Ég held að það sé smá misskilningur í gangi hérna.
Þetta er M5 og bara sem slíkur þá er þetta geggjaður bíll - ég veit það auðvitað.
Það sem Sveinbjörn er hinsvegar að segja er að miðað við 1400 þúsund þá sé hann "fjxx" þori varla að hafa þetta eftir hér
Hér á spjallinu er mikið að mjög misjöfnum bílum og það er bara eðli svona klúbbs... sumir bílar eru að versna á meðan aðrir eru í endurgerð.
Allir hér hafa áhuga og það er það sem skiptir máli, ég á bíl sem að ég tel í mjög góðu standi enda er maður að miða við aldur hans, samt er eitt og annað sem mætti gera.
Ég held að málið sé bara það að Sveinbjörn er afskaplega raunsær þegar kemur að verðum á þessum bílum og ég veit það alveg því honum fannst minn of dýr og ég var heldur ekkert ósammála honum í því (enda fór hann ekki á því verði). Hann því við það að þinn M5 sé alltof dýr á 1400 þúsund.
Við getum með sömu rökum sagt að ef hann væri t.d "in theory" á 800 þúsund að þá sé hann rosa bargain.
Ég held að menn verði aðeins að sjá hlutina í samhengi - en auðvitað er þetta ekkert skemmtilegt. Maður er mjög hörundsár með sína bíla en stundum veit maður innst inni að maður er að bulla (með verð). Ég setti 1750 á minn upphaflega sem er 100% óraunhæft, en bara vegna þess að bílasalinn setti þetta verð á hann.
Á vissan hátt skammast ég mín pínkulítið fyrir verðið sem ég seldi hann á, hefði getað fengið hærra ef ég hefði beðið fram á sumar eða haft meiri þolinmæði. En það er fleira sem skiptir máli.
Ég fékk góðan kaupanda og skemmtilegan bíl uppí og er afskaplega sáttur.
Ég hefði ekki selt hverjum sem er á því verði sem hann fór á.
Það líka dýrt að lagfæra það sem er að, dekk í 18" kosta 200 þúsund, sprautun kannski 100, svo er eitthvað fleira sem þarf að laga.