Hehehe... það vantar fleiri almennilega bílasala hér heima. Einhverja sem að búllsjitta ekki og spara manni tíma með því að vera hreinskilnir.
PS, ég er að leita ráða til að ná mér í þennan 518, hefði samt heldur kosið að hann væri á 170 og 528 bíllinn á 220
það hefði hentað mér betur sko!
En það þýðir ekkert að væla um það enda finnst mér verðin á þeim báðum hörkugóð eins og ég sagði.
Eitt annað langar mig að segja með verð og bíla. Þegar ég auglýsti M5 bílinn fyrst til sölu þá var það í hálfkæringi, ég var ekki búin að finna íbúð og maður auglýsti svona meira að gamni, kannski yrði maður heppinn og fengi gott verð. En það gerðist ekki þó áhuginn væri gífurlegur þá var alltaf einhver fyrirstaða, það var hinsvegar ekki alltaf verðið heldur uppítakan! En þegar ég seldi Loga loksins bílinn þá var ég búin að reka hann í hálft ár og bara bensínkostnaður þann tíma var tæp 200 þúsund. Það er því auðvitað lang hagstæðast ef maður þarf að selja að hafa verðið lágt, vera stífur á því og selja strax... spara sér tíma, sölulaun og uppítökuvesen og þar með peninga.
Ég ætti nú einhverntímann að þylja upp hér hvaða dílar voru í gangi með minn M5 og sumir alls ekki slæmir ef um aðra menn en mig væri að ræða.
Mig langar líka að minnast á að stundum þarf maður aðeins að horfa inn fyrir bókakápuna, ég hef skoðað bíla sem engin myndi líta við á bílasölu vegna þess að þeir voruskítugir og öskubakkinn fullur af sígarettum. En verðið var rétt og bíllinn í hörkufínu standi. Það eina sem þurfti að gera var að þrífa hann vel og ditta að smáatriðum í útliti. Ég keypti þennan tiltekna bíl og hann reyndist einn sá áreiðanlegasti sem ég hef átt, top þrjú hiklaust.
Svo að lokum vil ég vona að Raggi láti neikvæð ummæli um bílinn ekki á sig fá og mæti tvíelfdur til leiks á spjallið - það væri mikill söknuður ef að hann forðaðist spjallið vegna þess sem á undan er farið.