Bíllinn minn er til sölu.
Stutta útgáfan
BMW E30 325iC '89 (170 hestöfl), kom til landsins 2001.
3 eigendur (2 á íslandi)
Kraftpúst, K&N sía, LSD, Powertech fjöðrun (60/40 lækkun)
Svart leður, 4ra sæta total (tvískipt aftursæti).
14" stálfelgur/koppar á sumardekkjum
15" Ronal á lélegum/ónýtum dekkjum.
Langa útgáfan
Þetta er BMW E30, '89 árgerð, af 320i Cabriolet (blæju).
Ég er síðan sjálfur búinn að setja í hann 325i vél, 170 hestöfl
og blæjubílarnir koma allir með diskabremsum að aftan, og þykkari
swaybars, svo í raun mætti kalla þennan bíl 325iC.
Vélin sem er í honum kemur úr 325iS bílnum hans Gunna (GSTuning)
og hún á að vera í mjög góðu standi, enda alltaf þjónustuð af
vel þekktu verkstæði úti í bandaríkjunum, og þeir vita þar að það
þarf að ventlastilla svona vélar á ákveðnum fresti.
Við hana er síðan hengt "kraftpúst" smíðað af Einari (áttavillta),
og K&N Loftsía er í orginal loftsíuboxinu.
Ég skipti um drif í bílnum, setti í hann læst drif með hlutfallið
3,91:1 í stað 3,73:1 sem er orginal í 325i.
Það er engin spurning að svona læsing bætir bílinn óendanlega mikið
í snjó og hálku, bíllinn kemst gjörsamlega hvert sem er, en síðast
en ekki síst bætir hún við "
100 hestöflum af skemmtun" eins og
vinur minn orðaði það.
Ég skipti líka um fjöðrunarkerfi í bílnum, gorma og dempara saman
í setti frá Powertech sem lækka bílinn um 60mm/40mm og er mun
stífara heldur en orginal.
Bíllinn er ekinn rétt um 150 þúsund, vélin sennilega nær 200 þúsund.
Í ljósi þess að hún hefur góða þjónustusögu og gott hljóð myndi
ég telja að hún væri í mjög góðu ástandi.
Eigendaferill bílsins er stuttur og laggóður.
Upprunalegur eigandi bílsins bjó á Ítalíu og er bíllinn keyptur þar.
Hann átti hann í 7 ár eða svo.
Því næst kaupir Íslendingur bílinn af honum, og á hann úti í einhvern
tíma og flytur hann svo heim til Íslands 2001.
Ég keypti hann síðan af honum 2003, og er þar með þriðji eigandi bílsins,
annar á íslandi.
Innréttingin sem er í bílnum er að mínu mati sú allra flottasta sem hægt
er að fá í E30, þ.e. svartir leðraðir körfustólar, og tvískipt aftursæti.
Í bílnum er að sjálfsögðu CHECK tölva, sem lætur mann vita af helstu
vandamálum - sprungnum perum, lágu olíumagni, lágu kælivatnsmagni.
Hvað varðar blæjuna sjálfa þá hefur hún ekki verið til neinna vandræða
á þeim tíma sem ég hef átt bílinn. Blæjan sjálf er nýleg, þar sem að
brotist var inn í bílinn áður en hann kom til landsins og blæjan skorin.
Blæjan sjálf lekur aldrei, en í mestu rigningarDEMBUNUM eiga listar yfir
rúðum frammí það til að dropa.
Eflaust er hægt að kaupa nýja lista eða álíka, en þetta hefur aldrei
verið neitt vandamál svo ég hef lítið velt því fyrir mér.
Bíllinn selst frekar illa skóaður, þ.e. á stálfelgum/sumardekkjum með koppum,
og fylgja með honum 15" RONAL felgur með ónýtum dekkjum á. Þær eru ekki í
sérstaklega góðu ástand, en alveg nothæfar.
Mynd tekin 06.12 2004
Fleiri myndir koma fljótlega, t.d. af innréttingu og slíku.
Bíllinn er skoðaður (25.10.2004).
Ásett verð er 699.990 kr.
Nánari upplýsingar fyrir áhugasama
- Hérna á þræðinum
- í PM
- email
arnib@bmwkraftur.is
- sími 862-6862