bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Til sölu 735i (745i með vél úr 735i) '85 á 180þús kr https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=6822 |
Page 1 of 2 |
Author: | saemi [ Mon 19. Jul 2004 00:26 ] |
Post subject: | Til sölu 735i (745i með vél úr 735i) '85 á 180þús kr |
SELDUR Til sölu er einn af mínum hjartans bílum. Ég var búinn að lofa þessum bíl, en ekkert virðist ætla að verða af þeim kaupum svo hann er hér með auglýstur til sölu. Þetta er fyrrum 745i bíll, en ég tók vélina úr honum og hún hvílir nú í sexunni minni. Í bílnum núna er vél úr 735i bíl (218hö), ásamt 4ra gíra sjálfskiptingu. Víkjum þá nánar að gripnum: Fyrst skráður í Þýskalandi 12.12.1984 Innfluttur frá Þýskalandi 1995 akstursstaða þá c.a. 200.000km Ekinn 252.000 km í júlí 2004. Hann er því mjög lítið ekinn á Íslandi, enda ryð í bílnum mjög lítið!!! Ég hef átt bílinn síðan árið 2000 og hann var keyrður 233.000 þegar ég eignaðist hann. Liturinn er Zobelbraun metallic, dökkbrúnn sanseraður litur. Ekki kannski það mest sportlegasta í heimi, en mjög virðulegt og passar ekkert smá vel með innréttingunni sem er öll úr buffaló leðri. ![]() ![]() ![]() Bíllinn er svokolluð "Executive" útgáfa, en það var ásamt "Highline" best útbúnu bílarnir sem komu frá BMW. ![]() (hægt að lesa um það hér) Það helsta sem er af búnaði: -Rafdrifnar rúður -Rafdrifin sæti að framan -Fjarstýrt farþegasæti að framan úr miðjustokk aftur í -Stýring fyrir útvarp úr miðjustokk aftur í -ABS -Aksturstölva -Samlæsingar ![]() -pluss mottur -Gardína í afturglugga -Læst drif -Góðir hátalarar bæði að aftan og framan! Plúsar! Í bílnum er allt nýtt í afturbremsum, handbremsan, bremsudiskar, handbremsubarkar ofl. Bremsur að framan eru mjög góðar líka, finnst ekki minnsti titringur þegar bremsað er. Það er mjög lítið ryð í bílnum. Þetta er án vafa einn besti bíllinn sem fyrirfinnst hér á landi af þessarri gerð, ég veit bara um 3 aðra bíla hér á landi sem koma nálægt þessum hvað það varðar. Nýjir gúmmípúðar í afturfjöðrun frekar mikið mál að skipta um ![]() Innréttingin í þessum bíl er MJÖG falleg og heil. Bíllinn var hjólastilltur fyrir 20.000.- km. síðan Mínusar: Það er eitt og annað sem þarf að gera við þennan bíl. Það helsta er: Það þarf að mála framstykkið fyrir framan húddið ásamt framstuðara (málningin fylgir með). Skipta um farþegahurð að framan, önnur fylgir með Laga litla dæld á afturhorni h/m Glæran er farin að flagna aðeins hér og þar. Læsing bílstjóramegin er stíf, mjög erfitt að opna þar með lykli. Hægt að loka, en þarf eiginlega að opna farþegamegin eða í skottinu. Hefur orðið svona smám saman síðan ég hætti að nota bílinn. Olíuþrýstingsljósið er lengi að fara út eftir ræsingu þegar bíllinn er kaldur. Þetta er krónískur galli í M30 vélunum í þessum bílum, olían lekur niður úr heddinu og blokkinni og tekur því tíma að ná aftur til skynjarans sem er efst í heddinu. Ekkert sem skemmir vélina 1,2 og 3 (guð veit hversu hollt þetta er, margir hafa ekið með þetta svona LENGI). En þetta mætti að sjálfsögðu gjarnan laga. Númerin liggja inni eins og er, en þau eru til