Page 1 of 1

[SELDUR] '91 BMW 520ia - Style 5, Ekinn 161k

PostPosted: Thu 28. Jul 2016 00:12
by Emil Örn
Til sölu 1991 BMW 520i ekinn aðeins 160.xxx km.

Þessi bíll var á Vopnafirði í 19 ár, frá '97-'16 í eigu sama mannsins sem hugsaði mjög vel um hann og er hann í mjög góðu standi vélarlega og innréttingalega séð. Bíllinn er allur lygilega þéttur og góður. Eini raunverulegi galli bílsins er lakkið og felgurnar, sem eru skakkar og ljótar. Ásamt því að hliðarlistarnir eru orðnir slappir, eins og algengt er í E34. Nánast ekkert ryð fyrir utan yfirborðsbólur á hinum og þessum stöðum, örlítið neðan á hurðum og í kringum bensínlok.

Allir hlutir bílsins eru upprunalegir fyrir utan sjálfskiptingu, útvarpið, vinstra framþokuljós og vinstra afturljós (að minni vitneskju).
Ég læt myndirnar tala sínu máli, annars er sjón sögu ríkari.


Helstu upplýsingar:
Liturinn heitir Brokatrot
Sjálfskiptur
2.0L M50B20 Non-Vanos
Nýleg Continental sumardekk.
Skoðaður 2017 (án athugasemda)
Skráður sem fornbíll


Verð:
680.000 kr (með Style 5)
530.000 kr (án Style 5)

Hafið samband í síma 844-6373.

Fleiri myndir:
https://www.facebook.com/groups/bmw.ice ... 0442574746


Image

Image

Image


Image

Image

Image

Image

Image

Image

Re: [TS] '91 BMW 520ia - Ekinn 160 þús [TS]

PostPosted: Thu 28. Jul 2016 23:24
by saemi
Hrikalega flottur litur

Re: [TS] '91 BMW 520ia - Ekinn 160 þús [TS]

PostPosted: Sun 31. Jul 2016 01:36
by Emil Örn
saemi wrote:Hrikalega flottur litur


Sammála, ef ég ákveð að sprauta hann þá held ég litnum.

Hann er líka breytilegur, í hádegissólinni er hann vínrauð-fjólublár, en í kvöldsólinni brúnn.

Re: [TS] '91 BMW 520ia - Brokatrot - Style 5 - Ekinn 161k [T

PostPosted: Thu 04. Aug 2016 19:09
by Emil Örn
Nýjar myndir

Re: Nýjar myndir!! [TS] '91 BMW 520ia - Style 5, Ekinn 161k

PostPosted: Fri 05. Aug 2016 07:45
by Alpina
Smekklegur bíll