bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
E34 525ix '95 - seldur https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=67469 |
Page 1 of 1 |
Author: | Los Atlos [ Fri 10. Oct 2014 22:16 ] |
Post subject: | E34 525ix '95 - seldur |
Er með gríðarlega góðann 525ix til sölu, hef átt hann í um 8 ár og alltaf sinnt fyrirbiggjandi viðhaldi, bíllinn er riðlaus, þéttur og solid. Árgerð 1995 Ekinn 250.000 - Smurbók frá upphafi SSK M50B25 Litur - Hellrot, toppur sprautaður síðasta vor 17" Alpina felgur á þokkalegum börðum Svört leður sportsæti með rafmagni og armpúðum Gardínur í afturrúðum Heimasmíðuð Hella Dark framljós Shadowline Skoðaður '15 Ég læt helling af dóti fara með bílnum. Þar á meðal: 16" nelgd vetrardekk á felgum, naglar farnir að kveðja en nóg eftir af munstri Plastsílsar, afturstuðari og 2 framstuðar (540 og orginal) Leður klædd hurðarspjöld, leður miðjustokkur og hellingur af einhverju innréttinga smádrasli Svo er eitthvað meira sem ég læt fara með bílnum en ég hef ekki farið yfir þá kassa í einhver ár. Bíllinn er fluttur inn árið 1998 minnir mig af Þorsteini Hjalta lögfræðingi á Akureyri, ég kaupi svo bílinn af honum fyrir 8 árum. ![]() ![]() ![]() Þetta er auðvitað 20 ára gamall bíll og það eru örfáir hlutir að hrjá hann, pústið er farið í sundur á einum stað en er vel viðgerðarhæft, þekki það ekki nógu vel á þessum bílum hvort það þurfi að taka pústið undan frá grein eða hvort það sé nóg að taka það aðeins niður, en það á ekki að vera neitt mál að sjóða bara í. Svo er það miðstöðvarmótorinn sem er nýlega búinn að gefast upp á mér, hann fer stundum í gang eftir nokkurra mínotna akstur, stundum ekki, og stundum fylgja ægileg hljóð með þegar hann er í gangi, og stundum fer hann ekki í gang en samt er hljóð þannig að það er alltaf hálfgert lottó þegar miðstöðvarmótorinn er annars vegar. Ég hvet þá sem eru áhugasamir að koma og skoða bílinn, er staðsettur í Hveragerði en renni reglulega til Reykjavíkur. Atli |
Author: | Páll Ágúst [ Fri 10. Oct 2014 22:26 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Geðveikur ![]() |
Author: | Hjalti123 [ Sat 11. Oct 2014 00:03 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Snilldar verð með alpinum, og geðveikur bíll |
Author: | saemi [ Sat 11. Oct 2014 10:10 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Flottur |
Author: | Angelic0- [ Sat 11. Oct 2014 14:34 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Sá hann á N1 um daginn... frekar töff bíll... þarf að skeina honum aðeins... en ekkert alvarlegt... Hélt einmitt fyrst að þetta væri Danni 540i... |
Author: | Los Atlos [ Sat 11. Oct 2014 17:18 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Angelic0- wrote: Sá hann á N1 um daginn... frekar töff bíll... þarf að skeina honum aðeins... en ekkert alvarlegt... Hélt einmitt fyrst að þetta væri Danni 540i... Það þarf ekkert að skeina honum neitt, bara að laga þessa 2 hluti sem eg tek fram í auglýsingu. Næsti eigandi þyrfti bara að klára að koma sílsunum undir og sprauta afturstuðara og þá er bíllinn orðinn mjög svipaður þessum 540 |
Author: | Angelic0- [ Sat 11. Oct 2014 18:03 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Með fullri virðingu... Lakkið á 540i er í allt allt öðrum klassa... en bíllinn er flottur... það vantar ekki ![]() |
Author: | Danni [ Sat 11. Oct 2014 18:07 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Angelic0- wrote: Með fullri virðingu... Lakkið á 540i er í allt allt öðrum klassa... en bíllinn er flottur... það vantar ekki ![]() Án þess að hafa séð þennan bíl og ástandið á lakkinu, þá var nú lakkið á 540i sem ég átti alls ekki fullkomið. Ég tók það meira að segja fram í auglýsingunni að það væri farið að sjást á því. En ég var reyndar smámunasamur á OCD leveli með þann bíl, svo ég er kannski biased. En þessi iX er samt helvíti líkur, og bara flottur. Rauðir BMW-ar eru flottastir! |
Author: | Angelic0- [ Sat 11. Oct 2014 19:55 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Þú ert ofur OCD, ég skoðaði bílinn up close og personal.... hann er töluvert veðraðari í lakkinu en þinn var... Flottur bíll samt ![]() ![]() |
Author: | hlynsi [ Sun 12. Oct 2014 16:26 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Þessi er geðveikur. Væri til í þessa stóla í minn. ![]() |
Author: | Los Atlos [ Sun 12. Oct 2014 20:16 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Það væri eitthvað óeðlilegt ef að það myndi ekkert sjást á 20 ára gömlu lakki á bíl sem er ekinn kvartmiljón, en lakkið á bílnum á svo langt langt í land með að vera eitthvað veðrað eða í einhverju uppgerðarástandi. |
Author: | Los Atlos [ Fri 17. Oct 2014 19:26 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
400.000 fram að mánaðarmótum, annars fer hann bara í geymslu fram á vor. |
Author: | rockstone [ Fri 17. Oct 2014 21:22 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 - tilboð 400.000 |
allt fyrir peninginn ![]() |
Author: | Alpina [ Fri 17. Oct 2014 21:35 ] |
Post subject: | Re: E34 525ix '95 |
Danni wrote: Rauðir BMW-ar eru flottastir! Rauður E34 er MASSAFLOTTUR |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |