bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
BMW E36 ///M3 3,0 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=63464 |
Page 1 of 2 |
Author: | upgrade [ Wed 09. Oct 2013 19:47 ] |
Post subject: | BMW E36 ///M3 3,0 |
Jæja ég hef ákveðið að leyfa þessum að hanga á sölu í einhvern tíma vegna tíma og metnaðarleysis. Þetta er s.s. BMW E36 sem er tilvalinn í uppgerð. Bíllinn er fjólublár á litinn eða Daytona Violet eins og hans rétta nafn er. Bíllinn fer í gang en það er farið að heyrast í stangarlegonum. Eftir að það fór að heyrast í þeim var honum lagt og gekk þá einhver á bílinn og stálu af honum, brutu í honum rúðu og fl. Þannig að það sem þyrfti að gera fyrir bílinn er eftirfarandi: -Skipta um stangarlegur. -Setja á hann framstuðara. -Setja á hann framljós. -Setja á hann hliðarlista og stefnuljós. -Setja á hann spegla. -Fá í hann ný sæti og hurðaspjöld. -Fá í hann nýja hliðarrúðu. -Laga/skipta um frambretti. Bíllinn var fluttur inn 2010 og er ekki skráður tjónabíll og hefur ekki lent í neinu umferðaróhappi svo best svo ég viti. Einni er bíllinn riðlaus fyrir utan neðsta part í frambrettum. Lakkið getur komið vel út ef bíllinn fær mössun. Gírkassi er þéttur og góður, með öll sincro í 100% standi. Bíllinn er með stýrið hægrameginn, sem venst fljótt og er að mínu mati bara öðruvísi og töff. Ekkert drif er í bílnum en honum fylgir opið drif sem og annar framstuðari. Ég set á bílinn 500.000kr og er það fast staðgreiðsluverð sem er nú bara verðið á kraminu sé það í lagi.(S50B30 286hp orginal) Ég tala nú ekki um M3 bremsur, fjöðrun og leira. Svona bíll er líka að seljast hátt á aðra milljón í góðu standi. Ég skoða engin skipti svo það er tilgangslaust að bjóða mér skipti eða einhverja þá upphæð sem er lægri en 500.000. Hægt er að hafa samband í einkaskilaboðum, eða í síma 7763010 Gunnar. Ég á erfitt með að svara síma í vinnuni svo það er betra að senda skilaboð ATH. Myndin sem er af bílnum er þegar hann var uppá sitt besta og lýtur EKKI svona út í dag ![]() |
Author: | Orri Þorkell [ Sat 12. Oct 2013 18:33 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
væri gaman að sjá þennan á götunni, afhverju geta menn samt ekki látið E36 standa í friði? orðnir ansi margir þræðir hér um stolna hluti af E36 |
Author: | GunniT [ Sat 12. Oct 2013 19:01 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
áttu mynd af honum eins og hann stendur í dag? |
Author: | srr [ Sat 12. Oct 2013 19:10 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
Ég á til hliðarrúðuna sem vantar í þennan bíl. |
Author: | upgrade [ Sun 13. Oct 2013 10:06 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
Ég veit ekki afhverju fólk getur ekki látið annara manna eigur í friði. Bíllinn er inn í skúr á höfuðborgarsvæðinu en ég er staddur út á landi eins og er. Ég skal koma með mynd af honum á morgun. Ætli ég fari ekki að koma á eftir þessari rúðu hjá þér Skúli, ég er reyndar með einn coupe í huga sem ég get sennilega fengið keyptan á lítið. Þá fær þessi ljós, hiðarrúðu, innréttingu (þótt hún verði ekki uppá marga fiskana) Ef ég næ þeim bíl þá verða legurnar pantaðar og bílnum komið í gagnið, gert við riðið í brettonum eða skipt um þau. Ef bíllinn verður enþá á sölu eftir fyrsta prufurúntinn mun verðið hækka svolítið eðlilega. |
Author: | upgrade [ Sun 13. Oct 2013 12:21 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
Mig langar að taka það fram vegna tilboða uppá skipti og uppá upphæðir sem eru lægri en 500.000kr að bíllinn selst EKKI í skiptum, og ekki á lægra en 500.000kr. Ég er með bílinn inn í skúr, og þarf ekki nauðsinlega á þessum pening að halda svo það breytir mig engu þótt þessi standi á sölu í góðan tíma. Einnig langaði mig að kanna hvort einhver gæti veitt mér upplýsingar af partanúmeri af legum í svona mótor? Planið er að panta legurnar í þessari vikur ef allt gengur eftir. |
Author: | Alpina [ Sun 13. Oct 2013 12:42 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
upgrade wrote: Mig langar að taka það fram vegna tilboða uppá skipti og uppá upphæðir sem eru lægri en 500.000kr að bíllinn selst EKKI í skiptum, og ekki á lægra en 500.000kr. Ég er með bílinn inn í skúr, og þarf ekki nauðsinlega á þessum pening að halda svo það breytir mig engu þótt þessi standi á sölu í góðan tíma. Einnig langaði mig að kanna hvort einhver gæti veitt mér upplýsingar af partanúmeri af legum í svona mótor? Planið er að panta legurnar í þessari vikur ef allt gengur eftir. Án þess að ég viti ,, en er ekki líklegt að um einhverja orsök sé að ræða,, sökum þess að legurnar eru farnar það var b32 mótor i umferð ,,hérlendis allt nýtt og gera ,, en svo kom bank og læti.. STRAX eftir leguskipti,, oliuþrýstingur féll ,, ekki vitað um orsök þannig að skipta um legur ef oliuflæði er ekki það sem á að vera ,,, er BARA hít,, þessar legur kosta ,,, allt S-engine er miklu dýrara en venjulegir mótorar hjá BMW |
Author: | upgrade [ Sun 13. Oct 2013 14:17 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
Já ég reikna nú reyndar alveg með því að það þurfi að skipta um einhvað fleira en bara legurnar. Málið er það að ég get pantað þetta í gegnum vinnuna hjá mér og sparað mér þannig góða upphæð. Hugmyndin var þá sú að panta legurnar fyrst, rífa mótorinn uppúr og skoða. Ef ég þarf á einhverju fleira að halda þá panta ég það eftirá eða leyfi þeim sem kaupir bílinn að gera það seljist hann í millitíðinni. |
Author: | Þorri [ Mon 14. Oct 2013 21:49 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
upgrade wrote: Já ég reikna nú reyndar alveg með því að það þurfi að skipta um einhvað fleira en bara legurnar. Þarf pottþétt að renna sveifarásinn líka náttúrulega. |
Author: | upgrade [ Tue 15. Oct 2013 18:06 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
![]() ![]() ![]() Ég var víst búinn að lofa myndum. Hér koma símamyndir, sýna bílinn kannski ekkert rosalegavel, besta sem ég get komið með í bili hinsvegar. Reyni að taka bílinn út um helgina og taka betri myndir. |
Author: | Angelic0- [ Wed 16. Oct 2013 12:34 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
![]() Stálu þeir framljósunum þínum líka... Elskulegir gaurar ![]() Settiru svo felgurnar ekkert undir hann aftur ![]() |
Author: | upgrade [ Wed 16. Oct 2013 16:37 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
Þessu var öllu stolið áður en ég fékk bílinn. Þessar felgur sem eru undir honum á myndonum fara ekki með bílnum heldur, ég hef ekki hugmynd um hvaða felgur fara með honum ef ég á að segja eins og er. Þessar elskur tóku ekki bara ljósin heldur þurftu þeir að klippa á plöggin fyrir ljósin. Þetta er mesti fíflaskapur sem ég veit um!! |
Author: | IvanAnders [ Wed 16. Oct 2013 20:04 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
upgrade wrote: Þessu var öllu stolið áður en ég fékk bílinn. Þessar felgur sem eru undir honum á myndonum fara ekki með bílnum heldur, ég hef ekki hugmynd um hvaða felgur fara með honum ef ég á að segja eins og er. Þessar elskur tóku ekki bara ljósin heldur þurftu þeir að klippa á plöggin fyrir ljósin. Þetta er mesti fíflaskapur sem ég veit um!! Bara basic partasalavinnubrögð Getur gert mig þroskaheftan stundum! |
Author: | IceDev [ Thu 17. Oct 2013 01:39 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
Ég á 2x svoleiðis plögg, þ.e.a.s ef að þetta sé kringlóttu screw-in plöggin. Ætlaði að nota þau ef að ég myndi versla mér önnur framljós á compactinn en sé ekki fram á að nenna slíkum æfingum og peningaeyðslu. Getur sent pm ef þú hefur áhuga á þeim. |
Author: | Angelic0- [ Thu 17. Oct 2013 03:53 ] |
Post subject: | Re: BMW E36 ///M3 3,0 |
IvanAnders wrote: upgrade wrote: Þessu var öllu stolið áður en ég fékk bílinn. Þessar felgur sem eru undir honum á myndonum fara ekki með bílnum heldur, ég hef ekki hugmynd um hvaða felgur fara með honum ef ég á að segja eins og er. Þessar elskur tóku ekki bara ljósin heldur þurftu þeir að klippa á plöggin fyrir ljósin. Þetta er mesti fíflaskapur sem ég veit um!! Bara basic partasalavinnubrögð Getur gert mig þroskaheftan stundum! Þessir fábjánar eru svo allt annað en partasalar.... ógeðslegt hyski ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |