinn að ákveða mig að halda mínum eitthvað áfram..En nuna fer maður að spá... 8)
Ertu eitthvað til í skipti ?

Author:  arnib [ Wed 08. Dec 2004 12:04 ]
Post subject: 

Ég er tilbúinn að skoða skipti, en milligjöf þarf helst að vera töluverð.
En maður skoðar auðvitað bara hvert mál fyrir sig :)

Author:  jonthor [ Wed 08. Dec 2004 12:39 ]
Post subject: 

Já þetta virðist vera eðaleintak, langaði alltaf að sjá hann hjá þér. Örugglega toppbíll, mér finnst alltaf mjög traustvekjandi þegar menn vita allt um bílinn fyrir sína tíð ;)

Author:  Alpina [ Wed 08. Dec 2004 18:42 ]
Post subject: 

Án vafa einhvar skemmtilegasta aksturstilfinning sem hægt er a upplifa
í bil,,,,,,,,toppurinn niðri og >>>> standing blue í góða veðrinu

Ótrúlega gaman að þrusa um vegi landsins,, ekkert topplúgu bull heldur tuskan niðri og þytur í hári,,,,, FRÁBÆRT..
þetta eru dýrir bílar og hverrar krónu virði

Author:  bebecar [ Wed 08. Dec 2004 19:48 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Án vafa einhvar skemmtilegasta aksturstilfinning sem hægt er a upplifa
í bil,,,,,,,,toppurinn niðri og >>>> standing blue í góða veðrinu

Ótrúlega gaman að þrusa um vegi landsins,, ekkert topplúgu bull heldur tuskan niðri og þytur í hári,,,,, FRÁBÆRT..
þetta eru dýrir bílar og hverrar krónu virði


Þeir geta verið bílar, en að mínu mati eru þetta nú með ódýrustu blæjubílum sem hægt er að fá og kjarakaup! Hvernig færðu 6 strokka blæjubíl í topp standi fyrir 4500 evrur, nema það sé BMW þristur? :wink:

Author:  Jónas [ Wed 08. Dec 2004 20:41 ]
Post subject: 

Strákar, þið verðið bara sköllóttir á þessu ;)

Neinei, öllu djóki frá.. GULLfallegur bíll :D :wink:

Author:  jens [ Wed 08. Dec 2004 23:38 ]
Post subject: 

Æðislegur bíll hjá þér, einn af mínum topp 3 BMW bílum. Ertu til í að taka meira að myndum af honum bæði utan og innan og setja hér eða bara jens@best.is

Author:  arnib [ Wed 08. Dec 2004 23:57 ]
Post subject: 

Er að vinna í að græja fleiri myndir, og þær koma á næstunni.

Það er einhver myndavélaskortur í gangi :)

Author:  arnib [ Thu 09. Dec 2004 00:14 ]
Post subject: 

Ein mynd hérna sem sýnir innréttinguna ágætlega,
frekar skrýtin vera þess að við kunnum ekki nógu vel á
myndavélina, en sýnir það sem sýna þarf þar til ég verð
kominn með betri :)


Image

Author:  arnib [ Thu 09. Dec 2004 18:36 ]
Post subject: 

Úps, sá að ég hafði skrifað emailið mitt vitlaust.
Ef einhver hefur ætlað að hafa samband í gegnum það þá er það
arnib@bmwkraftur.is :o

Author:  ses [ Mon 13. Dec 2004 22:13 ]
Post subject:  Vá..

Vá, blæjan til sölu, ég samhryggist Árni, hlýtur að vera sárt að sjá á eftir henni, enda æðislegur bíll. Ég hef fylgst aðeins með þessum bíl hjá honum Árna úr aftasta aftasta áhorfendabekk, og ég get sagt þeim sem hafa áhuga, að hann hefur fengið miiikið TLC þessi bíll, og hann þrælvirkar :-)

Ég verð líka að segja, að hann hefur alveg æææðislega pósu með þessa fjöðrun, alveg svona growling tiger stance :-P

Author:  SUBARUWRX [ Tue 14. Dec 2004 16:22 ]
Post subject: 

rosalegur bíll

Page 1 of 6 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/