og bíða bara eftir að vera tekin út. Bíllinn var í notkun fyrir ári síðan. Hann kemur til með að renna í gegnum skoðun, ég skal kvitta upp á það í söluafsalinu.. ![]() Bíllinn selst ódýrt ef hann er tekinn núna, áður en ég tek skrens á honum. Þetta er bíll sem ég hefði ekki viljað selja á minna en 250þús, en það kostar tíma og svolítinn pening að laga hann og ég er til í að láta hann fyrir 180þús.. Þá er ég að tala um að láta hann með 14" crossspoke felgum, en ekki 16" felgum sem hann stendur núna á. Bíllinn þarf helst að seljast fyrir 27 Júlí, þá fer ég erlendis í 2 vikur og næst ekki í mig til að skrifa undir fyrr en eftir það ![]() Sæmi 699-2268 smu@islandia.is |
Author: | Jón Ragnar [ Mon 19. Jul 2004 19:47 ] |
Post subject: | |
Viltu taka civic uppí? ![]() |
Author: | saemi [ Mon 19. Jul 2004 22:19 ] |
Post subject: | |
uhhh... nei takk samt ![]() |
Author: | Jonni s [ Tue 20. Jul 2004 12:39 ] |
Post subject: | |
Ertu aðeins að spá í beina sölu?? |
Author: | Bjarki [ Tue 20. Jul 2004 13:22 ] |
Post subject: | |
Menn nenna nú varla að taka eitthvað upp í bíl sem kostar ekki nema 180þús. Þá er bara betra að eiga bílinn sem maður á og þekkir. |
Author: | saemi [ Tue 20. Jul 2004 22:24 ] |
Post subject: | |
Bjarki wrote: Menn nenna nú varla að taka eitthvað upp í bíl sem kostar ekki nema 180þús. Þá er bara betra að eiga bílinn sem maður á og þekkir.
Ég hefði eiginlega ekki getað orðað þetta betur ![]() Flest öll skipti eru eiginlega ekki með í myndinni. En takk samt |
Author: | Jón Ragnar [ Wed 21. Jul 2004 22:06 ] |
Post subject: | |
I've must have it ![]() |
Author: | saemi [ Fri 06. Aug 2004 12:09 ] |
Post subject: | |
Jaeja, eg fer ad koma heim og tharf ad losna vid bilinn. Vill ekki einhver taka hann af mer fyrir skitnar 160 baunir !!! VERDID ER SEMSAGT 160.000.- |
Author: | gstuning [ Fri 06. Aug 2004 12:45 ] |
Post subject: | |
saemi wrote: Jaeja, eg fer ad koma heim og tharf ad losna vid bilinn. Vill ekki einhver taka hann af mer fyrir skitnar 160 baunir !!!
VERDID ER SEMSAGT 160.000.- com´on boys sem vantar bíla þetta er mofo 335i sem fer í gegnum skoðun, lítið á það þannig ef þú átt hann í ár, þá er það 13þús á mánuði, fín rekstrar leiga þar á ferð ![]() svo eru svona bílar massa græjur,, |
Author: | Jón Ragnar [ Fri 06. Aug 2004 12:49 ] |
Post subject: | |
Langar SVO mikið í hann ![]() |
Author: | gstuning [ Fri 06. Aug 2004 12:51 ] |
Post subject: | |
Jón Ragnar wrote: Langar SVO mikið í hann
![]() Make it happen |
Author: | Jón Ragnar [ Fri 06. Aug 2004 19:00 ] |
Post subject: | |
Þarf að losna við minn fyrst ![]() |
Author: | SUBARUWRX [ Fri 06. Aug 2004 19:49 ] |
Post subject: | |
djöfull væri ég til í hann heheh |
Author: | hlynurst [ Fri 06. Aug 2004 20:19 ] |
Post subject: | |
Bara að kaupa þennan bíl strákar... ég trúi ekki ennþá að hann sé ekki seldur! Hvað getur maður beðið um meira fyrir þennan pening. Við erum að tala bíl sem er loaded! |
Author: | redman [ Sat 07. Aug 2004 00:43 ] |
Post subject: | |
hann er mjög flottur hjá þér, aðeins of gamall |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |