bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

bmw e36 325 ///M SELDUR
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=10&t=63298
Page 1 of 1

Author:  bjarkibje [ Wed 25. Sep 2013 14:48 ]
Post subject:  bmw e36 325 ///M SELDUR

bmw e36
árgerð 1992 - 05.06.92
hvítur
orginal 316 body sedan
m50b25 vanos vél
ekin 256 þús á vél - 156 þús á boddý
beinskiptur 5 gíra
manual rúður hringinn
samlæsingar
húddpumpur framan og aftan
skoðaður 2014 auðvitað
opnaði vélina þegar ég svappaði og lagaði ventlalokspakkningu sem lak, vélin leit vel út og sá ekki neitt afgerandi slit
ný smurður og olíusía fyrir 200 km max.

svo eitthvað fleira stuffsem ég man ekki

Búinn að eiga bílinn núna í 1 og hálft ár sirka, aðeins 3 eigendur á undan mér.
Allur aukapeningur sem ég hef átt hefur farið í þennan ásamt endalausum vinnustundum sem ég sé ekki eftir!
Ég fékk bílinn ógeðslegan bara með m40b16 vél og knastásinn farinn ofl dund og byrjaði að gera hann upp.
Eftirfarandi hluti hef ég keypt og sett í hann ef svo má að orði komast:

m50b25 vél + gírkassi + orginal púst úr 325 bíl + loftkældir bremsudiskar að framan(200 þús)
á svo til subframe að aftan með stóru 188mm ólæstu drifi 3:15 hlutfall og diskabremsum að aftan (fylgir með)
hann er bara með orginal subframe, skálabremsur að aftan og 168mm drif með minnir mig 4:11 hlutfalli (fínt að spóla og snöggur upp 1&1 gír)
láta sprauta hann ( c.a. 300.000 kr + efni upp á 60.000 kr)
Annar afturstuðari (6.000 kr)
Frambretti (5.000 kr)
Carbon Fiber BMW merki á húdd og skott (5.000 kr)
Kastarar í framstuðara (8.000 kr)
Facelift nýrnabiti + nýru (8.000 kr)
Angel eyes blá(ekki of dökk né ljós) + nokkrir magnarar til að eiga heh (6.000 kr)
Glær stefnuljós í brettum og að framan (6.000 kr)
Leðursæti frammí og aftur í (15.000 kr)
CD spilari + (2stk) 300w hátalarar afturí + bassabox (30.000 kr)
Coilover kerfi frá Tuning Art (60.000)
///M-Tech framstuðari + lip (45.000 kr)
///M-Tech sílsaplöst (18.000 kr )
///M-Tech speglar (8.000 kr)
///M-Tech diffuser á afturstuðara (10.000 kr)
///M-Tech skott lip (7.000 kr)
BBS LM felgur 10" og 8,5" + dekk 205/40 & 225/35 (340.000 + 40.000 kr)

Svo er eitthvað smotterí sem ég er að gleyma man ekki allt þetta núna

Upp á gamanið þá gerði ég verðin fyrir aftan, sum af þeim man ég ekki 100% þannig ég slumpaði á lága tölu á því
Samtals hefur ég eytt í þennan bíl 975.000 kr af því sem er upptalið, þarna vantar einhverjar fjárhæðir inn í og svo þurfti ég að kaupa bílinn sjálfan í upphafi á eitthvað klink þannig þessi upphæð fer yfir 1 milljón og ég sé ekki eftir 1 krónu af þeim pening :thup:


Verð 1.2 milljón
felgur á 400k
bíll án felgna 800k

Tilboð með felgum á 900 staðgreitt !!

Langar í e46 / e39 dísel bíl, ódýrari, slétt skipti eða dýrari get borgað allt að 300 á milli fyrir rétta bílinn
Heitastur fyrir 320d e46 station eða 520d/530d e39

þetta er nýjasta myndin af honum á enga aðra, vantar speglana og sílsana sem fara á bílinn á Laugardaginn ásamt miðjuplastinu í framstuðaranum.

Image

Ég er við í síma 867 8052 Nova allan daginn nánast
og svo einkaskilaboð



kv,Bjarki

Author:  bjarkibje [ Wed 25. Sep 2013 14:52 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325

ég sé ekki myndina í linknum en ef ég hægri smelli og íti á "open picture in new tab" þá sé ég hana
látið vita ef þetta er eitthvað bras

Author:  einarivars [ Wed 25. Sep 2013 15:12 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325

er ekki skemmtilegra að hafa þetta svona ? :D

Image

Author:  bjarkibje [ Wed 25. Sep 2013 15:27 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325

einarivars wrote:
er ekki skemmtilegra að hafa þetta svona ? :D

Image


þarna þekki ég þig, takk gamli :mrgreen:

Author:  Joibs [ Wed 25. Sep 2013 16:23 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325

hvernig er það er búið að mála brettið uppá nýtt?
man seinast þegar ég sá hann var það rjómahvítt á meðan bíllinn sjálfur skjannahvítur :argh:

annars leit hann bara helvíti vel út :thup:

Author:  bjarkibje [ Wed 25. Sep 2013 17:13 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325

Joibs wrote:
hvernig er það er búið að mála brettið uppá nýtt?
man seinast þegar ég sá hann var það rjómahvítt á meðan bíllinn sjálfur skjannahvítur :argh:

annars leit hann bara helvíti vel út :thup:


jájá brettin bæði, framhurðar (önnur klesst), húdd og nýrnabiti (hann var blár á litinn)

Author:  bjarkibje [ Fri 27. Sep 2013 22:49 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325 bsk ///M - coilover - bbs lm ofl

Úpp get sýnt á morgun

Author:  bjarkibje [ Sun 06. Oct 2013 17:02 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325 ///M -BBS-Coilover Skipti á dýrari Diesel bí

upp langar í nýrri diesel bíl get borgað eitthvað á milli !

Author:  bjarkibje [ Fri 15. Nov 2013 21:46 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325 ///M -BBS-Coilover Skipti á dýrari Diesel bí

upp er með pening kláran í skipti fyrir dýrari bíl (má þarfnast lagfæringa)

einnig til í slétt skipti (má þarfnast lagfæringa)

ásamt því er ég til í að taka ódýran bmw upp í (má þarnfast lagfæringa)

og í lokinn er ég til í staðgreiðslu....er í góðu skapi útaf landsleiknum og er til í að selja hann á 750k MEÐ BBS LM felgunum !

haltu kjafti hvað það er ódýrt (finnst mér)

kv,Bjarki
sími 867 8052

PS: ný bremsurör undir bílnum á morgun og M sílsar komnir á hann ásamt speglum og læti, gaman að spóla á þessu
PS2: á til 15 orginal felgur á hann með nánast ónotuðum vetrardekkjum, negld. Fást fyrir 50k aukalega eða gott tilboð bara

kv, aftur Bjarki

Author:  bjarkibje [ Wed 20. Nov 2013 09:52 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325 ///M -BBS-Coilover Skipti á dýrari Diesel bí

750 stgr, skoða öll skipti

540 e39, e30, e46 ofl

Author:  Krissi-Bmw [ Wed 15. Jan 2014 01:38 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325 ///M -BBS-Coilover Skoða skipti - 750stgr!!

Sæll er með Dodge Dakota V8 Magnum metin á 700 og ég er með 100k i vasanum og ég get komið i vikuni og tekið hann eins og hann er nuna. 8691544 eða pm :)

Author:  Djofullinn [ Wed 15. Jan 2014 01:58 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325 ///M -BBS-Coilover Skoða skipti - 750stgr!!

Löngu seldur :)

Author:  bjarkibje [ Wed 15. Jan 2014 09:24 ]
Post subject:  Re: bmw e36 325 ///M -BBS-Coilover Skoða skipti - 750stgr!!

Já langt síðan :)

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/