bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

SELDUR: E34 520i Touring 1992 + Partabíll
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=69861
Page 1 of 1

Author:  Axel Jóhann [ Tue 13. Sep 2016 15:08 ]
Post subject:  SELDUR: E34 520i Touring 1992 + Partabíll

Til sölu
E34 520i Touring 1992
2.0L M50B20 Vanos 150hö.
Beinskiptur
Ekinn 164.000km
Óslitin tau sæti með armpúðum
Dráttarkrókur
16" Álfelgur
Rafmagn í rúðum frammí
Panorama topplúga

Virkilega þéttur og lítið slitinn bíll miðað við aldur enda var hann fluttur inn 2007. Eyðslan er að jafnaði 10L / 100km innanbæjar og mótor í góðu standi.
Bíllinn er sáralítið ryðgaður. Aðeins yfirborðstaumar á nokkrum stöðum.
Það er tjónað afturbrettið hægra megin eftir að bíllinn fór á bryggjupolla í hálku, það þarf að skipta um brettið og innrabrettið.

Með bílnum fylgir annar E34 525ia touring 1994 en hann er töluvert mikið ryðgaður og vélar og skiptingarlaus.
Í þeim bíl er læst drif, ljós leðurinnrétting og OEM webasto bensínmiðstöð, ásamt öllum boddýhlutum sem þarf til að laga afturbrettið á hvíta bílnum.

Þetta er heillegasti og þéttasti e34 sem ég hef átt enda ansi lítið keyrður en það þarf að leggja smá vinnu í hann til að gera hann flottan aftur. En bíllinn er í fínu ástandi til að nota dags daglega.
Það er nánast ný vatnsdæla, vatnslás og vatnsláshús í bílnum og nýr frostlögur.
Númer liggja inni og bíllinn þarf að fara í skoðun þegar þau verða tekin út, eina sem ég veit að er að honum er spindilkúla og handbremsan.

Þessir bílar eru til sölu á 500.000 ef einhver vill ná sér í góðan bíl til að gera flottann. Skoða að taka aðra bíla eða snjósleða uppí.
Allar frekari upplýsingar eru í gegnum síma 695-7205
Axel Jóhann

Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Varahlutabíllinn
Image

Author:  Axel Jóhann [ Thu 06. Oct 2016 19:09 ]
Post subject:  Re: TS: E34 520i Touring 1992 + Partabíll

Enn til, skoða öll tilboð staðgreiðslu eða skipti.

Author:  Axel Jóhann [ Sun 09. Oct 2016 12:06 ]
Post subject:  Re: TS: E34 520i Touring 1992 + Partabíll

Upp með þennan :D

Author:  Axel Jóhann [ Sun 13. Nov 2016 02:49 ]
Post subject:  Re: TS: E34 520i Touring 1992 + Partabíll

upp

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/