bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Seldur
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=69437
Page 1 of 1

Author:  Hreiðar [ Tue 08. Dec 2015 11:18 ]
Post subject:  Seldur

Tilboð 300 þús kr!

Til sölu metanbreyttur BMW E39 Touring
BMW 523i Touring
1997 árgerð - Innfluttur 2011
Ekinn 380þús. km.
Bensín/Metan
Sjálfsskiptur með steptronic
Svart tau (mjög vel með farið og snyrtilegt)
Litur: Grænn (324 Oxfordgruen)

Staðalbúnaður:
Xenon
Spólvörn, ásamt ABS
Rafmagn í rúðum að framan
Fjarstýrðar samlæsingar
Fylgja með 3 lyklar
Þokuljós að framan
Tvískipt miðstöð

Þjónusta:
Búið að skipta um 2stk ABS-skynjara, ventlalokspakkningu ásamt nýrri síu í sjálfskiptinguna. Sett Mobil 1 á hann í 298.779 km.
Bíllinn er með mjög góða þjónustubók, það hefur aldrei verið trassað að skipta um olíu, bremsuvökva oþh.
Það sem stendur upp úr er METAN kerfið sem sett var í bílinn úti. Það kostar 2350 að fylla kútinn og hann dugir í kringum 200km (170-230) eftir akstri. Miðað við þetta, þá er þetta að koma út kostnaðarlega eins og bíllinn sé að eyða 5L á hundraðið (kostar 1175 að keyra 100km).
Kerfið er af BRC gerð, var sett í 2005 og kostaði þá 5300EUR (ca. 780.000 kr. ISK).

Bifreiðagjöld 5.350 kr. önnin !

Verð: 350.000 kr. staðgreitt
sem mér finnst bara gott verð fyrir e39 touring sem er ökuhæfur og skoðaður :)

Image

Author:  Hreiðar [ Sat 12. Dec 2015 00:21 ]
Post subject:  Re: BMW E39 Touring - 350 þús kr!

Vantar engum ódýran touring ?

Author:  Angelic0- [ Sat 12. Dec 2015 02:38 ]
Post subject:  Re: BMW E39 Touring - 350 þús kr!

Hvernig er þessi bíll ekki seldur :?:

Author:  Hreiðar [ Sat 12. Dec 2015 13:05 ]
Post subject:  Re: BMW E39 Touring - 350 þús kr!

Angelic0- wrote:
Hvernig er þessi bíll ekki seldur :?:


Ótrúlegt og fólk heldur áfram að bjóða mér 200-250 þús kr :x

Author:  Angelic0- [ Tue 15. Dec 2015 01:34 ]
Post subject:  Re: BMW E39 Touring - 350 þús kr!

Prófaðu að hækka verðið í 450þ...

Menn voru að bjóða 700-800 í E60 hjá mér... ótrúleg þessi "ásett verð" menning hérna heima...

Author:  Hreiðar [ Fri 18. Dec 2015 23:32 ]
Post subject:  Re: BMW E39 Touring - 300.000 kr TILBOÐ

Nú er ég orðinn klikkaður!

BÍLLINN FER Á 300ÞÚS KR. STAÐGREITT! HLUSTA EKKI Á LÆGRI BOÐ.

Author:  Angelic0- [ Sat 19. Dec 2015 01:16 ]
Post subject:  Re: BMW E39 Touring - 300.000 kr TILBOÐ

I feel your pain.... :lol:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/