bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Seldur: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=65918 |
Page 1 of 2 |
Author: | Danni [ Mon 21. Apr 2014 17:54 ] |
Post subject: | Seldur: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
BMW E34 540i Árgerð: 05/1993 Tegund: BMW 540i Skipting: 6 gíra beinskipting Vél: 4.0 V8 286hp Drif: Afturdrif, orginal læst drif, 2.93 hlutfall. Akstur: Um 206.000km Búnaður:
Fæðingarvottorð: http://www.bmwarchiv.de/vin/gf03755.pdf Ég hef átt þennan bíl síðan agúst 2011 og er á þeim tíma búinn að umbreyta bílnum frá því sem hann var upprunalega. Þessi bíll var sjálfskiptur orginal en þegar ég kaupi hann er búið að gera hann beinskiptan með 5 gíra kassa úr E34 530i. Ég skipti þeim kassa út fyrir 6 gíra kassa úr E34 540i ásamt öllu sem tilheyrir því. Bíllinn er því alveg eins útbúinn og orginal 6 gíra bíll. Stuðarinn sem kom með bílnum þegar ég keypti hann var brotinn svo ég tók stuðara af '92 525i og breytti honum í V8 stuðara, ss. skar úr honum fyrir 540i air ducts. Síðan setti ég á hann sílsaplöst og M5 afturstuðara. Nýmálað í bílnum er öll vinstri hliðin, framstuðari, afturstuðari og spoilerinn á skottinu. Spoilerinn er frá Hella, en til að festa hann þarf ekki að bora eða skemma skottlokið svo ef einhver kýs að fjarlægja hann þá er það ekkert mál. Í bílnum er DUDMD tölvukubbur sem eykur hestöfl eitthvað aðeins, hækkar rev limit í 7300rpm minnir mig og delimitar hámarkshraðann. Pústið er þannig að það er búið að fjarlægja hvarfakútana og setja túbur í staðin. Resonatorinn í miðjunni er þarna ennþá en eftir hann eru bara rör í gegn. Það er mikill hávaði í bílnum, en orginal pústkúturinn fylgir og bíllinn alveg steinþegjir með honum. Bíllinn er 100% ryðlaus. Ég fór með hann á gott verkstæði og lét laga allt sem var að. Þar fannst gömul smáviðgerð undir öðru afturljósinu sem hefur ekki verið nógu vel gerð úti í Þýskalandi og var byrjað að krauma smá. Það var allt lagað og stoppað svo það mun ekki koma aftur. Það var líka byrjað smá neðst í bílstjórahurðinni sem var líka lagað og stoppað. Ég hef geymt bílinn inni á veturna til þess að viðhalda þessu body-i eins góðu og hægt er. Þetta er bíll sem má ekki keyra á veturna. Það er nauðsynlegt að eiga annan bíl með. Árið 2011 keypti ég nýja fjöðrun í bílinn. Bilstein sport dempara. FK Automotive lækkunargormar, ný top mounts. Keypti það upprunalega í annan bíl en færði það í þennan þegar ég fékk hann. Það eru nýjir klossar að framan, nýjir diskar, klossar og borðar að aftan. Eða reyndar er þetta allt orðið 3 ára gamalt en ekki búið að keyra á þessu nema ca 12þús km. Vankanntar: Lakkið er orðið svoldið veðrað. Þetta er nú 21 árs gamall bíll og meirihlutinn af lakkinu er orginal, eða allt sem ég tók ekki fram fyrr í þræðinum að væri nýmálað. Kúplingin er farin að slippa, en það fylgir með glæný 265mm kúpling, pressa og lega ($$$$$), ég hef ekki tíma né aðstöðu til að skipta um hana á næstunni. Ég get farið með hann í skoðun ef þess er óskað. Hann fer í gegn. Annars er hann skoðaður 14 með 5 í endastaf sem þýðir að hann dugar út júlí áður en það kemur sekt. Myndir: Hann selst á 15" oem style 5 felgum. Þessar felgur sem eru á myndunum eru ekki í boði með honum. Verð: Verðið er 1.400.000 kr. og ég er nokkuð harður á þessu verði. Það er ekki mikið svigrúm fyrir prútt. Ég skoða að taka ódýrari bíla uppí, en bara bíla í lagi. Nenni ekki neinum projectum. Ég er að selja bílinn þar sem ég ætla að fara í nám erlendis. Það finnast ekki margir E34 í eins góðu standi og þessi á landinu. Hægt er að hafa samband við mig í síma 867-5202 eða þá með því að senda mér PM, eða adda mér á Facebook: Daníel Rúnar Jónasson. |
Author: | Bandit79 [ Mon 21. Apr 2014 18:11 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
![]() Svo svalur!!! Gangi þér vel með söluna ..verður sko enginn svikinn af þessum! |
Author: | atli535 [ Mon 21. Apr 2014 19:08 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Átt eftir að sjá eftir þessu ![]() |
Author: | Bartek [ Mon 21. Apr 2014 20:23 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
þetta er mjog flott verð Danni ![]() ![]() |
Author: | Angelic0- [ Mon 21. Apr 2014 20:33 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Bíllinn er hverrar krónu virði, menn geta reynt að finna annan svona bíl hérna á Íslandi, og þá á ég við 520i, 525i whatever... það er kannski E34 535i ACS bíllinn, og mögulega M5-inn hjá Gæa (veit ekkert með undirvagn á honum samt) sem að eru í sama caliberi... Þetta er ótrúlega heill og flottur bíll, þetta er auðvitað 21árs gamalt svo að það er ekki hægt að ætlast til að þetta sé fullkomið, en að flytja inn svona eintak kemur alltaf til með að verða 2m+ pakki... |
Author: | Danni [ Mon 21. Apr 2014 22:55 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Já, ég mun pottþétt sjá eftir þessu. En ef ég geri þetta ekki núna og læt þennan bíl halda mér á þessu skeri þá mun ég sjá meira eftir því í framtíðinni. Það er fullt af flottum bílum í boði í Evrópu, sem gefa þessum ekkert eftir. |
Author: | Jón Ragnar [ Tue 22. Apr 2014 10:00 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Danni wrote: Já, ég mun pottþétt sjá eftir þessu. En ef ég geri þetta ekki núna og læt þennan bíl halda mér á þessu skeri þá mun ég sjá meira eftir því í framtíðinni. Það er fullt af flottum bílum í boði í Evrópu, sem gefa þessum ekkert eftir. Menntun > Bílar Kemur alltaf annar bíll. Tækifæri til menntunar erlendis eru ekki á hverju strái! Gangi þér vel með sölu. Einn eigulegasti E34 á landinu ásamt M5 hjá Aroni |
Author: | JonFreyr [ Tue 22. Apr 2014 13:32 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Geyma hann. Setja á búkka og geyma hann. Svo bara lifa eins og munkur á medan á námi stendur. |
Author: | Danni [ Tue 22. Apr 2014 15:40 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
JonFreyr wrote: Geyma hann. Setja á búkka og geyma hann. Svo bara lifa eins og munkur á medan á námi stendur. Þú ert að misskilja. Ég ætla að fara út í skóla en ég ætla aldrei að flytja heim aftur. |
Author: | Raggi M5 [ Tue 22. Apr 2014 17:53 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Danni wrote: JonFreyr wrote: Geyma hann. Setja á búkka og geyma hann. Svo bara lifa eins og munkur á medan á námi stendur. Þú ert að misskilja. Ég ætla að fara út í skóla en ég ætla aldrei að flytja heim aftur. Geyma bílinn, og shippa honum svo út seinna ![]() |
Author: | Hjalti123 [ Tue 22. Apr 2014 18:18 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Raggi M5 wrote: Danni wrote: JonFreyr wrote: Geyma hann. Setja á búkka og geyma hann. Svo bara lifa eins og munkur á medan á námi stendur. Þú ert að misskilja. Ég ætla að fara út í skóla en ég ætla aldrei að flytja heim aftur. Geyma bílinn, og shippa honum svo út seinna ![]() Danni wrote: Já, ég mun pottþétt sjá eftir þessu. En ef ég geri þetta ekki núna og læt þennan bíl halda mér á þessu skeri þá mun ég sjá meira eftir því í framtíðinni. Það er fullt af flottum bílum í boði í Evrópu, sem gefa þessum ekkert eftir. Fínt að halda honum líka á klakanum ![]() |
Author: | Yellow [ Tue 22. Apr 2014 21:36 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Danni wrote: JonFreyr wrote: Geyma hann. Setja á búkka og geyma hann. Svo bara lifa eins og munkur á medan á námi stendur. Þú ert að misskilja. Ég ætla að fara út í skóla en ég ætla aldrei að flytja heim aftur. Stór orð ![]() |
Author: | Zed III [ Wed 23. Apr 2014 09:20 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Ég var ![]() |
Author: | JonFreyr [ Wed 23. Apr 2014 14:19 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Ef ad thetta er ekki snidugur bíll til ad eiga heima thegar thu kemur heim i sumarfrí ![]() |
Author: | Danni [ Wed 23. Apr 2014 17:05 ] |
Post subject: | Re: TS: 1993 E34 540i 6 gíra bsk + lsd |
Yellow wrote: Danni wrote: JonFreyr wrote: Geyma hann. Setja á búkka og geyma hann. Svo bara lifa eins og munkur á medan á námi stendur. Þú ert að misskilja. Ég ætla að fara út í skóla en ég ætla aldrei að flytja heim aftur. Stór orð ![]() Sérstaklega eftir að þú stækkaðir þau svona mikið ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |