bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E34 525i M50 non-vanos - 1991 - Leður, LSD *SELDUR* https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=68164 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bandit79 [ Mon 02. Feb 2015 18:31 ] |
Post subject: | BMW E34 525i M50 non-vanos - 1991 - Leður, LSD *SELDUR* |
Þessi er til sölu. BMW E34 Sedan 04/1991 M50B25 non vanos Gengur MJÖG vel og þjappar vel. Skipt var um heddpakkningu fyrir ca.3 árum. 192 HP 245 NM 25% Orginal LSD SSK Ekinn 257.000 ca. Skoðaður 2015 18" Staggered Artec felgur 8,5" framan og 10" aftan með 235/40 dekkjum að framan og 245/40 aftan. 16" vetrarfelgur á lala dekkjum Framleiddur án hvarfakúts Svört leður innrétting í mjög góðu ástandi Armpúðar Aftakanlegur krókur .. en krókinn vantar Hiti í sætum Stóra OBC CD/MP3/AUX headunit BMW Hi-fi system Rafmagn í öllum rúðum Samlæsingar Lækkaður framan+aftan með Lowtec 30/30 (er ekki með nákvæma mm tölu en giska á þetta) Tvískipt miðstöð Það sem er búið að gera undanfarið 1.5 ár : Skipta um stýrisupphengjufóðringu h/m Skipta um aftari spyrnu v/m framan Skipta um balansstangarenda h/m framan Skipta um ventlalokspakkningu Skipta um kerti Skipta um hjólalegu v/m aftan Skipta um báðar bremsuslöngur og rör v/m aftan Tékka á skiptingu, fylla á og láta skiptingu læra upp á nýtt. Fékk nýja síu og olíu 2012. Skipta um öryggi fyrir framljós v/m Þvo allann vélarsalinn. Hennti þessari sveppasíu og kom orginal boxinu fyrir Skipta um olíu, olíusíu og loftsíu... OEM auðvitað Skipta um bremsuvökva á öllu kerfinu Búinn að skipta um alla dempara. Þó ekki nýjir en mjög góðir sem fóru í hann. nýjir klossar að aftan. Skipti um olíu á drifinu Motul LSD olía 75w/140 Reif öxulflangsan úr hægra megin og sandblés ABS kransinn og snyrti aðeins upp á tennurnar á honum Skellti nýjum boddýpúðum eða subframe-fóðringum í hann að aftan. Nýr thrust armur h/m framan. Ný stýrisstöng h/m Nýr balansstangarendi v/m framan Ný rúðuþurrka h/m Þrífa og bera á leðrið. Það helsta sem þarf að gera : Forgangur : Hjólastilla.. trackar beint en þarf að gera betur þar sem stýrið eru skakkt. Herða upp á draglið í stýristúbu, slag í stýri þótt að hjólabúnaður sé í lagi. Skipta um miðstöðvar element. Breyta honum í beinskiptann... afþví hann á það skilið ![]() annað : Skipta um MAF.. var ónýtur/bilaður þegar ég keypti hann. Aftengdi MAF og hann gengur fínt en getur rokkað örlítið í lausagang þegar það er mikil raki í loftinu (kaldir rigningardagar). Bracket fyrir samlæsingarmótor í bílstjórahurð er brotið sem gerir það að verkum að mótorinn dinglar smá. Kemur gaum á "door open" stundum undir akstri og svo þarf alltaf að læsa honum bílstjórameginn. ABS er að taka í á mjög lágum hraða (5-10km/t) .. fannst samt ekkert í skoðun. Þetta er annaðhvort lega að framan eða flangsinn h/m aftan sem er ekki að gefa nógu skýra seglun á þessum hraða. Þarf að ryðbæta.. en þó ekki fyrir skoðun. Frambrettin eru slæm en það fylgja önnur bretti sem eru í lagi með. Það er ryðmyndun/gegnumtæring undir bensínloki. Það er ryðmyndun/gegnumtæring við afturhjól á sílsum. Ef maður dælir yfir 40 lítrum á hann það lekur hann smá. Þarf að taka tankinn undann og skoða betur og laga. Þarf að skipta um diska og klossa framan. Klossar fylgja. Skipta um þetta ógeðslega stýri .. það er bara fúlara en fúllt í útliti! Svo örugglega nokkrir ómerkilegir smáhlutir í viðbót .. þessi fákur er að nálgast fornbílaaldurinn. Það sem fylgir : Nýjir bremsuklossar að framan. Frambretti v+h Getrag 225 M50 5 gíra kassi. Annað sett af afturljósum sem er búið að dekkja. Vetrafelgur með dekkjum ásamt afarlega ljótum hjólkoppum(svartir ![]() Ásett verð er 350.000,- og það er fast! Bíllinn er ekki á númerum vegna trygginga en er skoðaður 2015. Áhugasamir hafið samband í síma 823-1341 eða einkaskilaboð. Einhverjar myndir : ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Hreiðar [ Mon 02. Feb 2015 20:53 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i M50 non-vanos - 1991 - Leður, LSD o.fl - |
Virkilega smekklegur þessi ![]() |
Author: | Alpina [ Mon 02. Feb 2015 21:34 ] |
Post subject: | Re: BMW E34 525i M50 non-vanos - 1991 - Leður, LSD o.fl - |
![]() ALLT fyrir peninginn!!!!!!!! ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |